Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Side 21
DV Umræða ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 21 L ! 1 fr Ptúsinn fá Jón Ásgeir I Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir fyrir að óska þess að gestirnir í brúðkaupi þeirra styrktu frekar gott málefni heldur en að gefa þeim gjafir. SPURNINGIN ERRÉTTAF LÖGREGLU AÐ BEITA ÓMERKTUM BÍLUM VIÐ UMFERÐ- AREFTIRLIT? „Það getur verið réttlætanlegt. Umferðin er hættulegasti vettvangur okkar í daglegu lífi og stundum getur ómerkt eftirlit þjónað þeim tilgangi að koma (veg yfir ofsahegðun. Ég vissi hins vegar ekki að fastir starfsmenn væri við þessa iðju," segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri F(B. DV greindi frá því í gær að tveir lögreglumenn sinna umferðareftirliti á höfuðborgarsvæðinu. Þeir eru óeinkennisklæddir og á ómerktum b(l. Það sem af er árinu hafa nærri 8.000 ökumenn verið sektaðir af tvímenn- ingunum. MYNDIN Kátur Eggert Magnússon stjórnarformaður enska úrvalsdeildarliðsins West Ham sendi stuðningsmönn- um félagsins góðar kveðjur eftir leik West Ham og Bolton fyrr í mánuðinum. Mynd-Getty Maðurinn við enda- markgetu sinnar Um heiminn fer leynt og lj óst kvíði af ástæðum sem maðurinn reynir að leyna með sömu blekkingum sem drifu hann áfram í gegnum söguna en þær gagnast ekki lengur: Mann- kynið stendur andspænis endimörk- um getu sinnar og þeirri staðreynd að orka jarðar er auðsæilega á þrotum. Innan skamms mun maðurinn vera í svipuðum sporum og fyrir þremur öldum, við upphaf iðnvæðingarinnar þegar bjartsýni nútímamanns hófst, byggð á trú á endalausri framþróun tækninnar. Ástæðan var skiljanleg, í anda upplýsingarinnar gerðu menn sér grein fyrir að í þeim sjálfum og jörðinni bjó leynd, óbeisluð orka. En sá er munur á þessum liðna b'ma og þeim sem við lifum á, að þá var hægt að vinna ótal margt með afli hug- vitsins úr iðrum jarðar en næstum engin leið að gera það lengur. Getan og auðlindirnar eru ekki bara of vel þekktar eigindir heldur hefur þeim verið sóað í þarfir fyrir hamingju sem fannst aldrei. Hún var ein blekJdngin í viðbót og maðurinn stendur hrygg- ur og reiður við takmörk hæfninn- ar. íþróttamenn geta aldrei stokkið hærra, hámarkinu er náð, einu gildir þótt þeir nærðust á orkulyfjum; að- eins auglýsingin og æsingurinn eru eftir. Auðmenn geta ekki orðið ríkari en nú þegar; aðeins fréttir í fjölmiðl- um eru eftir. Enginn fær meiri fúll- nægingu en hina alkunnu, þótt Vi- „Getan og auðlindirnar eru ekki bara ofvel þekktar eigindir heldur hefur þeim verið sóað I þarfír fyrir hamingju sem fannst aldrei." agra sé tekið inn kvölds og morgna. Þetta er eins með konur, þótt þær fengju með ígræðslu fjóra snípa og menn tækju samkvæmt lögum til- lit til þeirra allra. Angist mannsins, eimrlyíjaneysla og afbrot, nauðgan- ir, slagsmál og heimilisofbeldi, stafa af tilfmningu fyrir endalokum sem enginn reynir að finna á útgönguleið til nýrrar víðáttu. Útrásin, virkjan- ir og þráláta íslenska orkukjaftæðið sprettur af vitund athafnamanna og menntavargsins um að tími þeirra hafi ekki komið fyrr en við enda- lok skeiðs í mannkynssögunni. í ör- væntingu finnst þeim að þeir megi engan tíma missa. Framkoma þeirra er í anda kjörorðs: Eyðið og drottn- ið! Aðeins fáir þora að standa uppi í hárinu á ráðvillingunum sem skapa þennan tíðaranda, enda eru flest- ir skuldugir, ófrjálsir vegna lána, bankabundnir. Þannig er þrælahald nútímans. Menn geta varla hreyft sig, og í fjötrum sínum er ungt fólk, sök- um einskis pólitísks uppeldis, ófært um að mótmæla með öðrum hætti en þeim að nota sitt einkaframtak: að lemja, skemma fyrir öðrum ein- staklingum. Þetta eru hvorki afbrot né glæpir heldur dapurleg útrás orku og reiði, dáðir hins ráðþrota manns, oft drýgðar í skjóli nætur. Sandkassinn Valgeir vill fleiri daga tungumála DA6UR (SLENSKRAR TUNGU fór ekki framhjá neinum. Við héldum upp á 200 ára aftnæli Jónasar Hallgrímsson- ar og lofuð- um mikilvægi þess að gera íslenskunni hátt undir höfði. Ég er einnafþeim sem fögnuðu deginum og notaði tækifær- ið til þess að leiðrétta ambögur samferðamanna minna við hvert tækifæri. Ég er sammála öllu því sem sagt er um að viðhalda ís- lenskunni, en í fjölþjóðlegu sam- félagi líkt og á íslandi væri margt vitlausara en að gera öðrum tungumálum hátt undir höfði. ÞESS VE6NA legg ég til að dagur erlendrar tungu, segjum bara enskrar tungu, verði haldinn hátíðlegur hér á landi. Fjórði júlí væri vitaskuld kjörin dagsetn- ing til þess að halda þennan dag hátíðlegan. Þannig gætum við glaðst með vinum okkar í vestri. Tilgangur- inn með degi enskrar tungu væri auðvit- að til að „raise awareness," um Qölda erlendra rík- isborgara sem hér búa. Reykjavík er að breytast hratt í „multi-cosmopolitan" menn- ingarborg og við verðum að stemma stigu við því. AÐ MÍNU MATI yrði þessi dagur „heads on", einn af langskemmti- legustu þemadögum ársins. Við fslendingar megum nefnilega ekki gleyma okkur í þjóðremb- unni með því að minnast bara íslenskra skálda og rithöfunda. Hvað með pólska rithöfundinn Henryk Sienkiewicz, sem hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmennt- um árið 1905? Þeir rúmlega tíu þúsund Pólverjar sem hér búa myndu örugglega taka því fagnandi ef við myndum minnast hans á degi erlendr- ar tungu. Þetta er kúl hugmynd, „right"? „Ég heiti Sigurjón M. Egilsson og er ritstjóri DV. Mér er ekki sama hvernig fjölmiðlum er stjórnað eða hvernig fréttir þeirra eru unnar. Sjálfstæði, kjarkur og sanngirni skiptir öllu hjá fjölmiðli eins og DV. Fólk á skilið dagblað sem talar þeirra máli. Ég tala þínu máli." Blaða-maðurKK*starfsmaður blaðs, sá sem hefur atvinnu af að skrifa í blöð - íslensk orðabók r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.