Nesfréttir - 01.01.2006, Blaðsíða 5

Nesfréttir - 01.01.2006, Blaðsíða 5
NES FRÉTTIR 5 Heilsugæslan býður íbúum hverfisins 75 ára og eldri upp á eftirlit með heilbrigði sem fram fer á Heilsugæslunni á þriðjudögum og miðvikudögum frá kl. 13.00 til 16.00 Einnig er hægt að hringja og fá símaviðtal við viðkomandi hjúkrunarfræðing í síma 5612070 Boðið er upp á eftirfarandi þjónustu: Blóðþrýstings og blóðsykursmælingar. Ráðgjöf varðandi heilbrigða lifnaðarhætti og ráðleggingar varðandi ýmis réttindi og stuðning. Sólborg Sumarliðadóttir hjúkrunarfræðingur. Heilsuvernd eldri borgara Um 500 milljónum varið til framkvæmda Samkvæmt nýsamþykktri fjár- hagsáætlun Seltjarnarnesbæjar er gert ráð fyrir að á árinu 2006 verði miklar framkvæmdir í bæjarfélag- inu. Um 485 milljónum verður var- ið til fjárfestinga og nýframkvæmda auk þess sem aðrir aðilar en bæjar- félagið munu framkvæma fyrir um 600 milljónir. Nú þegar er vinna við upphitaðan og upplýstan gervigras- völl í löglegri keppnisstærð ásamt minni æfingarvelli við Suðurströnd í fullum gangi eins og bæjarbúar hafa orðið varir við. Áfram verður unnið að endurbótum á grunnskólunum þar sem annars vegar verður hald- ið áfram með viðhaldsátak í Mýr- arhúsaskóla auk þess að bókasafn Valhúsaskóla verður endurnýjað. Einnig verður gerður lítill gervigras- völlur á lóð Mýrarhúsaskóla. Sund- laug Seltjarnarness verður opnuð á vordögum eftir gagngera endurnýj- un en verkinu miðar vel. Töluvert verður unnið við lagfæringar á lóð umhverfis Nesstofu og hjólabretta- vellinum verður komið fyrir á Suð- urströnd við gervigrasvöll svo eitt- hvað sé nefnt. Stefnt er að því að uppbygging Hrólfsskálamels hefjist á árinu auk þess sem hilla fer undir bygg- ingu hjúkrunarheimilis á Lýsislóð. Hafist verður handa við byggingu dælustöðvar við Nesveg. Að auki er áætlað að ljósleiðaratengingu allra heimila á Seltjarnarnesi ljúki á árinu og að heilsurækt rísi í tengslum við sundlaug. Framboðsmál í brennidepli Það má gera ráð fyrir spennandi prófkjörsbaráttu hjá Sjálfstæðis- mönnum á Nesinu, en prófkjörið fer fram 4. febrúar n.k. Töluverður hiti er í mönnum og má búast við hörð- um slag, nokkrir nýjir ætla að gefa kost á sér í prófkjörið. Það kemur nokkuð á óvart að Bjarni Álfþórsson sem var í fjórða sætinu síðast, ætli að fara fram í fyrsta sæti á móti Jón- mundi Guðmarssyni, bæjarstjóra. Þrír frambjóðendur, Ásgerður Hall- dórsdóttir, Sólveig Pálsdóttir og Þór Sigurgeirsson sækjast eftir öðru sæt- inu. Sigrún Edda og Ólafur Egilsson ætla að gefa kost á sér í þriðja sæt- ið og Lárus Lárusson í það fjórða og Oddný Halldórsdóttir og Helgi Þórðarsson í það fimmta. Þarna má búast við töluverðum átökum ann- arsvegar Jónmundur og Sólveigar og hinsvegar Bjarna og Ásgerðar í fyrsta og annað. Þetta verður spenn- andi prófkjör og má búast við mikilli þáttöku. Sjálfstæðismenn hafa nú fjóra bæjarfulltrúa og sækjast þeir allir eftir endurkjöri nema Inga Her- steinsdóttir, sem gefur ekki kost á sér aftur. Niðurstöður úr prófkjöri liggja fyrir í lok kjördags og telur Pétur Kjartansson formaður kjör- nefndar, að lokatölur ættu að verða tilbúnar vel fyrir miðnætti, en fyrstu tölur munu birtast fljótlega eftir lok- un kjörstaðar kl. 18.00 laugardaginn 4. febrúar. Neslistinn stillir upp Neslistinn er búin að stilla upp í þrjú efstu sætin á sínum lista sem er Guðrún Helga Brynleifsdóttir, Sunneva Hafsteinsdóttir og Árni Einarsson sem er sama uppstill- ing og síðast. Heyrst hefur að Siv Friðleifsdóttir,alþingismaður sé að hugsa um að gefa kost á sér í fjórða sæti. Síðan ætla Neslista- menn að bíða eftir útkomuni í prófkjöri Sjálfstæðismanna áður en þeir ákveða að stilla upp í hin sætin á listanum.

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.