Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 Fréttir DV Afborganir íbúðalána hafa ríflega tvöfaldast á síðustu þremur árum. Á sama tíma hefur íbúðaverð hækkað gíf- urlega sem gerir þeim sem ætla að kaupa sína fyrstu íbúð erfitt fyrir. Fasteignakaupendur í dag þurfa að greiða 120 prósentum meira í afborganir í samanburði við árið 2004 fyrir sambærilegt húsnæði. Dýrt húsnæði Gífurleg verðhækk- un húsnæðis og hærri lánavextir J hafa liflega tvöfaldað afborganir !húsnæðislána á síðustu þremur árum. I tilbúnu dæmi um 23 milljóna króna húsnæði þarf að greiða rúmri milljón meira í dag. ***** TRAUSTI HAFSTEINSSON bladamadur skrifar: (rausti(o>dv.is NÓVEMBER 2007 2.080 ÞÚSUND sitt eða hefur ekki efni á að kaupa sér húsnæði. Fyrir vikið þurfa þeir að sækja í leiguhúsnæði og vanskil- in þar hafa stóraukist." Lofað fyrir kosningar Fyrir alþingiskosningar 2003 lof- aði Framsóknarflokkurinn hækk- uðu lánshlutfalli íbúðalána og lægri vöxtum. Að kosningum loknum var Ibúðalánasjóði beitt í því að standa við loforðin og viðskiptabankarnir komu síðan með krafti inn á fbúða- lánamarkaðinn. Afleiðingin er sú að frá haustinu 2004 hefur húsnæðis- verð á höfuðborgarsvæðinu hækk- að um 111 prósent. Á meðan hafa vextir íbúðalána farið stigvaxandi og greiðslubyrði kaupenda eykst hratt. Ef aðeins er horft til lánavaxta við- skiptabankanna hafa þeir nærri tvö- faldast frá því þegar þeir voru lægst- ir. Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur viðurkennt mistök stjórnvalda sem leitt hafi til gífurlegrar hækkun- ar íbúðaverðs og vaxta. „Eftir á að hyggja voru þetta mistök," sagði Geir í vikunni. Hann átti þarna við hækk- un lánshlutfalls íbúðalána hjá íbúða- lánasjóði haustið 2004 sem hafði þær afleiðingar í för með sér að ungt fólk og láglaunafólk getur varla keypt sína fyrstu íbúð í dag. Ríkisstjórnin íhugar hvort grípa þurfl til sértækra aðgerða til að koma þessu fólki til aðstoðar. Stjórnarheimilið á villigötum Guðmundur Ólafsson hagfræð- ingur telur forsætisráðherra skamm- sýnan því stjórnvöld hafl verið vöruð við öllu því sem orðið er. Hann tel- ur það hafa áhrif að Geir, og aðrir ráðherrar hafi sjálfir ekki þurft að hafa áhyggjur af íbúðarkaup- um. „Búið var að útskýra ná- kvæmlega fyrir stjórnvöld- um að svona myndi fara og allt það versta sem við ótt- uðumst hefur komið fram. Aðgerðaleysi stjórnvalda ogpen- ingastofn- ana Húsnæðisverð og afborganir húsnæðislána hafa ríflega tvöfaldast frá árinu 2004. Gífurleg verðhækkun og hærri lánavextir hafa margfaldað afborganir húseigenda sem þurfa að greiða 120 prósentum meira af lán- um sínum í dag miðað við saman- burðartímabil fýrir 3 árum. 23. ágúst 2004 upphófst mikil samkeppni á húsnæðislánamarkaði með innkomu viðskiptabankanna og hækkun lánshlutfalls fbúðalánasjóðs um svipað leyti. Farið var að keppa um að bjóða sem lægsta lánavexti og hæsta lánshlutfallið. Þróunin frá þessum tíma hefur orðið til þess að nýliðun á húsnæðismarkaði er mjög erflð sökum þess að íbúðaverð hefur margfaldast og lánavextir einnig. Ef skoðað er tilbúið dæmi af hús- næði sem kostaði 23 milljónir árið 2004 og gert ráð fyrir 80 prósenta lánshlutfalli til 40 ára kemur þessi munur berlega í ljós. Eigandi hús- næðisins þurfti að greiða rúmar 950 þúsund krónur í afborganir lána árið 2004 þegar vextirnirvoru lægstir, eða 4,15 prósent. I dag þarf að greiða rúmar tvær milljónir fyrir sams kon- ar húsnæði, hvers markaðsverð hef- ur hækkað í 37 milljónir. Hækkun af- borgunar milli ára nemur tæpum 1,2 milljónum króna. Vaxandi hópur í vanskilum Ásta S. Helgadóttir, forstöðu- maður Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna, bendir á að fjölmargir hafi náð að fresta vandræðum sín- um með endurfjármögnun heim- ilanna þegar lánavextir voru sem lægstir. Hún segir vaxandi hóp leita til stofnunarinnar, fólk sem ekki hafi efni á að kaupa sér húsnæði og hafl lent í vanskilum á leigumarkaði í staðinn. „Vandræðin skila sér til okkar nokkuð eftir á og ennþá hafa þau ekki birst í mikilli aukningu fjárhagsvandræða vegna húsnæð- isafborgana. Þegar bankarnir komu inn á markaðinn náðu margir að flnna úrlausn sinna mála í gegnum endurfjármögnun en sú lausn virk- ar aðeins tfmabundið. Hver þró- unin hjá okkur verður á