Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 Umræða DV CiTGAFUFÉLAG: Dagbla&ið-Vlsir útgáfufélag ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir RITSTJÓRAR: ReynirTraustason og Sigurjón M. Egilsson ábm. FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viötöl blaösins eru hljóörituö. AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010, ÁSKRIFTARSlMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 70 40. SANDKORN ■ Björn Ingi Hrafnsson, for- maður borgarráðs, snýt- ir Styrmi Gunnarssyni, ritstjóra Morgun- blaðsins, í pistli á heimasíðu sinni vegna þeirrar afstöðu hans að Orkuveit- an megi ekki taka þátt í í út- rásarverkefnum. Björn Ingi, sem var blaðamaður Morg- unblaðsins um árabil, bendir á tæplega ársgamlan leiðara Mogga þar sem útrásarverk- efni Orkuveitunnar í Kína var fagnað. „Hitaveitan er samstarfsverkefni heima- manna og EnexKína en að því fyrirtæki standa Orku- veita Reykjavíkur, Glitnir og Enex, vettvangur íslenzkra þekkingarfyrirtækja í orku- vinnslu ... I þeirri þróun sem hafin er með þessu verkefni í Xian Yang geta falizt gífur- leg tækifæri fyrir íslenzk fyr- irtæki," sagði Styrmir þá en nú er komið annað hljóð í strokkinn. ■ Hástökkvarinn nú í aðfalli jólabókaflóðsins er Hnífur Abrahams eftir Óttar M. Norð- fjörð sem trónir í öðru sæti metsölu- lista Ey- munds- son á eftir sakamálakonungi Islands, Arnaldi Indriðasyni. Víst má telja að Arnaldur haldist á toppnum en ólíklegt er að Óttar skáki honum eða haldi öðru sætinu í baráttunni við Árna Þórarinsson, Einar Má Guðmundsson og ótal fleiri. En spennan á toppnum vex nú með hverri vikunni sem líður og þá ræðst hvaða höf- undar hreppa silfur og brons. ■ Andófssíða starfsfólks 24 stunda, áður Blaðsins, var lögð niður vegna harkalegr- ar gagnrýni á mötuneytið sem fóðraði starfsfólk Morg- unblaðsins og 24 stunda. Á síðunni var fjallað með ágengum hætti um mat sem mötuneytið reiddi fram þar. Mótmælasíðan var í kjölfar- ið lögð niður en þá reidd- ist Kolbrún Bergþórsdótt- ir stjörnublaðamaður fyrir hönd starfsfélaga sinna. Hún vildi meina að yfirstjórn Ár- vakurs hefði gert sig seka um valdníðslu. Vefsíðan mannlif.is segir frá því að nú hefur mötuneytið hrökklast í burtu og nýtt komið í staðinn og í kjölfarið hafi einn blaðamaður Ár- vakurs haft á orði að í fyrsta skipti í talsverðan tíma hafi hann fundið bragð að matn- um. n@dv.is Verðlagsstofa ríkisins LEIÐARI SIGURJÓN M. EGILSS0N RITSTJÓRISKRIFAR. Ogvið gerunt ekkert, i inesln Uigi hristum við liöfuðið. Búið er að hleypa frelsi að flestu. Ekki eru lengur starfandi nefndir til að ákveða hvað mjólk á að kosta út úr búð, eða skyr. Ekki er lengur til nefnd sem ákveður hvaða verð útgerðir og sjómenn eiga að fá fyrir aflann. Ekki eru lengur starfandi verðlagsnefndir eða verðlagsráð til að sam- ræma verð á öllum sköpuðum hlutum. Þrátt fyrir alla frelsisvinda er samt eftir ein verðlags- stofa sem hefur ótrúlega mikil áhrif á afkomu okkar allra. Þrátt fyrir allt tal um frelsi og allt tal um að ríkið eigi að hafa sem minnst afskipti, stendur eftir ein verðlagsstofa. Og hún hefur áhrif. Hagstofa íslands hefur meðal annars það hlutverk að ákveða hvað peningarnir sem við fáum lánaða eigi að kosta. Þar á bæ er reiknuð vísitala sem stjórnar hver verðtryggingin er hverju sinni. Bankar og sjóðir sem lána okkur peninga þurfa engar áhyggjur að hafa. Verðlagsstofan sér um að lánendur fái alltaf sitt, og gott betur. Þeir sem búa til reikningsaðferðina og þeir sem framfylgja henni eru á einu máli um að ef OPEC-ríkin ákveða að takmarka framleiðslu á olíu svo verð hækki, eigi það að leiða til þess að skuldir heimilanna á íslandi hækki og bankar og sjóðir efnist stórkostlega. Enginn sér neitt að þessu og enginn virðist hafa nokkurn vilja til breytinga. Það er bara þannig að þegar fatið af olíu hækkar færast milljarðar frá almenningi til þeirra sem hafa lánað pen- inga. Allt með velvild og samþykki ríkisstjórn- ar íslands. Ríkisstjórn íslands hefur engan áhuga á að breyta þessu. Ekki nokkurn. Rík- isstjórn íslands hefur ekki heldur áhuga á að skerða eigin ofureftirlaun. Það hefur hún sýnt í verki. Einstaka ráðherrar hafi kosið að slá um sig með fullyrðingum um eitthvað annað. Hugurinn fylgir ekki. Áfram skal unnið í sama anda. Allar verðlagsbreytingar, nánast hvar sem er í heiminum, skulu færa fjármagnseigendum á íslandi