Nesfréttir - 01.01.2006, Blaðsíða 18
18 NES FRÉTTIR
G R Ó T T U S Í Ð A N
Ein sú glæsilegasta jólasýning
sem fimleikadeild Gróttu hefur
haldið fór fram sunnudaginn 4.
desember s.l. Mikill fjöldi fólks var
mættur til að fylgjast með þessari
árlegu jólasýningu sem var með
glæsilegra móti. Hægt er að kaupa
geisladiska með myndbandsupp-
töku frá sýningunni á skrifstofu
Gróttu.
Handknattleiksdeild Gróttu gaf
út nú rétt fyrir jólin glæsilegt og
veigamikið blað sem dreift var í
öll hús á Nesinu og Vesturbænum.
Blaðið inniheldur margar skemmti-
legar greinar og viðtöl og er áhuga-
verð lesning fyrir alla handbolta-
og íþróttaáhugamenn.
Handboltablað Gróttu
Um miðjan desember barst
boð til Handknattleikssambands
Íslands frá stjórnvöldum í
Asturias á Spáni um að leika
kynningarleik gegn úrvalsliði
Asturias. Okkar manneskja Íris
Björk var valin og er það ánægju-
efni fyrir Gróttumenn að eignast
fleira landsliðsfólk.
Íris Björk í landsliðið
Vel heppnuð jólasýning fimleikadeildar
Strákarnir í 4. flokki voru langt
frá sínu besta þegar að þeir léku
í Íslandsmótinu í innnahúsknatt-
spyrnu í desember s.l. Fimm lið
voru í okkar riðli en aðeins fjögur lið
mættu til keppni því Leiknir mætti
ekki til leiks. Niðurstaðan var 3. sæti
og vannst aðeins einn leikur og var
það gegn Haukum. Strákarnir geta
mun betur en þetta og verða þeir nú
að taka sig saman í andlitinu enda
mjög efnilegur flokkur á ferð.
Langt frá sínu besta
Meistaraflokkur Gróttu í knatt-
spyrnu mun leika í 1. deildinni í
innanhússknattspyrnu á næsta ári.
Liðið lék í C-riðli í 2. deild og gerði
sér lítið fyrir og sigraði alla sína and-
stæðinga á mjög sannfærandi hátt.
Fyrst kom 4-0 sigur á Leikni F, því
næst 9-2 sigur á Árborg og síðan 7-2
sigur á Stjörnunni. Mest áberandi í
liði Gróttu voru ungu strákarnir, þeir
Garðar, Pétur Már og Hrafn. Þeir
sáu að mestu leyti um markaskor-
un liðsins. Aðrir leikmenn stóðu sig
einnig mjög vel eins og úrslitin gefa
til kynna sem og markatala liðsins
20-4. En eins og áður sagði þá mun
Grótta leika í 1. deildinni í innanhús-
sknattspyrnu að ári.
Sigur á Íslandsmóti
innanhúss
Knattspyrna
Ægir Steinarsson leikmaður
2. og 3. flokks karla var valinn
í U-17 landslið HSÍ sem spilaði
á Hele Cup í Þýskalandi á milli
jóla og áramóta. Hann er mikið
efni í handboltanum og hefur
verið að spila lykilhlutverk með
bæði 2. og 3. flokki karla í vetur,
þó svo að hann sé eingöngu á
yngra ári í 3. flokki.
Ægir valinn í U-17
landslið HSÍ
Ráðgert er að íþróttaskóli Gróttu
hefjist um mánaðarmótin janúar,
febrúar 2006. Hugmyndin er að
kynna íþróttafélagið Gróttu fyrir
börnunum sem eru að hefja nám
í Grunnskóla Seltjarnarness haust-
ið 2006. Íþróttaskólinn verður með
þeim hætti að börnunum verður
skipt í þrjá hópa og mun hver hóp-
ur fá kynningu á þeim greinum
sem íþróttafélagið bíður upp á þ.e.
knattspyrna, handbolti og fimleikar.
Þetta er börnunum að kostnaðar-
lausu því þetta er tilraunaverkefni
sem styrkt verður af skólanefnd
Seltjarnarness og er hluti af dag-
skránni á leikskólunum.
Íþróttaskóli Gróttu
HEIMASÍÐA ÍÞRÓTTAFÉLAGSINS GRÓTTU
www.grottasport. is