Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007
Fréttir DV
Ellefu vilja
brauðið
Ellefu umsækjendur voru
um embætti prests í Grafar-
vogsprestakaili í stað séra önnu
Sigríðar Pálsdóttur sem færði sig
um set í byrjun október og er nú
prestur í Dómkirkjunni í Reykja-
vík. Af ellefu umsækjendum voru
konur í miklum meirihluta, því
aðeins þrír karlar voru með-
al umsækjenda. Konum virðist
hafa fjölgað nokkuð í stétt presta
á síðustu árum ef miðað er við
þessar tölur. Ráðið verður (emb-
ætti prests frá og með 1. desem-
ber næstkomandi.
Fimm handteknir
Lögreglan á Selfossi hand-
tók í fyrrinótt fimm karlmenn
vegna hnífsstunguárásar sem
átti sér stað á föstudagskvöld.
Þeir dvöldu í fangageymsl-
um lögreglunnar á Selfossi í
fyrrinótt og voru yfirheyrð-
ir vegna málsins í gær. Einn
maður sem grunaður er um
árásina hvarf af vettvangi en
gaf sig fram við lögreglu á
sunnudag. Arásin átti sér stað
í vinnubúðum við Hellisheið-
arvirkjun en þar hafði maður
verið stunginn í fót- og hand-
legg. Mennirnir höfðu setið
að drykkju en ósætti varð á
milli mannanna sem leiddi til
árásarinnar. Áverkar fórnar-
lambsins voru ekki alvarlegir.
Braust inn
íapótek
Karlmaður um tvítugt var
handtekinn fyrir utan verslunar-
miðstöðina Hrísalund á Akureyri
í fyrrinótt. Hann hafði brotist inn
í apótek Lyfja og
heilsu og haft
eitthvað af
lyfjum
á brott
með
sér. Þjófa-
varnarkerf-
ið fór af stað og
náðist maðurinn
rétt fyrir utan og gisti
hann fangageymslur lög-
reglunnar. Hann var í annar-
legu ástandi þegar hann náðist
og hefur hann komið við sögu
lögreglu áður.
Framhaldsskóli
fyrir íslenskt fé
„Afhendingin markar tíma-
mót í sögu Þróunarsamvinnu-
stofnunar íslands í Malaví þar
sem þetta er í fyrsta sinn sem
byggður er framhaldsskóli fyrir
íslenskt fé en frá árinu 1995 hef-
ur Þróunarsamvinnustofnunin
einbeitt sér að byggingu barna-
skóla," segir Stella Samúelsdóttir,
verkefnisstjóri ÞSSf í félagslegum
verkefnum í Malaví. Skólinn er í
þorpinu Nankhwali í Mangochi-
héraði. Skafti Jónsson, umdæm-
isstjóri ÞSSÍ í Malaví, afhenti full-
trúa malavíska yfirvalda fyklana
í síðstu viku. Skólinn hefur þegar
verið tekinn í notkun.
Fjárfestingafélagiö Háskólavellir keypti tæplega sautján hundruð íbúðir á varnar-
liðssvæðinu af Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar í haust. Samkvæmt reglugerð á
sala á fasteignum ríkisins að vera í höndum Ríkiskaupa og auglýstar opinberlega.
Slíkt var ekki gert við þessa sölu og gagnrýnir Óskar Ásgeirsson, sérfræðingur hjá
Ríkiskaupum, að ekki hafi verið farið að reglum. Atli Gíslason þingmaður segir
mjög óeðlilegt að ekki sé farið eftir reglum þegar farið er með opinbert fé.
VALGEIR ÖRN RAGNARSSON
bladamadur skrifar: valgeir^'dv.is
Fjárfestingafélagið Háskólavellir
hefur fest kaup á tæplega sautján
hundruð íbúðum á varnarliðssvæð-
inu á Miðnesheiði af Þróunarfélagi
Keflavíkurflugvallar án þess að farið
hafi verið eftir reglum um sölu á rík-
iseignum. Að Háskólavöllum koma
meðal annars Glitnir, fasteigna-
félagið Þrek, fjárfestingafélagið Teig-
ur, Sparisjóðurinn í Keflavík og fast-
eignaþróunarfélagið Klasi sem sem
Þorgils Óttar Mathiesen leiðir.
