Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007
Fréttir DV
Skilorð vegna
árása
Héraðsdómur Norðurlands
eystra dæmdi á föstudag George
Scott, 26 ára Húsvíking, í eins
mánaðar skilorðsbundið fangelsi
fyrir þrjár líkamsárásir, allar sama
kvöldið. George kýldi þrjá menn í
andlit og sparkaði í skrokk og höf-
uð tveggja þeirra þannig að einn
fótbrotnaði og allir hlutu áverka.
Líkamsárásimar áttu sér stað
(fjöldaslagsmálum utan við veit-
ingastaðinn Gamla Bauk á Húsa-
víkþann 30. september. Lögreglu
var tilkynnt að átök væru á milli
„...erlendra farandverkamanna
og einhverra heimamanna", eins
og það var orðað. Þrjátíu manns
flugust á.
Gæsluvarðhald
staðfest
Hæstiréttur hefur staðfest
úrskurð Héraðsdóms Reykja-
víkur um að Þórarinn Kr. Gísla-
son sæti gæsluvarðhaldi til 20.
desember. Þórarinn er grunað-
ur um að hafa orðið nágranna
sínum Borgþóri Gústafssyni
að bana í íbúð við Hringbraut
í Reylqavík þann 7. október.
Þórarinn tilkynnti lögreglu
að vinur hans lægi rænulaus
í rúmi sínu. Sá var með alvar-
lega áverka á höfði sem drógu
hann til dauða síðar sama dag.
Á vettvangi mátti greina duft
úr slökkvitæki en talið er að
fórnarlambið hafi verið lamið
með því. Þórarinn var verulega
ölvaður og á höndum hans var
meðal annars duft úr slökkvi-
tækinu. Þórarinn neitar sök.
Tímamótaskýrsla
Vísindanefnd Sameinuðu
þjóðanna um loftslagsbreyting-
ar samþykkti á fundi í Valencia á
Spáni nýja samantekt sem varðar
staðreyndir
um hlýnun
jarðar. í til-
kynningu frá
umhverfis-
ráðuneyt-
inu segir að
þessi saman-
tekt marki
tímamót, en
í henni segir meðal annars að
hlýnun jarðar sé staðreynd og
Norður-íshafið verði orðið íslaust
á sumrin fyrir næstu aldarlok.
Skemmdarvargar
í Þorlákshöfn
Starfsmenn sveitarfélagsins
ölfuss urðu þess áskynja í gær-
morgun að búið var að skemma
hraðahindrun í Biskupabúðum
í Þorlákshöfn. Þetta mun hafa
gerst um helgina og er þetta í
annað skipti á stuttum tíma sem
hraðahindrun er skemmd í Þor-
lákshöfn. Lögreglan á Selfossi
fékk tilkynningu um að bifreið
hefði verið skemmd við sumar-
bústað í Bláskógabyggð. Stungin
höfðu verið göt á vélarlok bif-
reiðarinnar og beindist grunur
að manni sem tengdist eiganda
bifreiðarinnar. Sá var handtekinn
og yfirheyrður en neitaði sök.
Skráaskiptisvæðinu torrent.is var lokað í gær eftir að sýslumaðurinn i Hafnarfirði
féllst á lögbannskröfu þess efnis. Þrenn samtök munu höfða einkamál á hendur
Svavari Lútherssyni, forsvarsmanni síðunnar. Svavar segist ósáttur við niðurstöðuna
og heldur í von um að síðan verði opnuð aftur. Forsvarsmaður finnskrar torrent-síðu
var dæmdur til að greiða sem nemur nærri 50 milljónum króna í skaðabætur.
Lokað Torrent.is var lokað
um miðjan dag (gær eftir
að sýslumaðurinn í
Hafnarfirði féllst á
lögbannskröfu þess efnis.
Snaebjörn Steingríms-
son „Við vonum að þetta
sé byrjunin á stærsta sigri
SMÁ(S (rétthafabarátt-
unni."
GERT AÐ L0KA T0RRENT.IS
VALGEIR ÖRN RAGNARSSON
blaðamaöur skrifar: valgeir^dv.is
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði féllst í
gær á lögbannskröfú SMÁÍS, Samtóns
og Sambands íslenskra félaga og fyrir-
tækja í kvikmyndagerð að skráaskipt-
isvæðinu torrent.is yrði lokað. Svavar
Lúthersson, forsvarsmaður torrent.is,
var færður til yfirheyrslu í gærmorgun
og lauk henni um klukkan þrjú í gær.
Félögin munu höfða einkamál á
hendur Svavari fyrir hlutdeildarbrot á
þeim forsendum að hann hafi stuðl-
að að höfúndaréttarbrotum með því
að starfrækja vefsíðuna. í framhald-
inu munu þau skoða möguleika á að
krefjast skaðabóta. Mjög sambærileg
höfundarréttarlög eru í gildi á íslandi
og í Finnlandi en þar í landi var for-
svarsmaður torrent-síðu dæmdur til
að greiða um fimmú'u milljónir króna
í skaðabætur á sömu forsendum og
samtökin kæra Svavar fyrir. Sýslu-
maðurinn í Hafnarfirði hafnaði hins
vegar kröfu samtakanna um að tölvu-
búnaður Svavars yrði haldlagður líkt
og gert var árið 2004 þegar lögregla
haldlagði tölvubúnað tíu manna í
DC++-málinu svokallaða.