næst- unni er óskrifaður kafli og við óttumst holskeflu hjá þeim sem illa eru staddir," segir Ásta. „Sá hópur stækkar hjá okkur sem annaðhvort er búinn að missa húsnæði áberandi. Viðurkenning Geirs eftir á sýnir bara það að hann skildi ekki hvað var að gerast og ég þakka Guði fyrir að honum líður vel með eigið húsnæði," segir Guðmundur. Gylfa Arnbjörnssyni, fram- kvæmdastjóra ASf, líst heldur ekkert allt of vel á stefnu stjórnvalda. Hann segir almenning hreinlega þurfa að mæta þeim örlögum sínum að tak- ast á við aukna greiðslubyrði og háa vexti. „Húsnæðisverð hefur ríflega tvö- faldast á liðnum árum og aðgerð- ir síðustu ára hafa skilað nýliðum á markaði ekkert sérstökum árangri. Það hefur örlað á því að forsætisráð- herra viðurkenni mistök í hagstjóm- inni sem leitt hafa til þess að heimil- in eiga erfiðara með að láta enda ná saman. Mistökin á stjórnarheimilinu em afdrifarík og ég viðurkenni að við- brögð forsætisráðherra gefa manni ekki miklar væntingar um að eitthvað verði gert til hjálpar," segir Gylfi. Óeðlileg verðmyndun Hallur Magnússon, deildar- stjóri íbúðalánasjóðs, skellir skuld- inni alfarið á viðskiptabankana og þeirra innkomu á húsnæðislána- markaðinn. Hann segir gífurlega hækkun húsnæðisverðs stóran bita AFBORGANIR AF HÚSNÆÐI Asta S. Helgadóttir Forstöðumaður Ráðgjafastofu heimilanna er bjartsýn á að stjórnvöld grípi til aðgerða til að auðvelda fólki kaup á eigin húsnæði. Varað við Guðmundur Ólafsson hagfræðingur segir stjórnvöld hafa verið vöruð við öllu því slæma sem gerst hafi á húsnæðismarkaðinum. fyrir kaupendur. „Bankarnir komu mjög harkalega inn á markaðinn og haftalaust. Á einni nóttu var öll- um hömlum kippt í burtu. Plön- in hjá okkur og ríkinu voru þau að hækka hóflega húsnæðisverðið til lengri tíma með hækkun lánshlut- fallsins en bankarnir fóru með þau plön. Fyrir vikið fór allt á verri veg. Núna erum við komin hringinn, kaupendur eru í svipaðri eða verri stöðu en áður," segir Hallur. Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur hins vegar að fbúðalánasjóður hafi haft óeðlileg áhrif á húsnæðismarkað- inn. Hann vill leggja stofnunina niður hið fyrsta og hefur áhyggjur af neyslugleði þjóðarinnar. „Rík- Vaxandi hópur leitar til Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna sem ýmist hefur misst húsnæði sitt eða hefur ekki efni á að kaupa sérhúsnæði. isábyrgð íbúðalánasjóðs skekkir myndina og truflar rétta verðmynd- un á húsnæðismarkaðnum. Að sjóðurinn hafi ekki hrein viðskipta- sjónarmið að leiðarljósi skemm- ir einnig fyrir og skapar óeðlilega samkeppni. Mikil neyslugleði land- ans á sínum tíma varð til þess að vaxtalækkanir urðu að engu með hækkandi húsnæðisverði. f staðinn fyrir að minnka skuldsetningu sína nýttu heimilin tækifæri að stækka við sig eða kaupa eitthvað annað í staðinn," segir Pétur. örlítil vonarglæta Atli Gíslason, þingmaður vinstri grænna, hefur verulegar áhyggjur af því hversu erfitt er fyrir fólk að kaupa sína fyrstu íbúð. Hann segir bankana hafa spilað stærstu rulluna í þróun- inni með sviknum loforðum en und- anskilur ekki íbúðalánasjóð frá sinni ábyrgð. „fbúðalánasjóður hellti olíu á eldinn með því að hækka lánshlut- fall sitt. Bankarnir voru síðan auðvit- að að fara inn á þennan markað til að ná tökum á honum. Þetta hefur haft í för með sér grafalvarlegar afleiðing- ar fyrir nýliða. Verðið hefur hækkað svo rosalega og vextirnir líka að þeir sem eru að kaupa í fyrsta skipti eru í vondum málum. Skuldsemingin er mikil og fólk þarf að spenna bog- ann gífurlega til lengri tíma. í raun má ekkertút af bregða hjá fólki," seg- irAdi. Aðspurð er Ásta bjartsýn á að stjórnvöld grípi til aðgerða. Hún tel- ur ekki hægt að benda á einhvern einn sökudólg í hæklcun húsnæðis- verðs. „Staðan á húsnæðismarkaðn- um er ekki góð. Þetta er hins vegar margþættur vandi og alls ekki hægt að benda á einhvern einn söku- dólg. Neyslan í þjóðfélaginu er gíf- urleg og stjórnvöld þurfa að grípa til aðgerða. Bæði félagsmála- og við- skiptaráðherra hafa gefið mér von um úrræði. Að kaupa sér fasteign og stofna til heimilis er einn af grund- vallarþáttum lífsins og það er mjög vont mál að slíkt sé að verða ógjörn- ingur hér á landi," segir Ásta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.