Nesfréttir - 01.01.2006, Blaðsíða 16
16 NES FRÉTTIR
Sjóðurinn er dánargjöf Sigur-
geirs Einarssonar, sem fæddist 20.
apríl 1871 en lést 11. apríl 1953.
Sjóðurinn er rúmlega hálfrar aldar
gamall. Sigurgeir var kaupsýslu-
maður og bjó að Vesturgötu 28 í
Reykjavík. Hann ánafnaði Seltjarn-
arneshreppi öllum eigum sínum
með arfleiðsluskrá dags. 11. ágúst
1952.
Til úthlutunar kom samkvæmt
skiftagjörð 30. mars 1954 kr.
1.036.930.- . Tilgangur sjóðsins er :
1. Að reisa myndarlegt sjúkra-
hús á Seltjarnarnesi til minningar
um læknana Bjarna Pálsson land-
lækni sem bjó að Nesi við Seltjörn
og tengdason hans Svein Pálsson
héraðslækni í austur-héraði suð-
uramtsins. Ósk gefanda var sú að
sjúkrahúsið yrði reist á sandinum
sunnan við heimreiðina að Nesi en
var þó ekki skilyrði fyrir gjöfinni.
Þessi ósk gefandans um að reisa
sjúkrahús við Nesstofu hefur ekki
rætst og mun fénu án efa verða var-
ið í svipaða eða skylda framkvæmd
í náinni framtíð.
2. Að annast um legstað gefand-
ans í kirkjugarðinum við Suðurgötu,
reisa honum hæfilegan legstein og
búa á allan hátt vel um leiðið. Nokk-
ur fleiri atriði er minnst á í erfða-
skránni og er undirrituðum ekki
kunnugt um að þeim hafi verið fram-
fylgt þessi ár, sem liðin eru frá láti
Sigurgeirs.
Samkvæmt erfðaskránni eiga
sæti í stjórn sjóðsins, forseti bæjar-
stjórnar og fulltrúi sem bæjarstjórn
kýs. Fer hann með daglegan rekst-
ur sjóðsins og varðveislu en í meiri
háttar tilvikum verða báðir stjórnar-
menn að taka ákvörðun.
Undirritaðir tóku við stjórn sjóðs-
ins hinn 12. júní 2002, þá var eigið fé
sjóðsins samtals rúmar 20 milljónir.
Nú mun láta nærri að peningaeign
sjóðsins nemi tæpum 59 milljónum
sem ávaxtaðir eru á verðtryggðum
reikningum auk þessa á sjóðurinn
tveggja herbergja íbúð að Skóla-
braut 5, Seltjarnarnesi.
Á umliðnum árum hafa undirrit-
aðir stjórnarmenn sjóðsins kapp-
kostað að ávaxta fé hans á sem
hagkvæmasta hátt innan leyfilegra
marka. Einnig hefur stjórnin séð
um hreinsun á legsteini Sigurgeirs
og umhriðu leiðisins. Blóm hafa
verið gróðursett á sumrin og skreyt-
ingar settar á leiðið fyrir jólin.
Stjórnin mun næstu mánuðum
uppfylla þau skilyrði, sem kveðið er
á um í erfðaskránni sem enn hafa
ekki verið uppfyllt eftir 50 ár.
Jón Jónsson í stjórn sjóðsins
Ásgerður Halldórsdóttir forseti bæjar-
stjórnar.
Gjafasjóður Sigurgeirs Einarssonar
í eigu Seltjarnarnesbæjar
Stjórnarmennirnir Ásgerður Halldórsdóttir og Jón Jónsson 24. des. sl
eftir að hafa lagt skreytingu á leiði Sigurgeirs.
Við sem sinnum íþrótta-, forvarn-
ar- og uppbyggingarstarfi í Gróttu
vitum að Bjarni Torfi Álfþórsson hef-
ur ríkan skilning á mikilvægi íþrótta
fyrir fólk, ekki síst varðandi uppeldi
og mótun barna og unglinga. Hann
hefur verið virkur félagi í Gróttu alla
sína tíð fyrst iðkandi frá barnsaldri
og svo forystumaður í félaginu um
árabil, þar á meðal formaður Gróttu
árin 1992 til 1995 og svo aftur frá
árinu 2002. Hann er núverandi for-
maður Gróttu. Það er útbreidd skoð-
un meðal okkar sem höfum unnið
með félaginu og fyrir félagið að
Bjarni Torfi sé mikill forystumaður
og eiga afar gott með að vinna með
fólki. Hann deilir ekki og drottnar
heldur er einn af okkur og fer fyrir
sínu fólki sem samstarfsmaður og
leiðtogi.
