Fréttablaðið - 07.03.2016, Síða 6

Fréttablaðið - 07.03.2016, Síða 6
15% AFNÁM TOLLA VIÐ FÖGNUM AFNÁMI TOLLA KRINGLAN GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA AF ÖLLU HJARTA! Nánari upplýsingar um afnám tolla og þær vörur sem lækka í verði á kringlan.is Dæmi um verðlækkun í Galleri Sautján, Cheap Monday gallabuxur: Dæmi um verðlækkun í Englabörnum, Molo samfella: Verð nú: 9.995 kr. Verð nú: 4.990 kr.Verð áður:10.995 kr. Verð áður: 5.990 kr. Dæmi um verðlækkun í Selected, frakki: Verð nú: 22.990 kr. Verð áður:27.690 kr. félagsmál Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur lagt fram frumvarp til breytingar á lögum um málefni aldraðra, sem lýtur að því að tryggja hjónum, og sambúðarfólki, rétt til að vera áfram samvistum þótt annað þeirra þurfi að dveljast til lang- frama á stofnun fyrir aldraða. Í greinargerð frumvarpsins segir að þessi réttur sé í dag ekki tryggður og því geti öldruð hjón eða sambýlisfólk þurft að slíta samvistum gegn vilja sínum þegar langtímadvöl á stofnun fyrir aldraða er nauðsynleg. Aðskilnaðurinn geti reynst þeim, og aðstandendum, þungbær og því mikið hagsmunamál aldraðra að tryggja rétt þeirra til áframhaldandi sambúðar. Í Danmörku, Noregi og Svíþjóð er slíkur réttur við lýði en er misjafnlega tryggður og útfærður. Réttur aldraðra í Danmörku, Noregi og Svíþjóð til sambúðar við maka eða lífsförunaut á stofnun fyrir aldraða byggist á þeirri grunnforsendu að með því aukist rétt- indi og lífsgæði aldraðra og eru færð fyrir því ýmis rök. „Sömu sjónarmið og urðu til þess að öldruðum pörum í Danmörku, Noregi og Svíþjóð hefur verið veittur réttur til sambúðar á stofnunum fyrir aldraða hljóta einnig að eiga við hérlendis,“ segir í greinargerð frumvarpsins. Að ýmsu er að hyggja áður en hjónum og sambýlisfólki verður veittur réttur til sambúðar á dvalar- og hjúkrunarheimilum hérlendis, og því er ætlaður aðlögunartími til 1. janúar 2018, m.a. til að læra af reynslu grannþjóðanna. Gert er ráð fyrir að rekstraraðilar heimilanna geti sótt fjárstyrk í framkvæmdasjóð aldraðra til þeirra breytinga sem þarf að gera. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formað- ur Félags eldri borgara í Reykjavík, á einnig sæti í öldungaráði Reykjavíkur- borgar. Hún segir ástandið ekki eins slæmt og talið hafði verið. „Við höfum kynnt okkur betur hvernig þetta er í raun og veru. Og það eru miklu fleiri hjónaíbúðir til en fólk veit af. Bara uppi í Seljahlíð eru fimm eða sex og það eru nokkrar á Hrafn- istu og það eru nokkrar á Grund,“ segir Þórunn og bætir við að ástandið sé ekki eins alvarlegt og fullyrt hafi verið fyrir tveimur til þremur árum. Aftur á móti þurfi að gera fólki betur grein fyrir því að úrræðin séu til staðar. „Alveg klárlega,“ segir Þór- unn. Hún segir þó mjög vel hugsan- legt að það vanti enn fleiri hjóna- íbúðir og það sé mikilvægt að halda umræðunni áfram. Það sé ótækt að slíta fólk í sundur eftir 50 til sextíu ára sambúð. „Það er alveg grundvallar- atriði.“ Þórunn segir að það vanti líka sárlega önnur úrræði. „Til dæmis ef veikur maki er heima að þá einangrast sá fríski sem er að annast þann veika. Og þarna veit enginn hvað er í gangi. Þarna er gríðarleg þörf á að hvíla þann maka sem er frískur. Þetta vitum við heilmikið um og verðum vör við nánast vikulega.“ svavar@frettabladid.is / jonhakon@frettabladid.is Tryggt verði að aldraðir geti verið saman Þingmaður VG vill tryggja eldri hjónum og sambúðarfólki rétt til að halda áfram samvistum þótt annað þurfi að dveljast á stofnun fyrir aldraða. Formaður Félags eldri borgara segir fleiri hjónaíbúðir í boði en fólk veit af. Mögulega megi fjölga íbúðunum enn frekar. Lögreglumenn lentu í ryskingum við aðgerðasinna í Tírana-garðinum í Albaníu í gær. Verið var að mótmæla byggingaráformum stjórnvalda, en mikill fjöldi trjáa í garðinum verður felldur til þess að áformin nái fram að ganga. Fréttablaðið/EPa menntamál Ólína E. Thoroddsen hefur verið ráðin skólastjóri Grunn- skóla Seltjarnarness frá 1. júní 2016, að því er fram kemur á Facebook-síðu Seltjarnarnesbæjar. Ólína er sögð flestum Seltirningum að góðu kunn þar sem hún hafi starfað við skólann síðastliðin 36 ár, þar af sem aðstoðarskólastjóri síðustu níu ár. Hún hefur leyst skólastjóra af um skeið.  – óká Nýr skólastjóri á Nesinu Bretland „Við myndum sjá fram á fjölda ára þar sem afar erfiðar samn- ingaviðræður stæðu yfir, og það yrði mjög erfitt fyrir Evrópusambandið. Vegna þessa myndum við búa við mikið óöryggi sem myndi virka eins og eitur á efnahagslífið í Bretlandi, Evr- ópu og í raun heiminum öllum,“ sagði Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, í viðtali við BBC í gær. Til stendur að Bretar kjósi um hvort þeir yfirgefi Evrópusambandið eða ekki þann 23. júní næstkomandi. Býsna skiptar skoðanir eru um hvort Bretar skulu slíta sambandinu og hefur David Cameron, forsætisráð- herra landsins, ferðast um landið og hvatt fólk til að kjósa gegn tillögu um útgöngu Breta. Flokksbróðir hans og borgarstjóri Lundúna, Boris Johnson, aðhyllist hins vegar úrsögn Breta. – ga Eitur fyrir efnahagslífið  Aðgerðasinnar í áflogum við lögreglumenn Ólína E. thoroddsen, nýráðin skólastjóri á Seltjarnarnesi Við höfum kynnt okkur betur hvernig þetta er í raun og veru. Og það eru miklu fleiri hjóna- íbúðir til en fólk veit af. Þórunn Sveinbjörns- dóttir formaður Félags eldri borgara 7 . m a r s 2 0 1 6 m á n U d a g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 0 7 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 B 0 -5 2 B 4 1 8 B 0 -5 1 7 8 1 8 B 0 -5 0 3 C 1 8 B 0 -4 F 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.