Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Qupperneq 17
PV Sport ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 17 Landsliðsmaðurinn Hermann Hreiðarsson segir að íslenska landsliðið ætli að láta Dani finna til tevatnsins í leik þjóðanna á morgun og vill að Danir gangi af velli vitandi það að þeir lentu í erfiðum leik gegn íslendingum. vi'i Biíffilt'#2r\ ■ '■ V. J’X ■ DAGUR SVEINN DAGBJARTSSON blaöamadur skrifai frá Kaupmannahöfn íslenska landsliðið í knattspyrnu undirbýr sig nú af krafti fyrir erfiðan leik gegn Dönum á Parken á morg- un. íslenska liðið kom saman í Kaup- mannahöfn á iaugardaginn og heftir æft stíft síðan. Það hefur þó ekki gengið áfalla- laust fyrir sig hjá liðinu að æfa. Lið- ið hefur æft tvisvar á dag frá því það kom saman en hætta þurfti síðari æfingunni á sunnudaginn vegna raf- magnsleysis þegar um 40 mínútur voru liðnar af æfingunni. Leikurinn verður fyrsti leikur ís- lands undir stjórn Ólafs Jóhann- essonar, sem tók við landsliðs- þjálfarastöðunni undir lok síðasta mánaðar. Leikurinn er einnig sfðasti leikur beggja þjóða í undankeppni EM. Hermann fyrirliði? Gengi íslenska liðsins hefur vald- ið vonbrigðum. Ljóst er að ísland endar í næstneðsta sæti riðilsins eft- ir að Lettar unnu Liechtensteina á laugardaginn var. Danir hafa held- ur að engu að keppa í leiknum gegn íslandi því þeir töpuðu fyrir Norður- frum um síðustu helgi. Nokkuð hefur verið um forföll í íslenska liðinu. Landsliðsfyrirliðin Eiður Smári Guðjohnsen gefur ekki kost á sér í leikinn af persónuleg- um ástæðum og þá hefur Jóhannes Karl Guðjónsson einnig dregið sig úr hópnum vegna veikinda en hann er með sýkingu í lungum. f þeirra stað hefur Ólafur lands- liðsþjálfari valið Eyjólf Héðinsson, leikmann sænska liðsins GAIS, og Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, leikmann bikarmeistara FH. Líklegt verður að teljast að Hermann Hreiðarsson, leikmaður Portsmouth, verði fyrirliði í fjarveru Eiðs Smára. Viljum sýna hvað í okkur býr Hermann sagði í samtali við DV í gær að stöðugleika hafi vantað í ís- lenska liðið og að þrátt fýrir að liðið hafi tapað leikjum sldpti máfi hvemig liðtaparleikjum. „Menn viija koma hingað og standa sig, hafa gaman af þessu og eru stolt- ir að spila fýrir íslands hönd. Við horf- um bara fram á veginn og erum komn- ir með reynslumikinn mann í brúna," segir Hermann og á þar við Ólaf Jó- hannesson þjálfara. Hermann lætur vel af fýrstu æfing- um Ólafs sem landsliðsþjálfari. „Það hefur verið hörkutempó. Það er nú þannig í fótboltanum að þú manst allt- af eftir síðasta leik, þannig að við vilj- um standa okkur vel á miðvikudaginn og sýna hvað í okkur býr," sagði Her- mann, sem býst að sjálfsögðu við erfið- um leik gegn Dönum á Parken. „Eins og Óli hefur sagt, það er eitt pottþétt og það er að einhverjir leik- ir tapast. En ef við spilum vel og leik- menn standa sig er eiginlega ekki hægt að fara fram á mikið meira. Ef það er gert skilar það sér í góðum úrslitum." Ólafur valdi þrjá leikmenn í lið- ið sem aldrei áður hafa verið valdir í landsliðshópinn, þá Bjama Þór Viðars- son, Eggert Gunnþór Jónsson og Eyjólf Héðinsson. Hermanni líst vel á það val Ólafs. „Þetta eru ungir og efnilegir strák- ar og gott fyrir þá að fá smá reynslu og nasaþefinn af þessu. Þetta eru framtíð- armenn og frábært fyrir þá að sjá út á hvað þetta gengur og vonandi að það skili sér" sagði Hermann og bætti við að það væri engin hætta á öðru gegn Dönum en að íslenska liðið myndi leggja allt í sölumar. „Það er alveg á hreinu að við verð- um að spila dúndurgóðan varnarleik, vera mjög grimmir og láta finna fyrir okkur, svo þeir labbi af vellinum vit- andi það að þeir lentu í mjög erfiðum leik á móti íslandi," segir Hermann að lokum. Danir eru ósáttir við gengi landsliðsins í undankeppni EM 2008: FARIÐ AÐ HITNA UNDIR OLSEN Það er farið að hitna allverulega undir Morten Olsen, ef marka má danska fjölmiðla. Danska landslið- ið glutraði niður eins marks forystu gegn Norður-ímm á laugardaginn og á fyrir vikið ekki möguleika á að komast á EM í Austurríki og Sviss á næsta ári. Olsen tók við danska landslið- inu árið 2000 og hefur komið danska landsliðinu á tvö stórmót af þremur mögulegum, HM árið 2002 og EM árið 2004. Honum mistókst hins veg- ar að koma Dönum á HM í fyrra og nú er ljóst að Danir verða ekki