Fréttablaðið - 07.03.2016, Qupperneq 18
Afi gerði þennan
stól árið 1970,
bara í einu eintaki fyrir sig
sjálfan og var alltaf mjög
stoltur af honum. Hann
var yfir sig ánægður með
að það ætti að framleiða
stólinn en hann féll því
miður frá rétt áður en
fyrstu stólarnir komu
tilbúnir, núna í janúar.
Annars var hann alltaf að.
Hann smíðaði og fylgdist
með fram á síðasta dag.
Helga Erlingsdóttir
Hófurinn eftir Jóhann Ingimarsson í endurgerð Frumkvöðlasetursins og Bólstursmiðjunnar. mynd/BólstursmIðJan
„Það var alltaf gamall draumur
hjá afa að láta framleiða Hófinn.
Fyrir nokkrum árum fór hann
sjálfur með stólinn á verkstæði
þar sem hann var tekinn í sundur
en það reyndist of dýrt að smíða
mótin. Fyrir þremur árum var
svo loks drifið í að kanna þetta
betur með honum og sýndi Frum-
kvöðlasetrið í Borgar nesi verk-
efninu strax áhuga og steypir
grindina í trefjaplast. Bólstur-
smiðjan sér um að bólstra stól-
inn,“ segir Helga Erlingsdóttir,
barnabarn Jóhanns Ingimars-
sonar húsgagnasmiðs á Akur-
eyri, eða Nóa eins og hann var
ávallt kallaður, en á komandi
HönnunarMars verður endur-
gerð af hægindastólnum Hófnum
eftir Nóa kynnt í Hafnarhúsinu.
Nói stundaði nám í húsgagna-
smíði og síðan hönnunarnám í
Kaupmannahöfn. Hann stofn-
aði húsgagnaverksmiðjuna Val-
björk hf. á Akureyri, ásamt fleir-
um, árið 1952 og sá meðal annars
um að innrétta Hótel Loftleið-
ir, Hótel Esju og skemmtistað-
ina Röðul og Þórscafé. Eftir að
Valbjörk hætti árið 1970 stofn-
aði Nói húsgagnaverslun með
sama nafni sem hann rak um
langt árabil og síðar aðra sem
bar nafnið Örkin hans Nóa.
Helga segir afa sinn alltaf
hafa haft sérstakt dálæti á Hófn-
um og hún líti á það sem heið-
ur og virðingarvott við gamla
manninn að endurgera stólinn
en Nói lést í janúar síðastliðnum.
„Afi gerði þennan stól árið
1970, bara í einu eintaki fyrir
sig sjálfan, og var alltaf mjög
stoltur af honum. Hann var yfir
sig ánægður með að það ætti að
framleiða stólinn en hann féll
því miður frá rétt áður en fyrstu
stólarnir komu tilbúnir núna í
janúar. Annars var hann alltaf
að. Hann smíðaði og fylgdist með
fram á síðasta dag,“ segir Helga.
Hún segir endurgerðina sérstak-
lega ánægjulega í ljósi áhrifa
Nóa á framþróun í íslenskri hús-
gagnasögu.
„Hans þáttur í sögu húsgagna-
hönnunar og framleiðslu á Ís-
landi er stór. Ég á gamlan Val-
bjarkarbækling heima sem er
mjög gaman að fletta því þetta
eru allt húsgögn sem ættu vel við
í dag.“
Hófurinn verður sýndur á
HönnunarMars í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhúsi. Hönn-
unarMars fer fram dagana 10. til
13. mars.
nánar má forvitnast um Hófinn á
síðunni www.hofurinn.is
nói sjálfur í stólnum.
maría sigurjónsdóttir og Þorsteinn máni Árnason hjá Frumkvöðlasetrinu í Borgar-
nesi framleiða stólinn.
Hófur Nóa
eNdurgerður
Frumkvöðlasetrið í Borgarnesi og Bólstursmiðjan hafa endurgert
hægindastólinn Hófinn eftir Jóhann Ingimundarson, Nóa, frá árinu
1970. Stóllinn verður kynntur á HönnunarMars.
Yfirhafnir
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið
Vertu vinur á
Facebook
Laugavegi 63 • S: 551 4422
www.l
axdal.
is
Skoðið laxdal.is
Fisléttir
Dúnjakkar
og vattjakkar
Litaúrval
hollur kostur á 5 mín.
Plokkfiskur
7 . m a r s 2 0 1 6 m Á N U D a G U r2 F ó l k ∙ k y N N i N G a r b l a ð ∙ X X X X X X X X ∙ k y N N i N G a r b l a ð v i ð b U r ð i r
0
7
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:4
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
B
0
-4
8
D
4
1
8
B
0
-4
7
9
8
1
8
B
0
-4
6
5
C
1
8
B
0
-4
5
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K