Það er skoðun mín að þessir hæfi-
leikar muni nýtast honum vel, ef
við Seltirningar berum gæfu til að
velja hann sem leiðtoga Sjálfstæð-
isflokksins í næsta prófkjöri og þar
með vonandi bæjarstjóra næstu
fjögur árin. Skilningur hans á gildi
íþrótta og reynsla af margháttuðu
samstarfi við mikinn fjölda fólks á
vettvangi íþróttanna bæta verulega
við aðra góða kosti hans sem stjórn-
málamanns og leiðtoga í bæjarfélagi
okkar.
Fólk er sem betur fer stöðugt að
gera sér betur grein fyrir forvarnar-
og uppbyggingarhlutverki íþrótta
gagnvart börnum og unglingum.
Iðkun er félagslega styrkjandi og
hvetjandi, eflir metnað og sjálfs-
traust, eykur stundvísi og sjálfsaga
og minnkar líkurnar á neikvæðum
afleiðingum hreyfingarleysis sem
geta valdið margháttuðum sjúkdóm-
um. Þá hefur verið sýnt fram á að
unglingar sem stunda íþróttir eru
líklegri en hinir til að forðast notk-
un áfengis, tóbaks og fíkniefna á
unga aldri og eru líklegri til að hafa
nægilegt sjálfstraust til að stand-
ast þrýsting og óheppilegt áreiti á
þessum hættulegu sviðum. Börn og
ungmenni sækja sér heilbrigðar fyr-
irmyndir úr íþróttunum og getum
við í Gróttu nefnt gæsilegt dæmi um
það sem er Guðjón Valur handbolta-
kappi sem hóf afreksferill sinn hér í
Gróttu.
Íþróttastarfið er einn að lykil-
þáttum í sveitarfélagi eins og Sel-
tjarnarnesi. Við fáum ekki betri for-
ystumann til að sýna því skilning
og veita starfinu brautargengi en
Bjarna Torfa Álfþórsson, verði hann
næsti bæjarstjóri. Hann kemur úr
þessum jarðvegi. HANN ER EINN
AF OKKUR. Veitum honum öflugan
stuðning í prófkjörinu 4. febrúar nk.
Bjarni skilur
mikilvægi íþrótta
- eftir Kristínu Finnbogadóttur
Listvinafélag Seltjarnarneskirkju:
Listvinafélag Seltjarnarnes-
kirkju stendur fyrir nýstárlegri
ljóða- og tónlistardagskrá í
kirkjunni sunnudaginn 29.
janúar kl. 15.
Tónlistardagskránin er í hönd-
um Sigurðar Flosasonar saxón-
fónleikara og Sólrúnar Braga-
dóttur söngkonu sem starfað
hefur erlendis undanfarin ár með
búsetu í Danmörku. Dagskrá
þeirra samanstendur af íslensk-
um sönglögum í óvenjulegum
búningi. Hafa þau sagt að dagskrá-
in verði nokkurs konar gjörning-
ur þar sem ýmis lög og stef renna
saman. Er mikið fagnaðarefni að
fá tækifæri til að hlýða á þessa
snjöllu listamenn á sviði tónlistar-
innar hér á Seltjarnarnesi.
Ljóðadagskráin verður með
þeim hætti að átta Seltirningar á
ýmsum aldri munu lesa ljóð að
eigin vali og gera grein fyrir vali
sínu. Þau sem lesa eru Björn
Jónsson fyrrv. skólastjóri, Gunn-
ar Kvaran sellóleikari, Jón Jóns-
son fyrrv. framkvæmdastjóri,
Kristrún Heimisdóttir lögfræðing-
ur, Sigríður Þorvaldsdóttir leik-
kona og bæjarlistamaður Seltjarn-
arness og Þorbjörg Sigríður Gnn-
laugsdóttir lögfræðingur. Einnig
munu tveir nemendur úr Mýrar-
húsa- og Valhúsaskóla, piltur og
stúlka, lesa. Er þess að vænta að
ljóðadagskráin verði mjög fjöl-
breytileg enda mikill aldursmun-
ur á elstu og yngstu lesendum.
Fjölbreytileg ljóða -
og tónlistardagskrá
Augl‡singasími 511 1188