í reglugerð um ráðstöfun eigna
ríkisins segir að Ríkiskaup skuli
bjóða eignir til sölu með opinberri
augfysingu þar sem allar helstu upp-
lýsingar séu veittar. Ríkiskaup leggja
svo fram tillögu til fjármálaráðuneyt-
isins um hvaða tilboði skuli taka.
Eignirnar voru ekki auglýstar eins og
reglur gera ráð fyrir en fjármálaráð-
herra getur við sérstakar aðstæður
veitt heimild til að víkja frá ákvæðum
reglugerðar um framkvæmd við sölu
eigna ríkisins. Heildarvirði samn-
ingsins er um 14 milljarðar króna.
Eigum að sjá um þetta
Óskar Ásgeirsson, sérfræðingur
í eignasölu Ríkiskaupa, segir reglur
um ráðstöfun ríkiseigna alveg skýr-
ar. Hann undrast hvers vegna um-
sýsla eignasölunnar hafi ekki ver-
ið færð til stofnunarinnar og þekkir
enga ástæðu fyrir því hvers vegna
það hafi ekki verið gert. „Ríkiskaup
ráðstafa þeim eignum ríkisins sem
ákveðið hefur verið að selja eða láta
af hendi með öðru móti. Það er okkar
hlutverk og öll sala á eigum ríkisins á
að fara í gegn hjá okkur. Það er bara
þannig," segir Óskar.
Atli Gíslason, þingmaður vinstri
grænna, tekur í sama streng. Hann
óttast að ekki hafi verið rétt staðið
að söluferli eignanna og spyr hvers
vegna ferlið hafi ekki farið í gegn-
um Ríkiskaup, líkt og lög geri ráð
fyrir. „Líklega skýla þeir sér á bak
við hlutafélagaform sitt og líta sig
undanskilda reglum um sölu ríkis-
eigna. f raun er hér á ferðinni afkimi
stjórnsýslunnar. Þarna er ákveðin
klemma komin upp og ég óttast fleiri
klemmur í ljósi ohf. fyrirkomulags
ríkisstofnana. Bera þessi félög áfram
skuldbindingar sem ríkisfyrirtæki
eða ekki?" segir Atli.
Full heimild ílögum
Kjartan Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Þróunarfélags Keflavíkurflug-
vallar, segir félagið hafa haft fulla
heimild í lögum sem samþykkt voru
á Alþingi á síðasta ári þar sem seg-
ir að heimilt sé að fela Þróunarfé-
lagi Keflavíkurflugvallar að annast í
umboði ríkisins umsýslu fasteigna
á svæði sem koma á hið fyrsta í arð-
bær borgaraleg not. „Þessi gagnrýni
hefur ekki komið inn á borð til okkar
og það getur verið að hún sé byggð
á einhverjum misskilningi," segir
Kjartan.
Á afar gráu svæði
Óskar Ásgeirsson bendir jafn-
framt á að sala ríkiseigna sé alltaf
framkvæmd með sama hætti. Fyrst
Atli Gíslason „Líklega skýla þeir sér á
bak við hlutafélagaform sitt og líta sig
undanskilda reglum um sölu ríkiseigna. (
raun er hér á ferðinni afkimi stjórnsýsl-
unnar. Þarna er ákveðin klemma komin
upp og ég óttast fleiri klemmur í Ijósi
ohf. fyrirkomulags rlkisstofnana."
þurfi fjármálaráðuneyti að sam-
þykkja sölu og næst eru eignirnar
auglýstar til sölu. „Það gerum við
með áberandi hætti þar sem óskað
er tilboða. Satt að segja man ég ekki
eftir að þessar eignir hafi verið áber-
andi auglýstar, ef ég segi alveg eins
og er. Ég tel að þessi sala hefði átt að
fara í gegn hjá okkur og það hefur alls
ekki verið gert."
Atli Gíslason segir þessi viðskipti
„Ríkiskaup ráðstafa
þeim eignum ríkisins
sem ákveðið hefur ver-
ið að selja eða láta af
hendi með öðru móti.
