Fréttablaðið - 07.03.2016, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 07.03.2016, Blaðsíða 46
Að takast á við karlmennskuna Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins boðar til örráðstefnu um krabbamein í blöðruhálskirtli þriðjudaginn 8. mars 2016 kl. 16:30-18:00 í húsi félagsins að Skógarhlíð 8 16:30 Kristján Oddsson forstjóri Krabbameinsfélags Íslands setur ráðstefnuna 16:35 Á ég að fara í PSA-mælingu? Rafn Hilmarsson þvagfæraskurðlæknir 16:50 Endurbætt greining krabbameins í blöðruhálskirtli Martin Eklund dósent við Karolinska Institutet 17:10 Ákvörðunartæki til aðstoðar við val á meðferð Ragna Margrét Brynjarsdóttir BS í sálfræði og Heiðdís Valdimarsdóttir sálfræðingur 17:25 Hvað tekur við eftir greiningu? Hólmfríður Traustadóttir hjúkrunarfræðingur 17:40 Reynslusaga Helgi Pétursson 17:50 Fyrirspurnir og umræður Fundarstjóri: Kolbeinn Árnason Allir velkomnir – ókeypis aðgangur Ég er frekar mikið að spila úti um allt með mismunandi fólki og á mismundandi stöðum svo dag- arnir snúast um æfingar og gigg, ég er í skóla líka svo það er dálítið púsl að láta allt ganga upp. En þetta mallar einhvern veginn,“ segir Anna Gréta Sigurðardóttir djasspíanisti, sem var valin bjartasta vonin í djass- og blús- flokki á Íslensku tónlistarverðlaun- unum 2015 og stundar nú nám við Kungliga musikhögskolan í Stokk- hólmi. Nýlega fékk hún að upplifa lands- byggð Svíþjóðar í vetrargallanum því hún ferðaðist í tvær vikur um Norrbotten-svæðið með Norrbotten Big Band, einni bestu stórsveit þar í landi. „Það var æðislegt – en það var kalt. Fór í 17 gráður í mínus,“ segir hún. „Við fluttum tónlist sem var skrifuð af ungu fólki á svæðinu og útsett af big-bandinu. Leið bandsins til að ná til yngra fólks.“ Hún kveðst hafa komist í ferðina gegnum Håkan Broström, einn af fremstu saxófón- leikurum Svíþjóðar. „Ég var að spila með Håkan í hljómsveitinni hans og í kvartettum og hann spilar líka með Norrbotten Big Band ásamt fleiri frá- bærum sólóistum.“ Anna Gréta flutti til Stokkhólms undir haust 2014 og er ánægð. Spurð hvort hún hafi kunnað sænsku þegar hún kom út svarar hún: „Nei, ég fékk að læra hana hér. Það voru svona tveir mánuðir í myrkrinu og svo opnaðist allt skyndilega og ég fór að skilja. Mér finnst Stokkhólmur æðisleg borg og það eru flottir djasstónlistarmenn hérna. Fólk er líka mjög meðvitað um jafnrétti í bransanum hér, án þess að ég ætli að fara að gagnrýna Ísland.“ Hún á eitt og hálft ár eftir í skólanum en hyggst búa áfram í Stokkhólmi og halda áfram að spila. „Svo vil ég gera meira í eigin nafni, setja saman eigin bönd og semja.“ Spurð hvort fleiri ferðalög séu á döfinni svarar hún: „Ekki langir túrar en ég og söngkonan Stina Agustsdottir, sem býr hérna, erum með verkefni sem heitir Björkologi, það er tónlist Bjarkar í okkar eigin djass- útsetningum, og við ætlum að túra um Svíþjóð í mars og apríl. Svo ætlar pabbi, Sigurður Flosason, að koma í júní og þá tökum við einhver sumar- gigg saman.“ gun@frettabladid.is Vil gera meira í eigin nafni, stofna bönd og semja Anna Gréta Sigurðardóttir, sem var valin bjartasta vonin í djassi og blús á Íslandi 2015, er nýkomin úr tón- leikaferð um sænska landsbyggð með einni bestu stórsveit Svíþjóðar, Norrbotten Big Band. Anna Gréta hefur nóg að gera í spilamennskunni í Svíþjóð. Mynd/ Kenth WånGKlev LeikList skugga-Baldur HHHHH Studio hrdinu og listasafn Reykja- víkur (hafnarhús) handrit: Kamila Polívková og Tera Hof höfundur sögu: Sjón leikstjórn: Kamila Polívková leikur: Tera Hof Sviðsmynd: Antonín Silar Búningar: Zuzana Formánková tónlist: Ryan van Kriedt og Jón Sæmundur Auðarson vídeo og grafík: Jón Sæmundur Auðarsson og Antonin Silar Sýningin er á ensku