Kátur yfir niðurstöðunni
Snæbjörn Steingrímsson, fram-
kvæmdarstjóri SMÁÍS, var sáttur
við niðurstöðuna þegar DV ræddi
við hann. „Ég er bara hæstánægður,
þetta er fyrsta skrefið í þeirri baráttu
að fá lögbannið í gegn." Hann seg-
ir að samtökin sem standa að baki
málinu muni staðfesta kæru gegn
Svavari í vikunni og svo muni mál-
ið væntanlega fara fýrir dóm. Hann
segist gjarnan hafa viljað að tölvu-
búnaðurinn yrði haldlagður. „Mér
skilst að það hefði verið erfitt að fá
það í gegn í einkamáli."
Snæbjörn gagnrýnir seinagang
yfirvalda í rannsókn á ólöglegu nið-
urhali og því hafi samtökin ákveð-
ið að höfða einkamál. „Við vonum
að þetta sé byrjunin á stærsta sigri
SMÁÍS í rétthafabaráttunni."
Svavar Lúthersson hafði nýlok-
ið við að fjarlægja torrent.is út af
vefnum þegar hann ræddi við DV.
Hann kveðst ósáttur við úrskurð
sýslumannsins í Hafnarfirði. Lög-
maður Svavars var viðstaddur yfir-
heyrsluna yfir honum og færðu þeir
rök gegn því að torrent.is yrði lokað.
Hann segist hins vegar ekki tilbú-
inn til þess að gefast upp. „Ég held
í vonina að geta opnað vefinn aft-
Svavar Lúthersson „Ég held (vonina
að geta opnað vefinn aftur, en það fer
eftir því hvernig lögbannsmálið fer."
ur, en það fer eftir því hvernig lög-
bannsmálið fer."
Kæra ekki þrjátíu þúsund
manns
Snæbjörn segir að ekki standi til
að kæra alla notendur torrent.is, slíkt
yrði ógjörningur. Samkvæmt tölum á
vefnum voru um átta prósent þjóð-
arinnar með aðgang að skráaskipt-
isvæðinu. „Það stendur til að kæra
hann fýrir hlutdeildarbrot, en ekki
beint fyrir að stunda höfundarrétt-
arbrot. Ég veit svo sem ekki hversu
„Það stendur til að
kæra hann fyrir hlut-
deildarbrot; en ekki
beint fyrir að stunda
höfundarréttarbrot"
mikið er hægt að sækja hjá aðstand-
endum síðunnar."
Hann segir málið ekki tengjast
því beint að ríkislögreglustjóri ákvað
að ákæra mennina tíu í DC++-mál-
inu. „Við hefðum auðvitað viljað að
sú ákæra kæmi tveimur árum fyrr."
Hann segir einnig koma til greina að
fara í skaðabótamál á hendur Svav-
ari og segist sannfærður um að laga-
grundvöllur sé fyrir slíku máli, þar
sem höfundarréttarlögin hér séu
mjög svipuð og í Finnlandi þar sem
dómur féll.
Svavar segist aftur á móti ekki ótt-
ast skaðabótamál. „Hér á landi gilda
íslensk lög en ekki finnsk lög." Svav-
ar segir að sér hafi verið létt að tölvu-
búnaðurinn hafi ekki verið hald-
lagður. „Þá hefði ég kannski fengið
tölvuna mína aftur eftir þrjú eða
fimm ár.“
ION ASGEIR lOIIANNESSON, STJORNARFORMAÐUR BAUGS
+Stœrsti kostur Jóns Ásgeirs
er sennilega sá að ég
hefaldrei heyrt hann
segja styggðaryrði um
nokkurn mann," segir
Guðmundur Marteinsson,
framkvœmdastjóri Bónuss.
„Hann stendur líka við alltsem
hann segir og er mjög traustur,
sem er mikill kostur í mlnum aug-
um," heldur Guðmundur áfram. Hann segir
Jón Ásgeir í ofanálag vera mjög sanngjarn-
an.
m Guðmundur Ingi Iijartarson, œskuvin-
urjóns Ásgeirs af Seltjarnarnesinu, segir
Jón Ásgeir vera bœði kjarkaðan og útsjón-
arsaman. „Svo er hann traustur oggóður
vinur og höfðingi heim að scekja," segir
Guðmundur Ingi.
m Tryggvi lónsson, samherji Jóns Ásgeirs í
viðskiptum til margra ára, segir Jón ásgeir
fyrst ogfremst vera afar orðheldinn mann.
„Það sem hann segir, það stendur eins og
stafur á bók," segir Tryggvi.
- -
Jón Ásgeir Félagarnir segja Jón vera orðheldinn og
traustan. Hann kunni þó ekki á klukku og sé óstundvís.
DEBET OG KREDIT
„Eini gallinn sem ég man ej'tir við hann Jón
Ásgeir er að hann á það til að verajremur
fámáll,“ segir Guðmundur Marteinsson.
Ilann segirþetta geta bent til þess að Jón sé
lokaður, án þess að það sé
öruggi mál. „Svo erhann
reyndar œgilega óstundvís,"
bœtir hann við.
„Þeir eiga það sameiginlegt, Jón Ásgeir og
Guðmundur Marteinsson, að báðir eruþeir
alvegferlega tapsárir i skvassi," segir Guð-
mundur Ingi Hjartarson um félaga sina.
„Svo erþað rétt hjá Gumma að Jón Ásgeir er
óstundvís, en lumn kemst einhvern veginn
upp með það,"segir Guðmundur Ingi enn
fremur.
Tryggvi Jónsson giskar strax á að aðr-
ir viðmœlendur haji minnst á óstundvísi
Jóhannesar. „Hann hefur i rauninni aldrei
lœrt almennilega á klukku og ég er ekki einu
sinni viss um að liann eigi úr,“ segir Tryggvi.
„Honum ferþó fram ogþað erekki lokujyrir
það skotið að góður kvenskörungur sé að
kenna lionum þetta. Sigandi lukka er líka
best."