Fréttablaðið - 07.03.2016, Page 13
advania.is/fermingar
Fáðu útrás fyrir litagleðina
Urbanears Plaan - ýmsir litir
Verð: 9.590 kr.
Guðrúnartúni 10, Reykjavík og Tryggvabraut 10, Akureyri
Opið mánudaga til föstudaga frá 8 til 17
Fermingarpakkar
slá í gegnsem
Léur og flour
Canvas leður bakpoki
Verð: 12.990 kr.
Hagkvæm fartölva
Dell Inspiron 3551
Verð: 69.990 kr.
Sveigjanleg far- og spjaldtölva
Dell Inspiron 7359 - i7 Skylake
Verð: 189.990 kr.
Frábær hljómur
Jabra Move þráðlaus
Verð: 18.990 kr.
Lé og falleg fartölva
Dell Inspiron 5559 - Touch i5 Skylake
Verð: 149.990 kr.
Snorri Óskarsson, bókstafs-trúarmaður kenndur við Betel, var rekinn úr kennara-starfi á Akureyri vegna ítrek-aðra skrifa sinna á bloggsíðu
um að samkynhneigð sé synd sem
veki reiði Guðs og leiði til dauða.
Hann vann mál gegn Akureyrarbæ
fyrir Hæstarétti nú á dögunum, upp-
sögn hans var dæmd ólögmæt. Hann
ætlar að sækja bætur til bæjarins,
Nefndar hafa verið 12 milljónir.
Baráttan um þyrnikórónuna
Íslensk umræða er oft barátta um
þyrnikórónuna, kapphlaup á kross-
inn. Píslarvætti þykir einatt ákjósan-
leg vígstaða – eins og við sáum til
dæmis á dögunum þegar Ásmundur
Friðriksson viðraði árásargjarnar
skoðanir á flóttafólki og áður en
nokkur hafði æmt var hann búinn
að rífa af sér hjálminn og setja upp
þyrnikórónu hins ofsótta manns í
umræðunni. Hún fór honum ekki
mjög vel.
Mál Snorra í Betel þykir meðal
annars snúast um það að maður geti
viðrað umdeildar skoðanir sínar án
þess að eiga það á hættu að missa
starf sitt og lífsviðurværi. Gott og vel.
Það er mikilvægt sjónarmið í opnu
lýðræðissamfélagi. En það jafn-
gildir ekki því að maður geti viðrað
umdeildar skoðanir án þess að það
hafi afleiðingar. Við berum alltaf
ábyrgð á orðum okkar. Við þurfum
alltaf sjálf að súpa seyðið af því sem
við segjum og gerum. Það eru ekki
mannréttindi að vera laus við það:
hafi maður sagt eitthvað fíflalegt
verður maður að una því að vera álit-
inn fífl. Segi maður eitthvað meiðandi
býr maður við það að hafa meitt aðra
manneskju með orðum.
Maður skilur píslarvættisblæti bók-
stafstrúarmannsins en það er samt
ekki hlaupið að því að sjá Snorra í
Betel fyrir sér með þyrnikórónuna.
Og því eru satt að segja takmörk sett
hversu hversu mikla samúð hægt er að
sýna þeim málstað hans að mega kalla
eld og brennistein yfir samborgara
sína vegna kynhneigðar í krafti ein-
strengingslegra túlkana á fornum
bókstaf. Orðbragð af því tagi sem hann
hefur tamið sér er ein tegund ofbeldis.
Með árásum sínum á saklaust fólk
boðar Snorri í Betel ekki fagnaðarer-
indið – heldur ófagnaðarerindið. Hann
er, eins og segir í einni elstu heimild
um íslenska spaugsemi, í Lárentíus
sögu biskups frá 14. öld, „fagnaðarlaus
kompán“.
Kennslustarfið
Sum störf fylgja manni alltaf. Það er
hægt að vera útfararstjóri á virkum
og þungarokkari um helgar. Það væri
líka hægt að vera trésmiður á virkum
en predikari um helgar í söfnuði sem
tryði því að mannkynið væri komnir
af kartöflum. Hversu fáránlegar sem
kenningar smiðsins kynnu að virðast
almenningi myndi ekki hvarfla að
neinum að gagnrýna smíðarnar í ljósi
trúarsetninganna. Við erum upp til
hópa umburðarlynd í trúarefnum, til
allrar hamingju. Við vitum flest að það
er tilgangslaust að rökræða tilvist Guðs
– raunar ámóta viskulegt og að fetta
fingur út í kynhneigð annars fólks.