Um niðdimma nótt leggur grasa- læknir unga konu í ómerkta gröf. Á snævi þakinni heiði læðist byssu- maður á eftir tófu sem lítur út eins og steinn. Tékkneski sviðslistahóp- urinn Studio Hrdinu frumsýndi sína útgáfu af Skugga-Baldri eftir Sjón í Listasafni Reykjavíkur við Tryggva- götu síðastliðinn föstudag. Sjón er eitt okkar allra besta skáld. Sem skáldsaga er Skugga- Baldur knöpp í formi en sagan um séra Baldur, grasalækninn Friðrik og Abba ristir djúpt. Í dulargervi rómantíkurinnar fjallar skáldið um áleitnar siðferðislegar spurningar og skoðar samband mannsins við nátt- úruna. Hér er ort um líf og dauða, alheiminn og nærsveitir, líkama og sál. Úrvinnsla Studio Hrdinu á texta Sjóns er á mörkum frásagnar og svið- setningar en handritið er í höndum leikstjóra og leikkonunnar. Það verkefni vinna þær nokkuð vel og leggja áherslu á kjarna sögunnar frekar en smáatriði. Tera Hof er eins konar sögumaður og leikur einnig öll hlutverkin. Hennar helsti styrkur er raddbeytingin sem er skýr og spennandi en hún er líka lipur á sviði. Hún skilar persónunum ágæt- lega en hér fer mikill tími í það að skipta um búninga, þoka fram- vindu atburða yfir í næstu atriði og gæta þess að tæknin virki. Teru tekst best upp þegar hún fær tæki- færi til að rýna í persónurnar og þar nýtur persóna séra Baldurs sín best. Feigðarför hans á eftir tófunni er nefnilega ferðalag hans inn í sjálfan sig og sú saga öðlast líf í þessari svið- setningu. Leikstjórnin er í höndum Kamilu Polívková og á hana verða að skrifast ótalin búningaskipti sem slæva framvinduna og drepa niður spennu. Sýninguna skortir skýrari hraðabreytingar og þéttari fram- vinda. Aftur á móti eru lítil en áhrifarík augnablik víða að finna í sýningunni; snjókorn falla ljúflega til jarðar, grasaseiði er bruggað og þögnin blómstrar. Sviðsmyndin er stílhrein en stór rammi svífur yfir sviðinu og í einu horninu stendur trékassi sem geymir ýmsa leyndar- dóma. Fagurfræði Antonín Silar er skýr og sómir sér vel í því rými sem gallerí Hafnarhússins hefur að bjóða. Lýsingin sömuleiðis en eng- inn er skráður fyrir þeirri hönnun. Búningar Zuzanu Formánková byggja frekar á táknmyndum heldur en natúralísma og stundum heppn- ast vel til, þá sérstaklega með stóru loðkápunum. Tæknivinnslan skapar dýpt í sýningunni og leiðir áhorfendur í óvænt ferðalög um stræti Reykja- víkur. Tæknilegir örðugleikar þjök- uðu flutninginn í byrjun en vanda- málið var leyst faglega og rösklega. Jón Sæmundur Auðarsson og Ant- onin Silar sjá um myndvinnslu og grafík sem er bæði falleg og frumleg og lyftir mjög anda sýningarinnar. Tónlistina sömdu Ryan van Kriedt og Jón Sæmundur Auðarson en þrátt fyrir góða og kraftmikla spretti þá hefði hún mátt vera meira afgerandi. Í lokaatriðinu er slegin tónn sem hefði átt að hljóma alla sýninguna. Tera í gervi Baldurs kastar af sér hinu mannlega eðli og klæðir sig í hið dýrslega, mannveran og nátt- úran verða eitt. Ópið nísti inn að beini. Skugga-Baldur er áhugaverð tilraun til að færa magnað skáld- verk í nýjan og sviðsvænan búning. Tilraunin heppnast misjafnlega vel en lítil einstök augnablik og mynd- vinnslan sitja eftir í minninu, líkt og litla bréfið sem fylgdi með heim- leiðis í vasanum. Sigríður Jónsdóttir Niðurstaða: Tilraunina skortir skýrari ramma og sprengikraft. Kjarni heimsins tereza hof, leikkona fer með öll hlutverkin í sýningunni Skugga-Baldur í hafnar- húsinu. FRéttABlAðið/eRniR 7 . m a r s 2 0 1 6 m Á N u D a G u r22 m e N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð menning 0 7 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 B 0 -5 2 B 4 1 8 B 0 -5 1 7 8 1 8 B 0 -5 0 3 C 1 8 B 0 -4 F 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.