Nesfréttir - 01.01.2006, Page 13
NES FRÉTTIR 13
Kjósum Ólaf Egilsson
í 3. sæti
Það er sérstakt ánægjuefni að svo reynslumikill maður úr hópi okkar bæjarbúa sem Ólafur
Egilsson lögfræðingur og sendiherra skuli hafa orðið við hvatningum margra Seltirninga um að gefa
kost á sér til starfa að málefnum bæjarfélags okkar.
Þar þarf að vanda til ákvarðana á öllum sviðum og skipa málum í nánum samráðum og sátt við
bæjarbúa.
Ólafur hefur í verkum sínum sýnt að hann býr yfir raunsæi, framsýni og dugnaði til að bera fram
og tryggja framgang þarfra mála. Hann hefur á ferli sínum til þessa leyst með lagni og festu fjölda
vandasamra verkefna, reynst sanngjarn og fær um að finna málamiðlanir til að sætta ólík sjónarmið.
Við erum þess fullviss, að seta Ólafs í bæjarstjórn Seltjarnarness yrði okkur bæjarbúum ávinningur
-- og hvetjum því alla eindregið til að kjósa hann.
Þær jákvæðu undirtektir, sem framboð Ólafs hefur þegar fengið meðal Sjálfstæðismanna og
annarra Seltirninga, er okkur uppörvandi vísbending um að hæfileikar hans og reynsla séu metin að
verðleikum.
S t u ð n i n g s m e n n
Ólafur Egilsson er kvæntur Rögnu Ragnars löggiltum
skjalaþýðanda. Þau eiga tvö börn, Ragnar Friðrik M.Sc.
sérfræðing á Námsmatsstofnun og kennara í aðferðafræði
við H.Í. og Önnu Margrjeti Þuríði B.Ed., upplýsingafulltrúa
Hjálpastarfs kirkjunnar. Ólafur hefur víðtæka reynslu sem
nýst getur vel í þágu okkar Seltirninga:
Hann hefur m.a.
• setið í stjórn Heimdallar F.U.S. og
Sambands ungra Sjálfstæðismanna og gegnt
fleiri trúnaðarstörfum á sviði stjórnmála
• starfað sem blaðamaður meðfram laganámi,
m.a. á Morgunblaðinu, og skrifaði þá í nokkur ár
fréttir frá Alþingi og af borgarmálum Rvíkur
• verið formaður Stúdentaráðs H.Í., Hótel Garðs,
Æskulýssambands Íslands og fleiri samtaka,
þ. á m. forgöngumaður um stofnun
Listvinafélags Seltjarnarneskirkju
og fyrsti formaður þess
• gegnt fjölþættum og mikilvægum störfum
í utanríkisþjónustunni m.a. sem sendiherra í
London, Moskvu, Kaupmannahöfn og Peking
• búið tvívegis um árabil á Seltjarnarnesi,
þar sem hann á nú heimili og hefur látið sér
umhugað um velferð bæjarfélagsins