Það er okkar hlutverk
og öll sala á eigum rík-
isins á að fara í gegn
hjá okkur. Það er bara
þannig."
vera á afar gráu svæði og telur laga-
ramma þessara félaga vera afar
óljósan. „í þessu tilfelli er verið að
fara með opinbert fé og það er mjög
óeðlilegt að opinberum reglum sé
ekki fylgt. Það ætti að fara með þetta
í gegnum Ríkiskaup og fara að sett-
um reglum."
Kristján Pálsson, fyrrverandiþing-
maður Sjálfstæðisflokksins, varð ekki
var við auglýsingar rfldseignanna á
Keflavíkurflugvelli og veltir fyrir sér
hvers vegna þessi leið hafi verið val-
in. Hann segir góða ástæðu til þess
að skoða söluna betur því hún virðist
hafa verið nokkuð tilviljanakennd og
skyndileg. „Það er mjög góð spurn-
ing hvers vegna þetta hafi ekki far-
ið venjulega leið. Það virðast koma
fram ákveðnir aðilar sem leggja fram
tilboð og söluferli hafi farið í gang í
kjölfarið. Þessi sala er alls ekki und-
anskilin því að spurt sé spurninga,"
segir Kristján.
Stjórnvöld eiga að styðja íslensk flugfélög í baráttunni við Boeing:
Bandaríkjastjórn til skammar
„íslensk stjórnvöld eiga að styðja
íslensku flugfélögin í því að segja
þeim hjá Boeing að ef þetta veld-
ur þeim vandræðum, þá séu fram-
leiddar fi'nustu flugvélar í Evrópu.
Þær heita Airbus og fyrirtækin geta
þá beint viðskiptum sínum þangað í
framtíðinni," segir Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður Vinstrihreyfingar-
innar - græns ffamboðs og fulltrúi í
utanríkismálanefnd Alþingis. „Það
eru engar forsendur fyrir þessu eða
hafa verið í öðrum tilfellum þeg-
ar menn hafa beitt viðskipta-
takmörkunum," segir
hann.
f DV í gær var Æ
sagt frá því að v/
bandarísk stjóm-
völd hafa þrýst á banda-
ríska flugvélaframleiðandann
Boeing að stunda ekki viðskipti við
íslensk flugfélög vegna Kúbuferða
þeirra. Viðskiptabann hefur ríkt gegn
Kúbu í marga áratugi og kom það illa
við bandarísk stjórnvöld að þarlend-
ar Boeing-flugvélar væru notaðar til
þess að fljúga til og frá Kúbu.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
þingmaður Samfylkingar og fúlltrúi
í utanríkismálanefnd, segir sjálfsagt
að stjórnvöld leggi flugfélögunum lið
ef þörf er á. Hún hefur þó efasemd-
ir um að það
sé á þeirra færi. Steingrímur bendir á
að Bandaríkjamenn sjálfir fari marg-
ir hverjir á bak við viðskiptabannið
með ýmsum hætti, til dæmis með
því að skrá flug sem leiguflug en ekki
áædanaflug. „íslenskyfirvöld eiga að
styðja íslensk fyrirtæki í að gefa ffat
í þetta fáránlega viðskiptabann sem
er til stórkostlegrar skammar. Þetta
er ljótur blettur á bandarísku stjórn-
arfari og þeim til mikillar skammar
að ganga svona fram," segir hann.
Málið kemur Steingrími ekki
á óvart. „Ég er vel inni í
þessu máli. Bandaríkin hafa í gegn-
um tíðina beitt löndin í kringum sig
þrýstingi af þessum toga. Kanada-
menn hafa ekki látið bugast og eiga
þeir heiður skilinn fyrir að hafa aldrei
látið Bandaríkin kúga sig til að slíta
eðlileg tengsl við Kúbu. Hvað fólki
finnst um stjórnarfarið þar er síðan
allt annað mál. Flestum í alþjóða-
samfélaginu, nema Bandaríkjun-
um, finnst það hneisa að halda
þessu við," segir hann. erla@dv.is
Til skammar
Steingrímur J.
Sigfússon
leggurtil
að íslensk
flugfélög kaupi
evrópskar Airbus-
vélar.