Víkurfréttir - 27.12.2012, Blaðsíða 12
fimmtudagurinn 27. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR12
ÁRAMÓTABLAÐIÐ
„Það er óhætt að segja að árið
2012 hafi verið eitt besta rekstr-
arár í sögu Fríhafnarinnar og
starfsemin var líka ótrúlega fjöl-
breytt og skemmtileg“ segir Ásta
Dís Óladóttir, framkvæmdastjóri
en á annað hundrað manns starfa
í þessari vinsælu verslun í flug-
stöðinni.
Starfsfólkið helsta auðlindin
„Það er margt sem stendur upp
úr á árinu 2012. Það hefur nánast
verið ævintýralegt fyrir margra
hluta sakir en allt byggist þetta á
þeirri miklu farþegaaukningu sem
varð á árinu. Það skiptir sköpum
í rekstri sem þessum að vera með
gott vöruúrval á réttu verði. Við
berum okkur stöðugt saman við
samkeppnisaðila okkar, sem fyrst
og fremst eru flugvellir erlendis og
auðvitað í sumum tilvikum versl-
anir í erlendum borgum. Það sem
við höfum þó hér á landi og er án
efa okkar helsta samkeppnisfor-
skot, það er starfsfólkið. Ég þori
nánast að fullyrða að þjónustan og
þekkingin á þeim vörum sem við
bjóðum upp á sé meiri hér en á
nágrannaflugvöllum okkar. Starfs-
fólkið er okkar helsta auðlind og
það eru forréttindi að fá að vinna
með þeim hópi sem þarna starfar
og margir hverjir hafa gert svo
árum og jafnvel áratugum skiptir.
Það hafa margir komið að máli
við mig og rætt þjónustuna og
viðmótið í Fríhöfninni, að það sé
einstakt og ég er svo hjartanlega
sammála því.
Læra allt um skoska viskíið
Það markverðasta á árinu sem
snýr að starfsmönnum okkar er
Fríhafnarskólinn.
Fríhafnarskólinn var settur í af-
takaveðri í janúar á þessu ári. Í
upphafi var rætt um sjálfstraust og
hvernig það nýtist í starfi, mark-
aðsfræði, kauphegðun og fleira
og fleira. Í næstu lotu sem hefst í
janúar 2013 verður farið yfir fram-
stillingar í verslunum og í vínskóla
svo eitthvað sé nefnt. Það er óhætt
að segja að Fríhafnarskólinn hafi
vakið mikla athygli og hann hefur
skilað starfsmönnum umtalsverðri
launauppbót það sem af er ári. Þar
sem skólinn varð til í kjölfar síðustu
kjarasamninga þá höfðu starfs-
menn val um að setjast á skólabekk
en óhætt er að segja að nærri allir
starfsmenn hafi gripið tækifærið
fegins hendi. Við ætlum svo að
enda námið á vinnu- og námsferð
til Skotlands þar sem starfsmenn
Fríhafnarinnar læra allt um viskí.
Hvernig það er búið til, átöppun,
hvernig tunnur eru gerðar og
svo framvegis. Það verður án efa
skemmtilegur endapunktur á námi
sem skilar bæði starfsmönnum og
fyrirtækinu mjög miklu.
Fyrirmyndarfyrirtæki
Fríhöfnin var valin Fyrirmyndar-
stofnun á vegum SFR árið 2012.
Þar sem meirihluti starfsmanna
tilheyrir starfsmannafélagi ríkis-
stofnana þá vorum við valin fyrir-
myndarstofnun en ekki fyrirtæki,
en Fríhöfnin er eignarhaldsfélag.
Fríhöfnin varð í 4. sæti af 93,
í flokknum stórar stofnanir sem
Stofnun ársins. Þeir þættir sem
mældir voru eru: ánægja í starfi,
stolt, launakjör, vinnuskilyrði,
sveigjanleiki í starfi, sjálfstæði
í starfi, ímynd fyrirtækisins og
trúverðugleiki stjórnenda. Þetta
verður að teljast mjög góður ár-
angur og er ég sem framkvæmda-
stjóri afar stolt af mínu fólki og
þeim árangri sem við höfum náð
með fyrirtækið. Það er fólkið sjálft
sem velur þetta, því er árangurinn
enn ánægjulegri,“ segir Ásta Dís.
n Fríhöfnin var valin Fyrirmyndarstofnun á árinu 2012:
Eitt besta ár í sögu Fríhafnarinnar
-segir Ásta Dís Óladóttir, framkvæmdastjóri
Ásta Dís Óladóttir framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar og Sæbjörg Guðjónsdóttir hönnuður BE A MAN