Fréttablaðið - 07.03.2016, Síða 56

Fréttablaðið - 07.03.2016, Síða 56
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Hauks Viðars Alfreðssonar Bakþankar Við göngum hreint til verks og í áratugi höfum við lagt áherslu á hreina framleiðslu- tækni. 90% af okkar pappír kemur úr nytjaskógum. Rekkjan ehf ≤≥ Ármúla 44 ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 H E I L S U R Ú M ALLAR AÐRAR DROTTNINGAR Í QUEEN SIZE (153X203 cm) MEÐ 20% AFSLÆTTI A R G H !!! 0 70 31 6 #2 50% AFSLÁTTUR! Drottning vikunnar King Koil Fondness Verð áður 211.774 kr. VERÐ NÚ 105.887 kr. (Queen Size 153x203 cm) Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Kvöld eitt í lok janúar stóð ég kaldur og blautur í hunds­lappadrífu fyrir utan húsið mitt og drap í síðustu sígarettu dagsins. Ég kjagaði upp tröppurnar og fór úr jakkanum mínum um leið og ég gekk inn í íbúðina. Það var hræðileg lykt af jakkanum — þegar maður reykir í úrkomu magnast reykingalyktin einhvern veginn upp. Ég fór inn á bað, þvoði mér um hendur og burstaði tennur. Þegar ég var búinn að því tók ég eftir því að ég var móður. Ó, nei! Sonur minn, sem kemur í heiminn eftir fimm daga, mun eiga pabba sem nennir aldrei að leika við hann og lyktar eins og rusl. Þetta gengur ekki lengur. Nú hættir þetta fyrir fullt og allt. Bless hamborgarar, pitsa og fröllur. Bless kleinuhringir, snúðar og vínarbrauð. Bless nammi­ bar á laugardögum. Bless pínulitla kúla í filternum á svörtum Winston sem breytir sígarettunni minni í After Eight. Nú á ég fimm vikna dreng sem er um sex kíló. Ég er sjálfur búinn að missa þyngd hans framan af vömbinni en það sér það enginn. Dropi í hafið og allt það. En mér líður miklu betur. Ég er meira að segja alveg búinn að borða hamborgara og ís. Bara ekki átján hamborgara og vaskafat af ís. Þar liggur munurinn. Ég viðurkenni það samt fúslega að þetta getur verið hundleiðinlegt. Að sitja skömmustulegur á varamanna­ bekknum á meðan vinnufélag­ arnir gúffa í sig tertum í fimmtudags­ kaffinu. Að fara ekki á Nonnabita í hádeginu heldur telja ofan í mig fetaostskubba með Tupperware–sal­ atinu mínu. Að horfa á bíómynd án þess að gleypa heilan Pringles – stauk með pappa og loki. Barasta ekki neitt skemmtilegt. En ég er 36 ára og ég ætla að mæta í 36 ára afmæli sonar míns. Þá hreinlega neyðist ég til að byrja að borða leiðinlega matinn. Leiðinlegi maturinn 0 7 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 B 0 -2 6 4 4 1 8 B 0 -2 5 0 8 1 8 B 0 -2 3 C C 1 8 B 0 -2 2 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 5 6 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.