STARA - 01.09.2014, Blaðsíða 17
S
T
A
R
A
1.T
B
L
2
0
14
17
Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir
opnar sýninguna „Myndlistar Virkni –
Virkni Myndlistar – hvernig sem það
er skilgreint – þá er virknin alltaf til
staðar!“ í SÍM-salnum 10.júlí og stend-
ur sýningin til 30.júlí. Katrín verður
með listamannaspjall 13.júlí sem verður
auglýst nánar síðar.
Í listsköpun sinni gerir Katrín sér að umfjöllunarefni
landslag og vistkerfi myndlistar samtímans á Íslandi
sem hún fléttar á óvenjulegan og persónulegan hátt
inn í verk sín. Hún notar til þess hvern þann miðil
sem henni þykir henta, blandar saman gjörningum,
fræðimennsku, teikningum, höggmyndum, textum,
ljósmyndum og myndbandsmiðlinum.
Þá er Katrín ötul við störf í þágu myndlistar. Hún
hefur komið að stofnun sýningarrýma, tekið saman
og rannsakað skrif um myndlist í verkefninu Íslensk
samtímalistfræði, situr í ritstjórn tímaritsins Ende-
mi, hefur setið í nefndum og stjórnum, skipulagt og
tekið þátt í málstofum og er ein stofnenda verkefnis-
ins Contemporary.is. Yfirlýst markmið Katrínar er
að lifa af og bjarga heiminum með myndlist.
Í Nýlistasafninu er nýafstaðin einkasýning Katrínar.
Sýningin bar heitið 6. bindið. Hún var byggð á verk-
um listamanna og skrifum fræðimanna sem Katrín
valdi í því skyni að skilgreina samtímalist út frá þeim
áhrifum sem samtímalistsamfélagið á Íslandi hefur
haft á hana. Markmiðið er að gera „samsýningu allra
íslenskra samtímalistamanna“ og vekja með því
hugleiðingar um fagurfræðilegt og pólítískt sam-
hengi myndlistar. Katrín handgerði nokkur hund-
ruð skúlptúra í formi verðlaunabikara sem hún
nefndi Þakkarskúlptúra og gaf út 6. bindi íslenskrar
listasögu í nokkur hundruð eintökum.
Katrín Inga lauk nýverið MFA námi í myndlist frá
School of Visual Arts, New York. Hún lauk BFA
gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2008 og BA-gráðu
úr listfræði við Háskóla Íslands árið 2012 með ritlist
sem aukafag. Katrín Inga var Fulbright stryrkþegi
árið 2012, hlaut styrk úr styrktarsjóði Guðmundu
Andrésdóttur 2013 og hlaut viðurkenningu frá lista-
sjóði Dungal 2012.
Myndlistar Virkni – Virkni Myndlistar
– hvernig sem það er skilgreint –
þá er virknin alltaf til staðar!
Text i Si l ja Pálmadót t ir og Berg l ind Helgadót t ir
Ljósmy nd Katr ín I J Hjördí sardót t ir