með á EM á næsta ári. Olsen er með samning til ársins 2010 en margir sparkspekúlantar í Danmörku telja að hans tími með landsliðið sé liðinn og tími sé kom- inn á að skipta um mann í brúnni. „Olsen og DBU (danska knatt- spyrnusambandið) þurfa að horfast djúpt í augu. Eiga þeir eitthvað í pokahorninu? Ég hef mínar efa- semdir. Það eru blikur á lofti um að samstarf þjálfarans og sambands- ins sé ekki að ganga upp," segir Pet- er Bruchmann, ritstjóri íþróttablaðs B.T. í Danmörku. Brian Laudrup, fýrrverandi lands- liðsmaður Dana, gagnrýnir einnig landsliðsþjálfarann. „Leikmennirnir eru ekki nógu góðir og hann (Mor- ten Olsen) lætur þá spila erfiðasta fótbolta sem hægt er,“ segir Laudrup og á þar við leikaðferðina 4-3-3, sem er hálfgert vörumerki hjá liðum sem Olsen stýrir. Steen Ankerdal, formaður sam- taka íþróttafféttamanna í Danmörku, tekur í sama streng og Laudrup og gagnrýnir leikaðferð Mortens Olsen. „Olsen er of fastur á sínum skoð- unum og er ekki nægilega sveigjan- legur. Ég er ekki að segja að skipta eigi um þjálfara í hvert sinn sem gengur illa. Á næsta hálfa ári þarf að fara yfir hverjir af gömlu mönnunum ætía að vera áfram og svo á að spila 4-4-2 í ákveðinn tíma, það passar betur við leikmannahópinn," segir Ankerdal. Olsen er þó hvergi banginn þrátt fyrir gagnrýnina. „Eftír leikinn gegn íslandi getum við fyrst farið í nafla- skoðun. Okkur hefur augljóslega mistekist, en leikurinn gegn Norður- írum var lýsandi fýrir okkar stöðu. Heppnin hefur ekki verið með okk- ur" segir Olsen. dagur@dv.is Vilja nýjan í brúna Danir vilja fá nýjan landsliðsþjálfara (stað Mortens Olsen. ÍÞRÓTTAM0LAR EKKERT FARARSNIÐ A BENITEZ Rafa Benltez segist ekki vera á leiðinni til Bayern Munchen eins og orðrómur er uppi um. Ottmar Hitzfeld er núverandi þjálfari Bayern en samningurhans rennur út (lok þessa tímabils og nokkur vafi ríkir um það hvort samningurinn verði endurnýjað- ur. Á opinberri heimasíðu Liverpool sagði Benites þetta.„Ég hef heyrt sögusagnir af þessu. Það er alltaf mikill heiður að vera orðaður við þjálfarastöð- una hjá stóru liðl því þá er maður greinilega að gera eitthvað rétt. En ég er ánægður hjá félaginu mínu og það er margt sem ég á enn eftir að gera hér. Ég stefni að því að vera lengi hérna," segir Benitez. VIOVERÐUM 10 STIGUM A UNDAN BARCAUMJÓLIN Ramon Calderon, forseti Real Madrid, er yfirleitt með kjaftinn fyrir neðan nefið. Hann hefur lýstþvíyfiraö hannséfullviss um það að Barcelona verði ekki með ( titilbaráttunni og raunarverði þeir úrallri baráttu fyrir jól.„Á 14 mánuðum höfum við losað okkur við 19 leikmenn og komið okkur upp ungu og hungruðu liði. Við spilum við Barca á Camp Nou 22. desember og ég er viss um það að eftir leikinn munum við ganga af velli með 10-12 stiga forskot á Barcelona. Ég er afar ánægður með liöið undir stjórn Bernds Schuster. Við tökum mikla áhættu og það er gaman að horfa á liðið spila. Ég tel að á þessu ári gætum við unnið þrennuna," segir Calderon. HENRYERSÁTTUR Thierry Henry sér alls ekki eftir þv( aö hafa fariö til Barcelona frá Arsenal. En menn hafa talið hann ekki njóta s(n á meðal allra þessara stórstjarna sem eru(liðinu.„Ég kom til Barcelona til þess að upplifa nýtt ævintýri, fá eitthvað spennandiílífmitt sem erólíktþví seméghefgert áður. Ég elska áhorfendurna og alla ástríðuna sem er fyrir knattspyrnu. Ég er fullviss um að ég gerðl rétt með því að skrifa undir hjá Barca. Ég þarf bara smá stund til viðbótar til þessa að aðlagast knattspyrnunni. Hún er hægari en ég á að venjast frá Englandi og miðjumenn- irnir hér hafa fleiri möguleika til þess að spila boltanum. En mér finnst ég engu minna mikilvægur hér en þar," segir Henry. DECO AFRAM MIKILVÆGUR Og enn af Barcelona. Deco sagði ( nýlegu viðtali að hann hefði ákveðið að vera áfram (Barcelona (sumar eftir að hann hefði fundið fyrir þv( að þörf væri fyrir hann (liöinu.„Þeir sögðu mér að ég væri hluti af verkefninu sem væri ffam undan og ég tók orð þeirra trúanleg. Þaö má hins vegar ekki gleyma því að það kemur að því í ferli hvers leikmanns að hann þarf að skipta um félag. Ég er með samnlng til 2010 og mig langar að vera lengur en þaö. En ef liðið vill mig ekki áfram þarf ég að fara annað. Það gerist alltaf og er hluti af ferli leik- manns," segir Deco.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.