Það er sem sé alveg hægt að gegna
ýmsum hlutverkum – ekki síst hér á
landi þar sem við þurfum hvert og
eitt að vera að minnsta kosti fimm
ólíkar manneskjur til að deilast
nógu víða og anna skyldum millj-
ónasamfélagsins. En um sum störf
gegnir samt sérstöku máli. Til dæmis
kennarastarfið. Okkur er ekki sama
um það hvers konar fólk velst í þau
störf. Sjálfur á maður minningar
um ýmis skringimenni í þessari
stétt sem virtust einbeittir í þeim
ásetningi að gera mann að auðnu-
leysingja – en þó einkum um hina
kennarana sem til allrar hamingju
báru gæfu til að glæða með með
manni þekkingarþrá og lífsgleði.
Þeir kennarar voru góðir í sínu
starfi – en líka góðar manneskjur. Og
það er eiginlega það sem við viljum
meðal annars að kennarar barnanna
okkar séu: góðar manneskjur sem
efli heilbrigð viðhorf og beini öllu
þessu fjöri í farsælar áttir.
Það er hægt að vera kennari á
virkum og rokkari um helgar, ekkert
mál. En það er ekki hægt að vera
kennari á virkum og mannhatari um
helgar.
Það er ekki hægt að skrifa hatur-
spistla um fólk og segja svo: „Ég var
ekki kennari á meðan ég skrifaði
þetta“. Þurfi maður á því að halda
að hata annað fólk þarf maður að
vera gegnheill í því; þar dugir engin
hálfvelgja, maður hefur þar með sagt
sig úr lögum við samfélag fólks sem
ekki lætur hatur ráða för. Sennilega
átti ekki að reka Snorra úr kenn-
arastarfi eins og gert var, en það er
ekki þar með sagt að hann sé vel
til starfsins fallinn. Það er eitthvað
brogað við að sitja við blogg og spúa
úr sér hatri um annað fólk – jafnvel
ástvini nemenda, jafnvel nemendur
sjálfa með öllum þeim lífshættulega
sjálfsefa sem fylgir vaknandi vitund
um samkynhneigð – og vera svo bara
mættur að kenna dönsku. Der var en
bager på Nörregade …
Snorri virðist telja að skapari
himins og jarðar – sem leit yfir
sköpunarverk sitt á sjöunda degi og
þótti það „harla gott“ – sé ósáttur við
það sköpunarverk sitt sem laðast
að eigin kyni. Hann vitnar í bókstaf
í biblíunni, stífan af vandlætingu,
gerir kynhegðun að þungamiðju
hugmynda drottins um æskilegt
mannlíf. Ég er ekki biblíufróður eins
og Snorri og nenni ekki að rökræða
löngu dauð siðaboð úr löngu dauð-
um samfélögum. Sjálfur man ég ekki
betur en að sögurnar af Kristi snúist
meira og minna um að hann sé að
skaprauna bókstafstrúarmönnum
og vinna kærleiksverk á alþýðufólki.
Svo er ein saga um áhyggjur bók-
stafstrúarmanna af kynlífi annarra.
Það er sagan um bersyndugu
konuna, sem við hér á Íslandi notum
að vísu oftast til að afsaka fjárglæfra-
menn. Þeir standa þarna bálreiðir
handhafar vilja Guðs og ætla að
grýta konu fyrir að stunda kynlíf. Og
Kristur ritar í sandinn: „Sá yðar sem
syndlaus er kasti fyrsta steininum.“
Snorri mætti velta þessari sögu fyrir
sér næst þegar hann sest niður við
tölvuna til að boða ófagnaðarerindið
og handleikur fyrsta steininn.
Ófagnaðarerindið
Guðmundur
Andri Thorsson
rithöfundur
Í dag
En það er
ekki hægt að
vera kennari
á virkum og
mannhatari
um helgar.
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13M Á n u d a g u R 7 . M a R s 2 0 1 6
0
7
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:4
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
B
0
-3
E
F
4
1
8
B
0
-3
D
B
8
1
8
B
0
-3
C
7
C
1
8
B
0
-3
B
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K