Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.12.2012, Blaðsíða 17

Víkurfréttir - 27.12.2012, Blaðsíða 17
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 27. desember 2012 17 SAMÞYKKT SVÆÐISSKIPULAGS SUÐURNESJA Samvinnunefnd um svæðisskipulag Suðurnesja samþykkti þann 12. nóvember 2012 tillögu að Svæðis- skipulagi Suðurnesja 2008-2024. Svæðisskipulagið leggur fram stefnu um auðlindir, atvinnu, veitur og samgöngur, flugvallarsvæðið og samfélag, ásamt umhverfisskýrslu. Tillaga að Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024, ásamt umhverfisskýrslu, var auglýst og lá frammi til kynningar á tímabilinu 20. júlí -13. september 2012. Alls bárust fimm umsagnir frá lögbundnum umsagnar- aðilum og fjórar athugasemdir frá landeigendum og lögaðilum. Athugasemdir gáfu ekki tilefni til breytinga á stefnu en breytingar voru gerðar á skýringarkortum og texti uppfærður í greinargerð og umhverfisskýrslu. Nefndin sendi sveitarstjórnum á Suðurnesjum, Skipu- lagsnefnd Keflavíkurflugvallar og Landhelgisgæslunni tillögu sína að svæðisskipulagi og umhverfisskýrslu, ásamt athugasemdum og umsögn sinni um þær, og samþykktu aðilar tillöguna. Nefndin hefur afgreitt Svæðisskipulag Suðurnesja 2008-2024 til Skipulagsstofnunar til staðfestingar og svarað innkomnum athugasemdum. Samvinnunefnd um svæðisskipulag Suðurnesja Ólafur Þór Ólafsson, formaður Fjölbrautaskóli Suðurnesja og Menntamálaráðu-neytið gerðu samning sín á milli í síðustu viku um aukna fjárveitingu sem gerir það að verkum að allir þeir nemendur sem hafa sótt um skólavist fyrir vorönn 2013 fá inn. FS hafði hafnað 51 nemanda um skólavist vegna skorts á fjármagni en með aukinni fjárveitingu náðist að tryggja að allir nemendur fengu inngöngu. „Þessi niðurstaða er mjög góð fyrir þá nemendur sem fá tækifæri til að koma í skólann. Við samþykktum að taka inn 51 nemanda sem við höfðum hafnað bréflega um skólavist. Ráðuneytið mun greiða sérstaklega fyrir þá. Einnig var lofað að fara sérstaklega ofan í kjölinn í þau mál sem okkur hefur greint á milli um varðandi þá áfanga sem við teljum að hafi verið vantaldir. Við teljum okkur ekki hafa fengið sömu hækkanir og aðrir skólar,“ segir Kristján Ásmundsson, skólameistari FS. „Ég vona að menntamálaráðuneytið standi við sinn hlut og að við fáum réttlátar hækkanir. Auðvitað er æskilegt að það verði ekki sama óvissa í vor þegar við innritum nýnema og var nú. Það þýðir lítið annað en að vera bjartsýnn.“ Búið að segja upp starfsfólki FS hefur staðið í talsverðum niðurskurði á undan- förnum árum. Sem dæmi hefur kvöldskólinn verið lagður niður en þangað leituðu margir sem voru í fullri vinnu á daginn. „Skólinn má ekki við frekari niðurskurði. Því fylgir mikil skerðing á þjónustu að geta ekki boðið upp á kvöldskóla en við verðum að draga saman seglin á þessum tímum líkt og allir aðrir. Það höfum við svo sannarlega gert. Þetta er að bitna á þeim nemendum sem eru að byrja eða hafa hætt og vilja snúa aftur,“ segir Kristján. Hann segir að starfs- fólki hafi verið sagt upp áður en samningar náðust við menntamálaráðuneytið. Kristján segir óvíst hvort allir þeir starfsmenn sem sagt var upp muni snúa aftur til starfa á vorönn. „Við vorum búnir að segja upp starfsfólki – kennurum sem voru með samning til loka þessarar annar og einnig stundakennurum. Við erum að skoða stöðuna núna og vonandi getum við fengið hluta þessa starfs- fólks til baka en það er óvíst að það verði allir.“ Tryggt að allir fái skólavist á næstu önn n Menntamálaráðuneytið og FS sömdu um aukna fjárveitingu Fyrsta blað á nýju ári kemur út 10. janúar 1. tölublað ársins 2013 kemur út fimmtudaginn 10. janúar. Skilafrestur auglýsinga er þriðjudaginn 8. janúar. Þeir sem þurfa að koma að auglýsingum fyrr er bent á auglýsingamöguleika á vf.is Ritstjórn og auglýsingadeild Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-17. Sími ritstjórnar er 421 0000 en sími auglýsingadeildar er 421 0001 Gleðilegt nýtt ár! ÁRAMÓTABLAÐIÐ Útskriftarhópurinn frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja á haustönn 2012. Ljósmynd: Oddgeir Karlsson Kristján Ásmundsson, skólameistari FS.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.