STARA - 01.09.2014, Side 3
S
T
A
R
A
1.T
B
L
2
0
14
3
Mikill hugur er í stjórninni og hefur hún eftir
síðasta aðalfund unnið hörðum höndum að
starfsáætlun fyrir árið 2014 til 2015.
Stjórn SÍM telur að helstu baráttumál þessa
starfsárs og komandi ára snúi að starfsumhverfi
myndlistarmanna og hvernig auka megi almennar
tekjur innan greinarinnar. Til að svo megi verða
þarf betri yfirsýn og upplýsingar varðandi starfsum-
hverfi myndlistarmanna en SÍM býr yfir.
Strax í ágúst mun SÍM framkvæma launa- og
skoðanakönnun meðal félagsmanna samtak-
anna. Niðurstöður hennar verða birtar á nýrri
heimasíðu sem mun bera titilinn BORGUM
MYNDLISTARMÖNNUM, eftir að úrvinnslu
lýkur. Á þeirri heimasíðu munu einnig birtast stutt
stuðningsmyndband frá fólki úr þjóðfélaginu og
greinar frá starfandi listamönnum. Ætlunin er að
miðla niðurstöðum könnunarinnar, upplýsa þjóð-
ina um hlutverk myndlistarmanna og nýta síðuna
sem þrýstiafl á stjórnvöld. Meðbyrinn með þessari
herferð vonum við að hægt verði að nýta til að
ganga frá launasamningum við opinber listasöfn og
stjórnvöld svo hægt verði að borga listamönnum
fyrir að sýna í söfnum landsins.
Stjórn SÍM mun senda umsókn um að verða aðildar-
félag að Bandalagi háskólamanna (BHM) nk. haust
og mun umsóknin verða tekin fyrir á aðalfundi BHM
í apríl 2015. BHM er bandalag hagsmunatengdra
félaga eða stéttarfélaga sem starfa að fag- og vinnu-
markaðslegum málefnum félagsmanna sinna. BHM
styður við starf aðildarfélaga, eflir þekkingu félags-
manna á kjara- og réttindamálum og gætir hagsmuna
félagsmanna gagnvart stjórnvöldum. Núverandi
stjórn SÍM telur tímabært að félagsmenn SÍM hafi
aðgang að sjúkrasjóði, styrktarsjóði og orlofssjóði og
telur það lið í að styrkja kjarabaráttu listamanna að
SÍM gerist aðili að BHM.
Stjórnin mun leggja áherslu á samtal og samráð
milli stjórnar og félagsmanna og telur að með því
verði hægt að styrkja ímynd SÍM innan frá. Stjórn
SÍM telur að leiðin að betra starfsumhverfi felist
meðal annars í virku samtali sem muni leiða til
vitundarvakningar og aukinnar þátttöku félags-
manna í starfsemi SÍM.
Við í stjórn SÍM fögnum fyrsta fréttariti SÍM og
vonumst til að ritið verði eitt skref af mörgum í að
efla samtalið milli félagsmanna og stjórnar. Við
vonum að það miðli upplýsingum um það sem SÍM
stendur fyrir: Hagsmunamál listamanna, menningu,
lifandi samfélag og gleði.
Stjórnin óskar ykkur gleðilegs sumars og við
hlökkum til að takast á við krefjandi en
spennandi verkefni á komandi árum.
Fyrir hönd stjórnar SÍM
Jóna Hlíf Halldórsdóttir
formaður
„Núverandi stjórn SÍM telur tímabært að félags-
menn SÍM hafi aðgang að sjúkrasjóði, styrktarsjóði
og orlofssjóði og telur það lið í að styrkja kjara-
baráttu listamanna að SÍM gerist aðili að BHM.“