Fréttablaðið - 07.03.2016, Síða 46
Að takast á við
karlmennskuna
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins boðar
til örráðstefnu um krabbamein í blöðruhálskirtli
þriðjudaginn 8. mars 2016 kl. 16:30-18:00
í húsi félagsins að Skógarhlíð 8
16:30 Kristján Oddsson forstjóri
Krabbameinsfélags Íslands setur ráðstefnuna
16:35 Á ég að fara í PSA-mælingu?
Rafn Hilmarsson þvagfæraskurðlæknir
16:50 Endurbætt greining
krabbameins í blöðruhálskirtli
Martin Eklund dósent við Karolinska Institutet
17:10 Ákvörðunartæki til aðstoðar við
val á meðferð
Ragna Margrét Brynjarsdóttir BS í sálfræði
og Heiðdís Valdimarsdóttir sálfræðingur
17:25 Hvað tekur við eftir greiningu?
Hólmfríður Traustadóttir hjúkrunarfræðingur
17:40 Reynslusaga
Helgi Pétursson
17:50 Fyrirspurnir og umræður
Fundarstjóri: Kolbeinn Árnason
Allir velkomnir – ókeypis aðgangur
Ég er frekar mikið að spila úti um allt með mismunandi fólki og á mismundandi stöðum svo dag-
arnir snúast um æfingar og gigg, ég er
í skóla líka svo það er dálítið púsl að
láta allt ganga upp. En þetta mallar
einhvern veginn,“ segir Anna Gréta
Sigurðardóttir djasspíanisti, sem var
valin bjartasta vonin í djass- og blús-
flokki á Íslensku tónlistarverðlaun-
unum 2015 og stundar nú nám við
Kungliga musikhögskolan í Stokk-
hólmi.
Nýlega fékk hún að upplifa lands-
byggð Svíþjóðar í vetrargallanum
því hún ferðaðist í tvær vikur um
Norrbotten-svæðið með Norrbotten
Big Band, einni bestu stórsveit þar í
landi. „Það var æðislegt – en það var
kalt. Fór í 17 gráður í mínus,“ segir
hún. „Við fluttum tónlist sem var
skrifuð af ungu fólki á svæðinu og
útsett af big-bandinu. Leið bandsins
til að ná til yngra fólks.“ Hún kveðst
hafa komist í ferðina gegnum Håkan
Broström, einn af fremstu saxófón-
leikurum Svíþjóðar. „Ég var að spila
með Håkan í hljómsveitinni hans og
í kvartettum og hann spilar líka með
Norrbotten Big Band ásamt fleiri frá-
bærum sólóistum.“
Anna Gréta flutti til Stokkhólms
undir haust 2014 og er ánægð. Spurð
hvort hún hafi kunnað sænsku þegar
hún kom út svarar hún: „Nei, ég fékk
að læra hana hér. Það voru svona tveir
mánuðir í myrkrinu og svo opnaðist
allt skyndilega og ég fór að skilja. Mér
finnst Stokkhólmur æðisleg borg og
það eru flottir djasstónlistarmenn
hérna. Fólk er líka mjög meðvitað um
jafnrétti í bransanum hér, án þess að ég
ætli að fara að gagnrýna Ísland.“
Hún á eitt og hálft ár eftir í skólanum
en hyggst búa áfram í Stokkhólmi og
halda áfram að spila. „Svo vil ég gera
meira í eigin nafni, setja saman eigin
bönd og semja.“ Spurð hvort fleiri
ferðalög séu á döfinni svarar hún: „Ekki
langir túrar en ég og söngkonan Stina
Agustsdottir, sem býr hérna, erum með
verkefni sem heitir Björkologi, það
er tónlist Bjarkar í okkar eigin djass-
útsetningum, og við ætlum að túra
um Svíþjóð í mars og apríl. Svo ætlar
pabbi, Sigurður Flosason, að koma í
júní og þá tökum við einhver sumar-
gigg saman.“ gun@frettabladid.is
Vil gera meira í eigin nafni, stofna bönd og semja
Anna Gréta Sigurðardóttir, sem var valin bjartasta vonin í djassi og blús á Íslandi 2015, er nýkomin úr tón-
leikaferð um sænska landsbyggð með einni bestu stórsveit Svíþjóðar, Norrbotten Big Band.
Anna Gréta hefur nóg að gera í spilamennskunni í Svíþjóð. Mynd/ Kenth WånGKlev
LeikList
skugga-Baldur
HHHHH
Studio hrdinu og listasafn Reykja-
víkur (hafnarhús)
handrit: Kamila Polívková og Tera
Hof
höfundur sögu: Sjón
leikstjórn: Kamila Polívková
leikur: Tera Hof
Sviðsmynd: Antonín Silar
Búningar: Zuzana Formánková
tónlist: Ryan van Kriedt og Jón
Sæmundur Auðarson
vídeo og grafík: Jón Sæmundur
Auðarsson og Antonin Silar
Sýningin er á ensku
Um niðdimma nótt leggur grasa-
læknir unga konu í ómerkta gröf.
