Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 Fókus DV frá Þórunni Hjá JPV útgáfu er komin út bókin Kalt er annars blóð, skáldsaga um glæp eftir Þórunni Mu Valdimars- dóttur. I kuldalegri Reykjavíkur- borg flögrar krummi um og fylgist með viðburð- um sem draga munu dilk á eftir sér; peningar skipta um hend- ur, kettir eru keyrðir niður, hús brennd og menn skotnir * eins og skepnur. * ÞegarÁsaflnnur af tilviljun lík í malarhaugi norðan heiða ber margt fyrir augu sem áður hefur verið hulið. Þórunn hefur áður sent ffá sér skáldsögur, ljóðabækur, ævisögur og sagn- fræðiverk og unnið til ýmissa við- urkenninga, meðal annars hlotið Menningarverðlaun DV. Nýbók Einars Más Hjá Máli og menningu er kom- in út skáldsagan Rimlar hugans eftír Einar Má Guðmundsson. í ársbyrjun 2002 fékk höfundurinn bréf frá gæsluvarðhaldsfanga á Litla-Hrauni sem sagði honum sögu sína, um leið og hann færði Einari þakkir fyrirverkhans sem hefðu skipt hann mikiu máli í fangelsinu. Þremur árum síðar liggja leiðir þeirra saman; fanginn þá að koma úr fangelsi en Einar Már úr áfengismeðferð. Rimlar hugans er sögð ekki bara óvenjuleg og áhrifamikil ástarsaga tveggja einstaklinga sem lenda í hremmingum eiturlyfja heldur takist höfundurinn jafhframt á við sjálfan sig af fágætri einlægni og hispursleysi. fl Þór.'irinn Elcljárit Fjöllin verða að duga Nýljóðabók Þórarins Fjöllin verða að duga, nýljóða- bók eftir Þórarin Eldjárn, er komin út hjá Vöku-Helgafelli. Þórarinn hefur um árabil verið eitt vinsælasta skáld íslendinga og sent frá sér fjölda ljóðabóka, ásamt skáldsögum og smásagna- söfrium. Lágstemmd ljóðin í þessari nýju bók eru fjölbreytt að formi og inntaki en mynda þó saman sterka heild þar sem bar- áttan við að finna hugsun sinni orð er áleitið viðfangsefni, eins og .segir í tilkynningu. RAUNSÆTT Á KRAFTA OG GETU „Það sýnir vissulega metnað að takast á við góðar leikbókmenntir. En fólk verður líka að vera raunsætt á eigin krafta og getu." SNERTINGIN í BÆJARBÍÓI Kvikmyndin SNERTIHGIN (Beröringen, 1971) eftir INGMAR BERGMAN verður sýnd á vegum Kvikmyndasafns Islands I Bæjarbíói í kvöld. Þar segir frá Karin sem virðist lifa f hamingjusömu hjónabandi. Hún lætur hins vegar eftir sér að halda framhjá manni sínum og hefja samband við fornleifafræðinginn David. (aðalhlutverkum eru Elliott Gould, Bibi Andersson og Max von Sydow. Sýningin hefst kl 20. Leikflokkur sem kallar sig Fjalaköttinn er um þessar mundir að sýna Heddu Gabler í Tjarnarbíói. Ég veit sama og engin deili á þessum hópi sem er sérkennilega samsettur að því leytí að lítt þekkt- ir leikarar fara með burðarhlutverkin, en nokkrir mjög þekktir með hin minni. f leikskránni er ekki orð að finna um ferii þeirra, menntun og starfs- reynslu. Sama gildir um aðra þátttakendur í verk- efninu. Með því að leita á Netinu sé ég að leikend- ur hafa lokið leiklistarnámi frá Bretlandi, en ég hef ekkert séð til þeirra fyrr, svo ég muni. Ég veit ekld heldur hvort þeir hafa nokkum tímann leikið sam- an áður. Það sýnir vissulega metnað að takast á við góð- ar leikbókmenntir. En fólk verður líka að vera raun- sætt á eigin krafta og getu. Engum píanóleikara með fullu vití dytti í hug að flytja sónötur Beethovens opinberlega nema að undangengnu margra ára ströngu námi, þjálfun og æfingu. Leikrit Ibsens eru að sínu leytí sambærileg við sónötur Beethovens, margradda, ómstríð, full af blæbrigðum og dram- atískri kynngi sem er þó haldið aftur af í lengstu lög. Ibsen lifði á tímum mikillar stjörnudýrkunar, en hann skrifaði ekki á forsendum stjörnuleikhússins. í fámennum leikritum hans er hvert einasta hlut- verk nauðsyniegt fýrir heildina. Erlendis telja hin- ir frægustu leikarar sig fullsæmda af því að túlka minni hlutverkin sem alltaf reynast hafa eitthvað að gefa þeim sem kunna að nýta sér þau. Sem sagt: Ibsen er aðeins á færi fullþroska lista- manna. Um það er sýningin í Tjarnarbíói talandi vottur. Því miður hefur ekkert upp á sig að gefa leik- endum umsögn um frammistöðu þeirra. Enginn þeirra ræður við hlutverk sitt eða skilar boðlegri vinnu nema einn, sem kemur ekkert sérstaklega á óvart: Sigurður Skúlason. Sigurður hefur áður leik- ið skyldar persónur