Nesfréttir - 01.01.2006, Side 14
14 NES FRÉTTIR
Ágætu bæjarbúar!
Gleðilegt ár!
Í upphafi árs hugum við að breyting-
um til batnaðar og setjum okkur ný,
metnaðarfull markmið.
Það er kunnara en frá þarf að segja
að eining, samstaða og festa er það
sem hefur skapað Sjálfstæðismönn-
um á Seltjarnarnesi forystuhlutverk í
stjórn bæjarfélagsins um áratugaskeið.
Á yfirstandandi kjörtímabili hefur reynt
töluvert á þessa þrjá þætti sem fyrr
eru taldir. Af hverju spyrja sumir? Við
búum í einu af höfuðvígjum Sjálfstæð-
isflokksins á landsvísu. Við erum með
góða rekstarlega afkomu auk þess sem
hér er almenn vellíðan og ánægðir bæj-
arbúar samkvæmt þjónustukönnum
sem gerð var á síðari hluta ársins 2005.
Maður veltir því fyrir sér hvernig þetta
hefði nú litið út ef meirihlutinn hefði
unnið betur saman sem heildstætt
lið með það eina markmið að ná enn
betri árangri og í leiðinni að hafa aðeins
meira gaman af hlutunum.
Ég ákvað í desember síðastliðnum
að gefa kost á mér í prófkjöri Sjálfstæð-
ismanna á Nesinu. Ég setti mér metn-
aðarfullt markmið enda keppnismaður
sem stefni á árangur. Ég tók strax þá
ákvörðun að fara ekki í kosningabanda-
lag með einum né neinum á leið minni
að settu marki sem er 2. sæti á lista okk-
ar Sjálfstæðismanna. Mín stefna er að
heiðarlegast og eðlilegast sé að bjóða
sig fram á eigin verðleikum og setja sér
verðug markmið þar um.
Ég er borinn og barnfæddur Seltirn-
ingur sem þekki ekkert annað en að
búa hér á Nesinu og tel það forréttindi
að búa hér í bæ. Mér rann því aldeilis
blóð til skyldunnar þegar ég ákvað að
tími væri kominn til að einhenda mér
í bæjarmálin af fullum krafti. Þeir sem
mig þekkja vita að þar fylgir hugur máli.
Ég hef meðvitað staðið hjá og fylgst
með bæjarpólitíkinni á yfirstandandi
kjörtímabili með það í huga að bjóða
mig fram nú. Ég tel mig ágætlega kynnt-
an í bæjarfélaginu og veit að ég hef
margt fram að færa sem kemur sér vel
í því þjónustuhlutverki sem starf bæj-
arfulltrúa í rauninni er. Ég hef með góð-
um árangri starfað við sölu, markaðs-
og þjónustumál alla tíð og vil nota þá
reynslu til að innleiða nýtt hugarfar og
léttleika í bæjarmálin. Ég tel að bæjar-
fulltrúi sem kosinn er til starfa af bæj-
arbúum eigi að vera málpípa og tala
þeirra máli. Því er mikilvægt að hlusta
og vera virkur þátttakandi í bæjarlífinu
eins og ég og mín fjölskylda erum sann-
arlega.
Af mörgum áherslumálum er að
taka.
Skóla- og fræðslumál
Skóla- og fræðslumálin eru ofarlega á
minni stefnuskrá enda beinn neytandi
þeirrar þjónustu í dag þ.e. með dætur
mínar á leikskólanum Mánabrekku og
í Mýrarhúsakóla. Ég er einn af þeim
sem er þeirrar skoðunar að vinnudegi
barnanna eigi að vera að mestu lokið
þegar þau koma heim síðla dags. End-
urskoða þarf og jafnvel minnka heima-
nám yngstu nemendanna. Skoða þarf
leiðir til að sem mest af heimanáminu
geti farið fram á skólatíma eða að sveigj-
anleiki verði meiri en nú er t.d. innan
vikunnar. Með þessari skoðun er ég
alls ekki að tala um að foreldrar afsali
sér ábyrgð á lærdómi barnanna og því
síður vil ég að gæði menntunarinnar
minnki. Miklu fremur vil ég virka þátt-
töku foreldra í skólastarfinu og að þeir
séu miklu upplýstari um gang mála.
Ég vil stuðla að auknu svigrúmi fyrir
verðmætan gæðatíma fjölskyldunnar
og tel að við þurfum fjölskylduvænna
skipulag í kringum skólastarfið og þá
íþrótta- og tómstundaþjónustu sem
börn flestra okkar Nesbúanna nýta sér
á einn eða annan hátt.
Ég tel mjög brýnt að auka enn frekar
samstarf milli leikskóla og grunnskóla
bæjarins til að tryggja hnökralausa sam-
fellu milli skólastiga og bætt upplýsinga-
flæði með hag barnanna í fyrirrúmi. Um
þetta mikilvæga verkefni þarf að móta
skýra starfshætti til framtíðar og skipa
ábyrgðaraðila til að fylgja þeim eftir. Ég
bind miklar vonir við þá stefnumörkun-
arvinnu sem nú er í gangi í framhaldi af
skólaþinginu. Ég er sannfærður um að
sú vinna gefur okkur markvissari skóla-
stefnu sem skilar okkur betri árangri og
meiri ánægju.
Skipulagsmál
Skipulagsmálin eru viðkvæm og ber
bæjarfulltrúum skylda til að vanda
sérstaklega vel til verka þeirri í vinnu.