Á snævi þakinni heiði læðist byssu-
maður á eftir tófu sem lítur út eins
og steinn. Tékkneski sviðslistahóp-
urinn Studio Hrdinu frumsýndi sína
útgáfu af Skugga-Baldri eftir Sjón í
Listasafni Reykjavíkur við Tryggva-
götu síðastliðinn föstudag.
Sjón er eitt okkar allra besta
skáld. Sem skáldsaga er Skugga-
Baldur knöpp í formi en sagan um
séra Baldur, grasalækninn Friðrik
og Abba ristir djúpt. Í dulargervi
rómantíkurinnar fjallar skáldið um
áleitnar siðferðislegar spurningar og
skoðar samband mannsins við nátt-
úruna. Hér er ort um líf og dauða,
alheiminn og nærsveitir, líkama og
sál.
Úrvinnsla Studio Hrdinu á texta
Sjóns er á mörkum frásagnar og svið-
setningar en handritið er í höndum
leikstjóra og leikkonunnar. Það
verkefni vinna þær nokkuð vel og
leggja áherslu á kjarna sögunnar
frekar en smáatriði. Tera Hof er
eins konar sögumaður og leikur
einnig öll hlutverkin. Hennar helsti
styrkur er raddbeytingin sem er skýr
og spennandi en hún er líka lipur á
sviði. Hún skilar persónunum ágæt-
lega en hér fer mikill tími í það að
skipta um búninga, þoka fram-
vindu atburða yfir í næstu atriði
og gæta þess að tæknin virki. Teru
tekst best upp þegar hún fær tæki-
færi til að rýna í persónurnar og þar
nýtur persóna séra Baldurs sín best.
Feigðarför hans á eftir tófunni er
nefnilega ferðalag hans inn í sjálfan
sig og sú saga öðlast líf í þessari svið-
setningu.
Leikstjórnin er í höndum Kamilu
Polívková og á hana verða að
skrifast ótalin búningaskipti sem
slæva framvinduna og drepa niður
spennu. Sýninguna skortir skýrari
hraðabreytingar og þéttari fram-
vinda. Aftur á móti eru lítil en
áhrifarík augnablik víða að finna í
sýningunni; snjókorn falla ljúflega
til jarðar, grasaseiði er bruggað og
þögnin blómstrar. Sviðsmyndin er
stílhrein en stór rammi svífur yfir
sviðinu og í einu horninu stendur
trékassi sem geymir ýmsa leyndar-
dóma. Fagurfræði Antonín Silar
er skýr og sómir sér vel í því rými
sem gallerí Hafnarhússins hefur að
bjóða. Lýsingin sömuleiðis en eng-
inn er skráður fyrir þeirri hönnun.
Búningar Zuzanu Formánková
byggja frekar á táknmyndum heldur
en natúralísma og stundum heppn-
ast vel til, þá sérstaklega með stóru
loðkápunum.
Tæknivinnslan skapar dýpt í
sýningunni og leiðir áhorfendur í
óvænt ferðalög um stræti Reykja-
víkur. Tæknilegir örðugleikar þjök-
uðu flutninginn í byrjun en vanda-
málið var leyst faglega og rösklega.
Jón Sæmundur Auðarsson og Ant-
onin Silar sjá um myndvinnslu og
grafík sem er bæði falleg og frumleg
og lyftir mjög anda sýningarinnar.
Tónlistina sömdu Ryan van Kriedt
og Jón Sæmundur Auðarson en þrátt
fyrir góða og kraftmikla spretti þá
hefði hún mátt vera meira afgerandi.
Í lokaatriðinu er slegin tónn sem
hefði átt að hljóma alla sýninguna.
Tera í gervi Baldurs kastar af sér
hinu mannlega eðli og klæðir sig í
hið dýrslega, mannveran og nátt-
úran verða eitt. Ópið nísti inn að
beini. Skugga-Baldur er áhugaverð
tilraun til að færa magnað skáld-
verk í nýjan og sviðsvænan búning.
Tilraunin heppnast misjafnlega vel
en lítil einstök augnablik og mynd-
vinnslan sitja eftir í minninu, líkt
og litla bréfið sem fylgdi með heim-
leiðis í vasanum.
Sigríður Jónsdóttir
Niðurstaða: Tilraunina skortir
skýrari ramma og sprengikraft.
Kjarni heimsins
tereza hof, leikkona fer með öll hlutverkin í sýningunni Skugga-Baldur í hafnar-
húsinu. FRéttABlAðið/eRniR
7 . m a r s 2 0 1 6 m Á N u D a G u r22 m e N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð
menning
0
7
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:4
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
B
0
-5
2
B
4
1
8
B
0
-5
1
7
8
1
8
B
0
-5
0
3
C
1
8
B
0
-4
F
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K