Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007
Fréttir DV
TRAUSTI HAFSTEINSSON
Breska lögreglan óttast að fundur
tveggja líka í síðustu viku leiði til fleiri
fórnarlamba morðingjans. Leitað verð-
ur í fjölda húsa þar sem hann hefur búið
síðustu áratugi og hafa nöfn 15 stúlkna
komið upp í rannsókninni.
Á föstudag fannst lík
Dinah McNicol, 1 8 ára
stúlku, grafíð undir
sólpalli í garðinum.
Beggja stúlknanna
hafði verið saknað frá
árinu 1991 ogskiluðu
rannsóknir loks þeim
árangri að líkin fund-
ust. Tobin hefur verið
handtekinn og ákærð-
ur fyrir morðin á stúlk-
unum tveimur.
Lögregla í bænum Margate á Bret-
landi óttast að 15 fórnarlömb til
viðbótar finnist við húsleit í nokkr-
um húsum sem tengjast Bretanum
Peter Tobin, 61 árs að aldri. f síð-
ustu viku fundust lík tveggja ungl-
ingsstúlkna grafin í garði við hús
hans að Irvine Drive númer 50 í
Margate.
Á mánudaginn í síðustu viku
fannst lík 15 ára stúlku, Vicky Ham-
ilton, grafið undir malarjarðvegi
garðsins. Á föstudag fannst svo lík
Dinah McNicol, 18 ára stúlku, graf-
ið undir sólpalli í garðinum. Beggja
stúlknanna hafði verið saknað frá
árinu 1991 og skiluðu rannsóknir
loks þeim árangri að líkin fundust.
Tobin hefur verið handtekinn og
ákærður fyrir morðin á stúlkunum
tveimur.
Þáði far hjá ókunnugum
Hinn meinti morðingi tengist
fleiri húseignum á Bretlandseyj-
um og er fyrirhugað næstu daga að
rannsaka þær aílar til hlítar. Ótt-
ast er að fleiri lík sé að finna þar
sem Tobin hefur áður búið og hef-
ur lögreglan tengt nöfn 15 stúlkna
við rannsóknina, allar hafa horfið
á síðustu árum. Fyrri heimilisföng
mannsins eru í nokkrum borgum,
meðal annars Brighton, Hamp-
shire, Edinborg og Glasgow. Allt í
allt eru þetta ein 9 hús sem rann-
sökuð verða á næstu dögum og
ólíklegt er talið að fleiri lík finnist
í húsinu eða garðinum þar sem lík
ftarleg leit Búið er að grafa f garðinum og brjóta upp steypugrunn hússins.
Ólfklegt er talið að fleiri Ifkamsleifar finnist f húsinu þar sem Ifkin tvö fundust.
stúlknanna fundust í síðustu viku.
Samkvæmt vefmiðlinum The
First Post hvarf Dinah McNicol
árið 1991 eftir að hún þáði far hjá
ókunnugum. Hún hafði verið á
tónlistarhátíð í Hampshire, þar
sem Tobin bjó um skeið, og spurð-
ist ekki til hennar eftir að hún steig
upp í bílinn hið örlagaríka kvöld.
Vill jarða dóttur
sína sem fyrst
Fjölmiðlafulltrúi lögreglunn-
ar, Tabitha Wilson, staðfestir að
rannsókn hússins við Irvine Dri-
ve sé að mestu lokið. Hún segir að
lokið sé við að grafa upp allan hús-
garðinn án þess að fleiri líkamsleif-
ar hafi fundist. Hið sama á við eft-
ir að steypugrunnur hússins var
opnaður til að leita líka. Núverandi
Einkaspæjarar segjast hundrað prósent vissir um að Madeleine sé á lífi:
Nýjar upplýsingar gefa von
Einkaspæjarar sem foreldr-
ar Madeleine McCann réðu frá
spænsku leynilögregluskrifstofunni
Metedo 3 segjast hundrað prósent
vissir um að finna stúlkuna á lífi.
Aukin bjartsýnir ríkir nú í málinu
eftir að vitni hafi sagt kærustu Ro-
berts Murat halda á barni vafið inn í
teppi og flutt það á milli bfla tveim-
ur dögum eftir hvarfið. Það átti að
hafa átt sér stað í miðhluta Portú-
gals, aðeins hundrað kílómeturm
frá sumarleyfisstaðnum Praia da
Luz. Vitnið bar kennsl á Michaelu
Walczuch eftir að hafa skoðað ljós-
myndir. Samkvæmt heimildum
Daily Mail, sagði vitnið að parið
hefði hegðað sér einkennilega og
að það hefði bersýnilega viljað láta
lítið bera á barninu.
Þessar upplýsingar koma heim
og saman við það sem Jane Tann-
er, vinur McCann-hjónanna, sagði
við lögregluna á sínum tíma en hún
sagðist hafa séð mann halda á barni
frá hótelinu kvöldið sem hún hvarf.
Barnið var í bleikum náttfötum og
berfætt. Þrír vina Kate og Gerry,
Russel O'Brien, Rachael Oldfield
og Fiona Payne hafa auk þess öll
sagt að þau hafi séð Murat við hót-
elið eftir að Madeleine hvarf. Þetta
rennir nú stoðum undir þann vinkil
málsins að Madeleine sé enn á lífi
og eru foreldrar henanr nú bjart-
sýnni en áður. Þau er þó varkár og
treysta engu fyrr en það verði stað-
fest afyfirvöldum.
Michaela Walczuch og Robert
Murat, sem fýrstur var grunaður í
málinu, hafa neitað að tjá sig um
þessar upplýsingar. asdisbjorg@dv.is
Eygir von Kate McCann lifir enn í
von um að finna dóttur sína á lífi.
Dreginnfyrirdómstóla
Fjölþjóðlegur dómstóll Sameinuðu
þjóðanna handtók í gær fýrrverandi
forseta Kambódíu, Khieu Samp-
han, 76 ára að aldri, er hann lá á
sjúkrahúsi í höfuðborginni. Hann
leiddi þjóðina á árunum 1976 til
1979 og var leiðtogi hinna herskáu
samtaka Rauðu kmeranna. Sam-
tökin stóðu fyrir byltingu í landinu
á síðari hluta áttunda áratugar síð-
ustu aldar sem dró nærri 2 milljónir
manna til dauða. Þar að auki voru
milljónir manna hraktar frá heim-
ilum sínum og tala þeirra sem voru
hreinlega teknir af lífi af stjórnvöld-
um er enn óljós.