í Ibsen frábærlega vel; ég man LEIKDÓMUR FJALAKÖTTURINN: Hedda Gabler eftir Henrik Ibsen |Éf Tónlist: Jóhann G. Jóhannsson Leikstjóri: Björn Gunnlaugsson m qk Leikmynd og búningar: Helga Rún Pálsdóttir jr. Þýðandi: Ellen McKay Jón Viöar Jónsson leiklistargagnrýnandi sérstaklega eftir Engstrand smið í Afturgöngum íyrir líklega þrettán árum. Sumir í hópnum draga kannski ekki ósnotrar línur upp í byrjun, en síðan, þegar alvaran hefst og hverir sálarinnar eiga að fara að ólga og gjósa, fer allt í handaskolum og ieikurinn endar í vandræðagangi, hrópum og köllum. Meira að segja Ragnheiður Steindórsdóttír og Valdimar Örn Flygenring eru einhvers staðar útí að aka sem bendir tíl að leikstjórninni hafl í meira lagi verið áfátt. En fyrst og síðast er þetta spurning um færni leikenda. „Það er alltaf betra að það sé einhver inni- stæða," sagði Gísli heitinn Halldórsson stundum við nemendur sína og samstarfsmenn með þeim ívið kaldhæðna þunga sem var hans sérstaki máti. Mér varð hugsað til þeirra orða þegar ég gekk út úr Tjarnarbíói á laugardagskvöldið og leit yfir Tjörn- ina í átt að Iðnó. Þar var Hedda Gabler fyrst leikin á íslandi. Reyndar var stórleikur Helgu Bachmann og Helga Skúlasonar tekinn upp og sýndur í Sjón- varpinu. Hvemig væri að endursýna hann við tæki- færi, Þórhallur? Eða jafnvel setja upp nýja Heddu; þú ættír að hafa ráð á því nú - það hlýtur að vera hægt að gera fleira við aurinn frá Björgólfi en búa til krimma! Kannski virkar gamla sýningin ekki í dag, en það væri samt fróðlegt að fá að sjá hana, því að hún er partur af okkar sögu og margir minn- ast Heddu Helgu með hrifningu. Ég get enn fundið hrollinn sem fór um mig þegar hún stakk handrit- inu í ofninn og flöktandi skin loganna lék um andlit hennar á meðan hún brenndi „barnið". Ég ætla ekki að orðlengja frekar um sýningu Fjalakattarins. Það skásta í henni er leikmyndin sem er snotur, þó ég komi henni ekki fýllilega heim og saman við andann í verkinu. Líklega hefði hún passað betur við Kirsuberjagarðinn. Einhvem veg- inn hefur mér alltaf fundist að leikmynd við Heddu Gabler eigi helst að hafa yfir sér svip grafhýsis. Það er sú kennd sem drepur Heddu: að hún sé að lok- ast inni í lífsmáta tílfinningalegs dauða, að hún sé að missa allt sem heitír frelsi, allt sem heitir feg- urð. Hún er hvort tveggja í senn: fórnarlamb harð- neskjulegs karlaveldis og rómantíker sem neitar að játast hversdagsleikanum. í snjallri túlkun vekur hún bæði samkennd okkar og andúð; það er það sem gerir hana svo makalausa og veldur því að nýj- ar kynslóðir leikara em alltaf að takast á við hana. Þjóðleikhúsið hefur aldrei sýnt Heddu Gabler frekar en ýmis önnur höfuðverk Ibsens og Strind- bergs, s.s. Fröken Júlíu, Rosmersholm eða Draum- leikinn. Ef marka má orð Tinnu Gunnlaugsdóttur, virðist hún ekki átta sig fýllilega á því hvað það er nauðsynlegt. Hún segist frekar vilja flytja samtíma- verk en klassík - og sýnir það í verki. En þá gleym- ir hún því á hvaða öxlum samtímaskáldin standa. Og að íslendingar eiga heimtingu á því að öflugasta leikhús þjóðarinnar kynni þeim jafnt og þétt bestu leikbókmenntír heimsins - með bestu kröftum sem völ er á. Þrátt fyrir allt hafa engin síðari tíma leik- skáld farið fram úr þeim Ibsen og Strindberg, þegar þeirvom oghétu. íslenskuverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar vom afhent í Borgarleikhúsinu á föstudaginn í fyrsta sinn. Um kvöldið var svo frumsýnt leikritið Konan áður á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Ljósmyndari DV leit við. Mættir Baldur Þórhallsson og Felix Bergsson mættu á frumsýningu Konunr ar áður á Smíðaverkstæði Þjóðleikhúss- ^insá föstudagskvöldið. Brosmildar Tinna Gunnlaugsdóttir og Inga Jóna Þórðardóttir voru brosmildar á frumsýningunni. Verðlaunahafar Þrír þeirra hátt f hundrað grunnskólanema sem fengu Islenskuverðlaun menntaráðs Reykjavfk- urborgar sem afhent voru í Borgarleik- húsinu á föstudaginn. Vigdís Finnbogadóttir Forsetinn fyrrverandi ávarpaði verðlaunahafa og aðra gesti við afhendingu Islenskuverð- launa menntaráös Reykjavíkurborgaren Vigdís er verndari verðlaunanna. >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.