STARA - 01.09.2014, Síða 21

STARA - 01.09.2014, Síða 21
Ljósmy ndir e f t ir Rag nhi ldi Jóhanns af sý ning u Ste fáns Jónssonar S T A R A 1.T B L 2 0 14 21 Félagið, verkstæði og vinnustofur þess eru til húsa að Nýlendugötu 15 en í því húsnæði var áður vélsmiðja Kristjáns Gíslasonar. Félagið hefur einnig umsjá með geymsluhúsnæði fyrir félagsmenn að Korpúlfsstöðum. Félagið hefur átt fulltrúa í úthlutunarnefndum s.s. Serra sjóðnum. Félagsmenn telja nú 129. Myndhöggvarafélagið er aðildarfélag í SÍM. Starfsemin í húsinu Starfsemi félagsins er margþætt en stærsti og mikilvægasti hluti þess eru rekstur verkstæð- anna. Verkstæðin að Nýlendugötu eru einstök, það er engin önnur sambærileg aðstaða til handa myndlistarmönnum í Reykjavík og því mikið og ötult starf sem þar er unnið. Verkstæðin eru margvísleg, þar er smíðaverkstæði, járns- míðaverkstæði, log- og rafsuðuaðstaða, eldstæði, brennsluofn og leirrennibekkur. Félagsmenn eru margir hverjir kunnir myndlistarmenn sem hafa starfað að list sinni og framleitt verk in- nan veggja félagsins, ss. Finnbogi Pétursson, Ragnhildur Stefánsdóttir, Hreinn Friðfinns- son, Magnús Pálsson, Steingrímur Eyfjörð, Ólöf Nordal, Ásmundur Ásmundsson, Rúrí, Haral- dur Jónsson, Hannes Lárusson, Hulda Hákon og Hekla Dögg, svo nokkur séu nefnd. Það má því segja að Myndhöggvarafélagið sé hornsteinn faglegrar myndsköpunar á Íslandi. Félagið heldur einnig uppi 10 vinnustofum, í sama húsi, sem leigðar eru út til félagsmanna og einu verkefnarými sem hægt er að leigja í stuttan tíma. Umræðuhópar og leshringir hafa myndast og halda fundi sína á kaffistofunni, sýningarstjórar og skríbentar koma í heimsókn og eiga fundi með listamönnunum, haldnir eru fyrirlestrar um myndlist og tengd málefni og félagið er sam- komustaður þeirra sem starfa við eða hafa áhuga á myndlist. Höggmyndagarðurinn Í nóvember 2010 tók félagið í fóstur frá Reykja- víkurborg lítinn almenningsgarð að Nýlendu- götu 17a. Þar eru afhjúpuð ný verk tvisvar sinnum á ári. Um þessar mundir stendur þar yfir sýningin „Forleikur“ eftir Stefán Jónsson. Á sýningunni sýnir Stefán eitt verk í þremur hlutum: Teiknin- gu, lágmynd og höggmynd. Teikningin verður til þegar torfusnepill er ristur í jarðveginn, honum flett af og eftir situr svöðusár. Lögun torfunnar byggir á arkítektúr sem sjá má í málverki Rafaels, „Brúðkaup Maríu meyjar“. Torfan er hengd upp og er það lágmyndin. Höggmyndin er stílfært líkan af Glerárkirkju á Akureyri. Titill verksins, FORLEIKUR, er valinn vegna tvíræðrar merk- ingar orðsins. www.mhr.is

x

STARA

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: STARA
https://timarit.is/publication/1138

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.