stórkostlegar fjárhæð- ir frá íslenskum fjölskyldum. Heimsmarkaðsverð á hveiti hef- ur hækkað, sykur hefur hækkað, olía hefur hækkað og svo hafa íbúðir hækkað. Allt eykur þetta skuldir heimilanna á íslandi. Leit er að ríkisstjórn innan OECD sem lætur íbúðarverð koma eins harkalega fram í verðbólgureikningum og ríkisstjórn Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Þetta gerir ríkis- stjórn þrátt fyrir að vera sú eina sem notar vísitöluna til að færa milljarða frá venjulegu fólki til forréttindafólksins, fólksins sem á peningana. Og við gerum ekkert, í mesta Iagi hristum við höf- uðið. SJÓARINN f MANNHAFINU Svarthöfði veit fátt verra en að vera í fjölmenni í Kringlunni eða Smáralind. Óöryggið hellist yfir og gömul félagsfælni frá unglingsárunum tekur sig upp. En þetta mun síður en svo vera einsdæmi. Svarthöfði reifaði eitt sinn líðan sína og fóbíu á sjötta glasi í stúdentaveislu. Þá steig þar fram kona og sagði sínar farir ekki sléttar. Hún hafði einmitt verið í Kringlunni, daginn fyrir Þorláks- messu, þegar yfir hana helltist svartnætti og á endanum hné hún í ómegin. Góðviljaðir gestir hlúðu að konunni og komu henni undir læknishendur. Veislugestir í stúd- entaveislunni stóðu á öndinni und ir einlægri frásögn konunnar sem lýsti jafnviðkvæmu atviki í lífi sínu eins og hún væri að tala um veðr- ið. Hún hafði rankað við sér á læknastofu í þriðju hæð þar sem miðaldra læknir strauk henni um ennið með rök- um klút. „Ég dauðskamm- aðist mín," sagði hún og það hefði mátt heyra saum- nál falla til jarðar. Það rifjaðist upp fyrir Svart- höfða för hans og gamals vin- ar, sannfærðs kommúnista, í Ikea í Holtagörðum á aðventunni. Félaginn var utan af landi og eins og gerist með landsbyggðarfólk í borgarferð var hann með lista yfir það sem hann átti að kaupa í þétt- býlinu. Vinurinn átti að baki sögur um ótal háska á fiskislóðum við norðanvert fsland þar sem hann hafði barist áfram á bátshorni í ofsaveðri og frosti án þess að hafa nokkru sinni látið bugast. Þvert á móti hafði hann steytt hnefa gegn Ægi konungi og skorað hann á hólm. Einnig hafði hann búið undir snarbrattri hlíð þar sem ógn vegna snjó- flóða var algeng. En kjarkur sjóar- ans átti sér sín takmörk. Á inni kaupalista hans var nefnd- ur hlutur sem einungis var fáanlegur í Ikea og þangað lá leiðin inn í rangala hinna kaupóðu þar sem Svarthöfði og sjóarinn blönduðust fjöldanum eftir að jólasveinn hafði gefið sig að þeim og boðið epli. Ekki vildi betur til en svo að leiðir skildi. Þegar Svarthöfði uppgötvaði að sjóarinn hafði týnst í mannhafmu hóf hann þegar ákafa leit vitandi það að sjógarpurinn var haldinn félagsfælni og kvíða í margmenni. Leiðin lá um hina ýmsu rangala en það var ekki fyrr en hálftíma síðar að hann fann félagann sem stóð stjarfur og með starandi augu við rekka í sængurfatadeild- inni. „Ég er hræddur," stundi hann upp. Eftir snögga áfallahjálp var ekki annað að gera en að fikra sig út úr Ikea og koma manninum í ró. Hann harðneitaði æv- inlega þar eftír að fara í stórverslanir og minntíst at- burðarins ævinlega sem stærsta háska lífs síns. Konan í stúdentaveislunni sagði að læknirinn á þriðju hæðinni hefði smám sam- an náð henni til heilsu. Að lokum hefði hann skrifað upp á róandi og beðið hana lengstra orða að forð- ast verslunarmið- stöðvar á meðan hún næði tökum á kvíðan- um. Læknirinn hafði sagt henni að annan hvern dag félli gestur verslunarmiðstöðvar á borð við Kringluna í ómegin þannig að hún þyrfti ekkert að skammast sín fyrir að hafa legið þar fyrir fótum almennings. Og Svarthöfði hefur lært ýmislegt af lífsreynsunni með kommúnistanum. Hann fer alls ekki í Smáralind eða Kringluna nema útsofmn og í góðu andlegu jafnvægi. Annars getur farið illa. SVARTIIÖFDI „Ég sé ekkert á móti þv( ef það er raunhæft. Ég hins vegar efast um hversu raunhæft það er." Anna Th. Rögnvaldsdóttir, 53 ára kvikmyndagerðarmaður „Ég sé ekki fram á að hægt væri að koma því við. Mér finnst því erfitt að svara þessu." Sigurborg Rögnvaldsdóttir, 43 ára nemi „Það er engin ástæða til þess. Útlendingarnir eru ekkert að brjóta af sér frekar en við." Margrét Kristjánsdóttir, 42 ára hjúkrunarfræðingur „Mér finnst full ástæða til þess. Þeir virðast brjóta mun meira af sér en íslendingarnir." Kristrún Grímsdóttir, 76 ára ellilífeyrisþegi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.