Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2009, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 22.12.2009, Blaðsíða 15
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM 15VÍKURFRÉTTIR I ÞRIÐJUDAGURINN 22. DESEMBER 2009 Gleðilega hátíð! Opnunartími flest allra verslana í Reykjanesbæ: þriðudagur 22. des 10:00 - 22:00 miðvikudagur 23. des 10:00 - 23:00 fimmtudagur 24. des 9:00 - 12:00 25. og 26. des lokað.Stærstu styrktaraðilar jóladaga eru: á Þorláksmessu kl. 14-16 og 20-23 Stekkjarstaur mætir á Hafnargötuna á Þorláksmessu og gefur börnunum nammi Dansatriði frá DansCentrum fyrir framan Hljómval kl. 17, 20 og 21. Sigurður Gunnar Þorsteinsson, er 21 árs gamall og fer með stórt hlutverk í úrvalsdeildarliði Keflavíkur í körfu ásamt því að leika með landsliðinu. Hann er 204 cm á hæð og kemur frá Ísafirði. Blaðamaður Víkurfrétta heimsótti Sigga í hina vinnuna og fékk að spyrja nokkurra spurninga, en Sigurður starfar sem stuðningsfulltrúi í Holtaskóla. Hvar ertu að vinna og við hvað? Ég er að vinna sem stuðningsfulltrúi í Holtaskóla, er með níu ára strák, Kjartan Óla í stuðningi. Hvernig er hefðbundinn dagur hjá ykkur? Kjartan Óli byrjar daginn á sundi, en svo fylgjum við stundaskrá bekkjarins. Hvað kom til að þú fórst að vinna í skóla? Ég ákvað að taka smá frí frá að læra og tók það fyrsta sem bauðst. Hvernig líkar þér starfið? Mjög vel. Þekktu krakkarnir þig út frá körfunni? Já, enda fær maður að heyra það ef maður tapar leik! Í hvaða grunnskóla fórst þú? Grunnskólann á Ísafirði. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera þegar þú ert ekki að spila körfu? Mér finnst best að slappa af í góðra vina hópi. Hver er uppáhalds tónlistin þín? Ég hlusta á flest alla tónlist. Besta bíómyndin? Snatch. Hjúskaparstaða: Í sambúð. Hvor er betri leikmaður, Kobe eða LeBron? Kobe, sem stendur. Gætirðu hugsað þér að vera grunnskólakennari? Nei, það held ég ekki. Hvað langar þig að starfa við í framtíðinni? Atvinnumaður í körfubolta er draumajobbið. Hvers vegna valdir þú að flytja til Keflavíkur? Til þess að spila körfubolta. Hvernig líkaði þér að flytja að heiman og þurfa að sjá um þig sjálfur? Bara vel, þó að maður hafi það nú alveg rosalega gott á hótel mömmu. Hvað finnst þér um að Obama hafi fengið friðarverðlaun Nóbels? Ef hann hefur afrekað eitthvað sem telst til þess að fá tilnefningu Nóbelsverðlauna þá hlýtur hann að eiga það skilið. Hvar munt þú eyða jólunum? Í faðmi fjölskyldunnar. „Fæ að heyra það ef við töpum leik“ - segir Sigurður Þorsteinsson körfuknattleiksmaður með Keflavík og stuðningsfulltrúi í Holtaskóla

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.