Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 07.06.2010, Page 3

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 07.06.2010, Page 3
3 Reykjanesbraut (41), hringtorg við Grænás 10-041 Vegagerðin og Reykjanesbær óska eftir tilboðum í gerð hringtorgs ásamt aðlögun aðliggjandi vega á gatnamótum Reykjanesbrautar og Grænásvegar / Grænásbrautar í Reykjanesbæ. Framkvæmdin innifelur einnig að annast tilgreinda verkþætti við aðlögun eða flutning núverandi lagna s.s. ljósleiðara-, háspennu-, lágspennu- og sjónvarpsstrengja í vegunum í samráði við veitur ásamt nauðsynlegri landmótun. Helstu magntölur veghluta eru: Skering í laus jarðlög . . . . . . . . . . . . . 1.000 m3 Fylling og fláafleygar . . . . . . . . . . . . . 1.100 m3 Burðarlag . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 3.600 m3 Malbik . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8000 m2 Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 30. september 2010. Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 8. júní 2010. Verð útboðsgagna er 4.000 kr. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. júní 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag. Lagfæringar vega við Markarfljótsbrú 10-049 Vegagerðin óskar eftir tilboðum í lagfæringu á um 900 m kafla Hringvegar (1) austan Markarfljótsbrúar og lítils hlutar Þórsmerkurvegar ásamt bílaplani við gatnamótin. Helstu magntölur eru: Fylling . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.050 m3 Fláafleygar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.230 m3 Burðarlag . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 3.635 m3 Netgirðingar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 2.300 m Tvöföld klæðing . . . . . . . . . . . . . . . . . 10.185 m2 Frágangur fláa . . . . . . . . . . . . . . . . . . 7.580 m2 Verkinu skal að fullu lokið 1. september 2010, þó skal fyrra lag klæðingar komið á fyrir 28. júlí 2010. Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 7. júní 2010. Verð útboðsgagna er 4.000 kr. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. júní 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag. Loftmynd: Loftmyndir ehf.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.