Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Síða 27
DV Bíó ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 27 Tónlistar- og menningarhátíðin Reykjavík to Rotter- dam verður nú haldin í annað skiptið. Þá munu tólf íslenskar hljómsveitir skemmta Hollendingum auk þess sem kvikmyndin Heima og tíu íslenskar stutt- myndir verða sýndar. Marcel Deelen Heldur utan um ReykjavikTo-sjóðinn og vinnur að því að kynna íslenska tónlist og listir erlendis. TONUSTARHATIÐIHOLLANDI Næstu daga munu tólf íslenskar hljómsveitir leggja land undir fót og halda til Rotterdam. Ástæða útrásarinnar er tónlistar- og menningarhátíðin Reykjavík to Rotterdam sem ffam fer 22. til 24. nóvember. Hátíðin er haldin í annað skiptið í ár en það er Hollendingurinn Marcel Deelen sem hef- ur veg og vanda af hátíðinni. „Mig langaði svo til að flytja hingað til íslands árið 2005 og fór þá að velta því fyrir mér hvort ég gæti haldið svona litla tónlistarhátíð til að kynna Hollendinga fyrir íslenskri tónlist. Þetta varð svo einhvern veginn alltaf stærra og stærra og hátíðinni var tekið al- veg rosalega vel. Ég ákvað þá að halda þetta ann- að hvert ár í Rotterdam og hafa höfuðstöðvar há- tíðarinnar þar," segir Marcel. Tvö svið með íslenskri tónlist Þær hlj ómsveitir sem spila á Reykjavík to Rott- erdam í ár eru: Mr. Silla and Mongoose, Hafdís Huld, Rass, Apparat Organ Quartet, Seabear, Lost in Hildurness, Reykjavík!, Mammút, Evil Madness, Rökkurró, múm og Ghostígital. Auk plötusnúðanna Gísla Galdurs og DJ Musician. „Það verða tveir tónleikastaðir og eingöngu spiluð íslensk tónlist. Einn staðurinn verður fyrir svona lágstemmdari tónlist og hinn fyrir harðari sveitirnar. Við reynum alltaf að fá nokkrar þekkt- ar sveitir tíl að spila á hátíðinni eins og múm, en svo viljum við líka leggja áherslu á að kynna minna þekktar sveitir fyrir Hollendingunum. Auk þess ætlum við líka að frumsýna Sigurrós- armyndina Heima og tíu íslenskar stuttmyndir á hátíðinni." Berlín og Kaupmannahöfn á næsta ári Að baki hátíðinni er sjóðurinn Reykjavík to Foundation sem Marcel hefur umsjón með. „Sjóðurinn er meðal annars styrktur af Ice- landair, Samskipum, Reykjavíkurborg og fleir- um auk þess sem við fáum styrk úr nokkrum hollenskum sjóðum. Þetta er samt algjör sjálf- boðavinna og allir sem að þessu koma og þar á meðal ég vinnum þetta frítt. Þeir einu sem fá eitthvað borgað eru tónlistarmennirnir og það múm Spilar í Rotterdam á laugardagskvöldið en hljómsveitin Rökkurró sér um upphitun. er mjög lítið meira að segja sem þau fá fyrir sinn snúð," segir Marcel. Marcel segir stefnuna núna vera að flytja hátíðina til fleiri landa og hafa dagsetning- ar þegar verið bókaðar fyrir Berlín og Kaup- mannahöfn næsta sumar. „Við ætlum að halda Reykjavík to Berlin og Reykjavík to Copenhag- en í maí á næsta ári, með sama sniði og Reykja- vík to Rotterdam. Svo ætlum við að fara til Helsinki og Eystrasaltslandanna árið 2009. Þá myndi hátíðin reyndar snúast meira um kynn- ingar á íslenskri list almennt en ekki bara tón- list. Svo verðum við bara búin að leggja undir okkur heiminn á endanum," segir Marcel hlæj- andi að lokum. krista@dv.is Framhaldinu frestað Tom Hanks og félagar sem vinna nú að framhaldinu af Da Vinci Code- kvikmyndinni, Angels & Demons, eru fyrstir til að fá að kenna á verkfallinu í Hollywood. Forstjórar Columbia Pictures hafa nú frestað allri framleiðslu á myndinni. Talið er að óskarsverðlaunahafmn og handritshöfundurinn Akiva Goldman hafi ekki verið búinn að fullklára handritið en hann er eins og stendur að fara í verkfall f þriðju vikuna í röð. Það er því ákveðið að myndin komi ekki út fyrr en árið 2009 ístað 2008. GerirLísuí undralandi Kvikmyndagerðarmaðurinn Tim Burton ædar sér nú að endurgera sögu Lewis Carroll, Alice In Wonderland eða Lísu í Undralandi. I þetta skipd ædar Burton að notast við sérstaka þrívíddartækni líkt og notuð var við gerð Bjólfskviðu. Myndina gerir hann fyrir Walt Disney Studios en Burton skrifaði nýlega undir samning um að gera tvær kvikmyndir fyrir fyrirtækið. Hin myndin kemur til með að vera sagan um draugahundinn Frankenweenie. Bræðrabylta verðlaunuð StutUnyndin Bræðrabylta eftir Grím Hákonarson, sem hlaut Edduverð- launin sem stuttmynd ársins, heldur áfram að raka inn verðlaunum. Um helgina sem leið var myndin verðlaunuð á tveim hátfðum. Á Brest European Short Film Festíval hlaut Bræðrabylta aðalverðlaun í flokki evrópskra stuttmynda en hátíðin er með stærri stuttmyndahátíðum Evrópu. Auk þess lenti myndin f þriðja sæti á Alcine Film Festival f Alcala á Spáni en báðum hátíðum lauk umhelgina. Lay Low fer til Bretlands í dag til að spila á níu tónleikum. Hún flýgur heim þegar túrinn er hálfnaður: FLÝGUR HEIM Á MILLITÓNLEIKA „Ég fer til Bretlands á morg- un (í dag)," segir Lovísa Elísabet Sigríðardóttir, betur þekkt sem Lay Low, um tónleikaferð sína um Bretlandseyjar á næstu dög- um. „Ég spila þar á níu tónleik- um með norskri hljómsveit sem heitir Adjagas," segir Lovísa en tónleikarnir eru meðal annars í Leeds, Manchester, Brighton, Lay Low Heldur í dag til Bretlands f tónleikaferðalag. London og Glasgow. „Adjagas er mjög sérstök sveit og spilar eins konar jógatónlist ef ég get orðað það þannig," en tónleikaferðin er styrkt af breskum listasjóði. Lovísa sýnir um þessar mundir með Leikfélagi Akureyr- ar í leikritinu Ökutímum. „Leik- ritið er þroskasaga konu sem segir frá lífi sínu og ég er með henni uppi á sviði og spila tón- list á meðan," en Lovísa kemur til með að fljúga heim um helg- ina í miðri tónleikaferð til þess að spila í leikritinu. „Þetta hef- ur bara gengið mjög vel og það er væntanleg plata með tónlist úr leikritinu. Það verða á henni nokkur Dolly Parton-lög og síð- an nokkur frumsamin." Lovísa segir lítið annað á dag- skrá hjá sér fyrir jól nema sinna Ökutímum með LA en hún sé þó farin að huga að næstu plötu. „Ég er ekkert farin að taka upp en maður er auðvitað að velta ýmsum hugmyndum fyrir sér." asgeir@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.