Nesfréttir - 01.01.2006, Page 7
NES FRÉTTIR 7
Framboðsfrestur fyrir prófkjör sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi vegna
sveitarstjórnarkosninganna í vor rann út 12. janúar.
Níu karlar og f imm konur tilkynntu um framboð, en þau eru: Ásgerður Halldórsdóttir,
Bjarni Torf i Álfþórsson, Gunnar Lúðvíksson, Helga Jónsdóttir, Helgi Þórðarson,
Jónmundur Guðmarsson, Lárus B. Lárusson, Magnús Örn Guðmundsson,
Oddný Halldórsdóttir, Ólafur Egilsson, Ragnar Jónsson, Sigrún Edda Jónsdóttir og
Sólveig Pálsdóttir og Þór Sigurgeirsson.
Prófkjörið verður haldið í sal Sjálfstæðisfélaganna á Austurströnd 3,
3. hæð þann 4. febrúar og verður kosið frá kl. 9.00 til 18.00.
Fyrir þá, sem verða að heiman á kjördag, er boðið upp á utankjörstaðarkosningu sem
fer fram í Valhöll við Háaleitisbraut 1 á venjulegum skrifstofutíma frá og með
föstudeginum 20. janúar.
Í prófkjörinu eiga kjósendur að velja sjö frambjóðendur með því að merkja við nöfn þeirra
sem kjósa skal með tölustöfum 1 til 7, sem vísar þá til þess sætis sem kjósandi vill að fram-
bjóðandi skipi á væntanlegum framboðslista sjálfstæðismanna við kosningarnar í vor.
Kjörið er bindandi ef frambjóðandi hlýtur a.m.k. 50% atkvæða samanlagt. Á kjörskrá eru
allir félagsmenn sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi og þeir sem ganga í félögin í síðasta lagi
þegar kosið er. Seltirningar geta gengið í Sjálfstæðisfélag Seltirninga eða félag ungra
sjálfstæðismanna á Netinu á slóðinni www.xd.is eða með því að skrá sig á kjörstað þegar
komið er til að kjósa.
Starfshópur um fjölskyldustefnu
óskar eftir nokkum fjölskyldum
sem vilja taka þátt í kynningu á
fjölskyldustefnu Seltjarnarness
með því að taka myndir af
daglegu lífi fjölskyldu, - eins konar
myndadagbók í eina viku. Síðan
er hugmyndin að setja upp þessar
myndir til sýnis íbúum. Allar
fjölskyldugerðir hvattar til að
taka þátt. Verðlaun í boði fyrir
frumlegustu uppsetninguna.
Upplýsingar gefur Sigrún Hv. Magnúsdóttir
í síma 595 9130.
Fjölskyldustefnu
Seltjarnarness
Prófkjör sjálfstæðismanna
-14 frambjóðendur