Ákvarðanir skulu teknar af festu og að
vel athuguðu máli með hagsmuni bæj-
arbúa allra að leiðarljósi. Við verðum
að horfast í augu við þá staðreynd að í
þessum málaflokki vantar meiri yfirveg-
un í ákvarðanatökuna. Að mínu mati er
mikilvægt að farið verði mjög varlega í
öll byggingaráform á Bygggarðarsvæð-
inu vegna þeirra hagsmuna sem bæjar-
félagið hefur á því svæði. Þetta er eina
nýtanlega borunasvæði Hitaveitunnar
okkar og bera því að fara að öllu með
gát áður en byggingaréttur er seldur.
Ég vil koma að þessum ákvörðunum,
heyra raddir bæjarbúa og miðla sjónar-
miðum bæjarins.
Ég vil stuðla að því að viðhald opinna
leiksvæða barna verði ávallt til fyrir-
myndar. Að þau hafi upp á ný og þrosk-
andi leiktæki að bjóða, séu vel hirt og
laði að sér bæði börn og foreldra til að
stuðla að meiri samveru útivið.
Æskulýðs- og íþróttamál
Æskulýðs- og íþróttamálin eru ásamt
skólanum sterkustu uppeldisstoðir
samfélagsins okkar. Að þessum málum
ber að hlúa með
öllum tiltækum
ráðum. Ég var svo
gæfusamur að
byrja að stunda
handbolta og fót-
bolta með Gróttu
á yngri árum og
er reyndar enn
að þó maður fari
kannski örlítið
hægar yfir - ekki mikið samt ;-) Ég tel að
íþrótta- og tómstundastarf sé ein besta
forvörnin sem við eigum í þessu landi.
Hér á Seltjarnarnesi eigum við skilyrð-
islaust að styðja enn frekar við bakið
á því frábæra starfi sem fram fer hér í
bænum og mun ég svo sannarlega berj-
ast fyrir því nái ég mínum markmiðum
í komandi prófkjöri. Ég vil t.a.m. skoða
hvort við getum farið svipaðar leiðir og
mörg nágrannasveitafélög hafa gert í
þessum efnum þ.e. að styrkja fjölskyld-
ur með fjárframlagi til íþrótta- og tóm-
stundastarfs.
Sundlaugin okkar er perla og eru allir
sammála um það. Með þeim spennandi
breytingum sem nú er unnið að á sund-
lauginni, með fyrirhugaðri heilsurækt
og enn meiri þjónustu skapast okkur
gullið tækifæri til sóknar.
Aðstaða til knattspyrnuiðkunnar
mun gerbreytast með tilkomu gervigras-
vallarins sem nú er á framkvæmdastigi.
Við þurfum að hafa þar allt á hreinu
varðandi umgengni og viðhald vallarins
svo hann nýtist okkur sem best.
Í Selinu er unnið frábært starf af fag-
fólki sem virkilega nær til unglinganna
okkar. Ég vil að við útvíkkum þeirra
starfssvið með tilliti til þess að ná sem
flestra á þessum viðkvæma aldri og að
bæjarfélagið hvetji þetta fólk til enn frek-
ari árangurs.
Menningarmál
Ég tel að öflugt menningarlíf auðgi
bæjarbraginn. Á Seltjarnarnesi býr fjöld-
inn allur af frambærilegu listafólki og
bærinn á fjölda listaverka sem bæjar-
búar vita hreinlega ekki af. Ég legg til að
þessi verk verði sýnd almenningi á aug-
lýstri sýningu og er þeirrar skoðunar
að nýta beri enn betur sýningaraðstöðu
okkar vel heppnaða bókasafns.
Málefni aldraðra
Ég þekki vel til margra heldri borg-
ara hér á Nesinu. Ég kynntist mörgum
þeirra vel á þeim árum sem ég starfaði
við sundlaugina sem og á uppeldisár-
unum enda margir góðir kunningjar for-
eldra minna. Ég veit að þeir harma það
mjög að geta ekki farið í laugina þessa
dagana en þolinmæði þrautir vinnur
allar, með hækkandi sól komast þeir
aftur í laugina sína eins og við öll. Ég er
þeirrar skoðunnar að ættum að nota
það tækifæri og afnema gjaldtöku eldri
borgara á Nesinu í sundlaugina.
Nú er verið að rífa gamla Lýsis hús-
ið og hjúkrunarheimili mun brátt rísa á
þeirri lóð. Það er mikilvægt að við íbúar
verðum á öllum stigum upplýstir um
gang mála og hversu mörg rými verða
í boði okkur til handa. Þar vil ég koma
sterkur inn.
Ég vil í þessum málum sem og öðr-
um efla gagnsæi og allt upplýsingaflæði
sem ég tel tilfinnanlega vanta í bæjar-
kerfið. Ég vil stuðla að áframhaldandi
tryggri fjármálastjórn enda er það for-
senda fyrir framþróun og nýtingu tæki-
færanna.
Kæru Seltirningar!
Prófkjörið er bara fyrsti áfangi þess
að mynda sigurlið fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar í vor. Ég hvet ykkur til að
taka þátt í prófkjörinu þann 4. febrúar.
Ég hef fundið á fólki að það vill sterka
heilsteypta liðsheild sjálfstæðismanna
til forystu og þar vil ég vera til að vinna
fyrir ykkur. Ég veit að ég get orðið að
liði og óska því eftir stuðningi ykkar í
2. sætið.
Þór Sigurgeirsson
Nánar á www.thors.is
Eflum andann - til árangurs!
Þór
Sigurgeirsson.
Sigrúnu Eddu Jónsdóttur
í 3. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi