Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Síða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 Síðast en ekki síst DV VELTINGUR VÍIAHRINGUR VÍSAKORTANNA Fæst okkar kunna sér hóf í aðdraganda jólanna þótt áföll undanfarinna ára séu í fersku minni ef grafið er í hugskotinu. Frá því kreditkortin hófu innreið sína hafa þúsund- ir lent í vanda vegna þess að eytt er um efni rafiö er í * fram. Vfindinn er sá að maður þarf ekki að eiga fyrir því sem er eytt í aðdraganda jólanna íyrr en í febrúar. Og það er auðvelt að telja sér trú um það í bríma aðventunnar að í febrúar verði útborguð laun drýgri en áður. Reyndin er svo venjulega sú að eytt er um efni fram og þegar kemur að skuldadögum er stór gjá á milli greiðslugetu og þeirrar upp- hæðar sem krafist er. Vlð erum komin á kaf í ofneyslu og bruðl. Eina ráðið er að hemja sig í jólagjöfum og þeim mun- aði sem fólk hellir sér út í á hátíð ljóss og friðar. í stað græðginnar væri ráð að temja sér nægjusemi og losna þannig við yfirvofandi þjáningu febrú- armánaðar þegar innheimta kreditkortanna hefur innreið sína. Sumir grípa á það ráð að dreifa greiðslum á nokkra mánuði og eru þannig fram á sumar að vinna niður útgjöld jólanna. Þannig væri klókt að skipu- leggja útgjöldin tímanlega og fara ekíá ffarn úr áætlun- um. Auðvitað er einfaldara að ráðleggja slíkt enfaraeftfrþví sjálfúr. En það kostar ekkert að reyna að koma böndum á ofneysluna. Og ef það mistekst í ár er ekkert að gera nema að reyna aft- ur að ári. Ef alft um þrýtur er ekkert að gera nema klippa kortin oglosna þannig úr vítahring Vísakortanna. NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ DVÁDV.IS DVer aðgengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr.á mánuði LANGARMESTTIL AÐ SKAMMA BUSH Bjartur Guðjónsson gerði sér lítið fyrir og sigraði í Laugardagslögunum um helgina í frumraun sinni sem söngvari. Hann söng lagið The Girl in the Golden Dress sem móðir hans Andrea Gylfadóttir samdi. Hver er Bjartur Guðjónsson? „Ungur og upprennandi." Hvað drífur þig áfram? „Tilhlökkun um betri tíð og blóm í haga." Við hvað starfar þú? „Ég er vörubílstjóri eins og er.“ Hefur þú sungið áður? „Nei, þetta var frumraun mín sem söngvari." Varst þú stressaður á laugardag- inn? „Já!" Er texti lagsins byggður á þinni reynslu? „Nei, hann er það nú ekki. Ég setti mig bara í karakter. Sá þetta nokkurn veginn fyrir mér sem eitthvert leikrit. Reyndar sá ég nýlega myndbrot úr Queen of the Universe sem er fegurð- arsamkeppni klæðskiptinga. Það gæti verið að það hefði haft einhver áhrif. En maður veit það ekki." Hvernig er að vinna með mömmu? „Það var bara mjög gaman. Mér finnst ótrúlega fyndið að þetta fárán- lega lag hafi sprottið upp úr okkar samstarfi. Allir bjuggust við einhverj- um hip hop- eða rapp-bræðingi þar sem ég myndi beatboxa en þetta kom upp úr krafsinu." Hvað er að vera taktkjaftur? „Sú list að geta framkallað tón- list með munninum eða haldið uppi ryþma og melódíu á sama tfrna." Draumastarfið? „Ég stefni á að geta unnið við tón- list í framtíðinni. Það er draumurinn. Ég er um þessar mundir að undir- búa inntökupróf fyrir tónlistarbraut í LHÍ." Hver er besti tími ársins? „Þegar sumarið er á leiðinni. Þegar það er búið að vera vor í góðan mán- uð og maður finnur að sumarið er al- veg að detta inn. Það er góður tfrni, maður." Hver er íslands eina von? „Poetrix, nei, djók!" Ef þú mættir segja einum einstaklingi til syndanna, hver væri það? „Ædi það væri ekki bara George Bush. Ég myndi segja við hann: „Hættu þessu rugli þarna. Skamm- astu þín. Ha. Já hættu þessu bara."" Ertu heimsmeistaraefni? „Ég veit það nú ekki en ég stefni MAÐUR DAGSINS á að sigra allavega Litháen og fleiri minni spámenn." Liggur framtíðin í söngnum? „Framtíðin liggur meira í músík- inni sem slíkri en aldrei að vita nema maður syngi eitthvað aftur. Það er meira að segja frekar líklegt." SANDKORN ■ Forseti íslands Ólafur Ragnar Grímsson kvaddi sér hljóðs í brúðkaupi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Ingibjargar Pálmadóttur um helgina. í ræðunni valcti hann athygli veislugesta á sjónvarps- myndavél- um sem voru á víð og dreif um salinn og því að allt í veislunni væri fest á filmu. Forsetinn gantaðist svo með að þetta hlytu að vera upp- tökuvélar frá Björgólfi Guð- mundssyni og því væri viðbú- ið að brúðkaupsveislan yrði meðal hápunktanna í jólaefni Ríkissjónvarpsins, enda væru nú órjúfanlegir þræðir á milli Björgólfs og RÚV. ■ Guðjón Pedersen Borgar- leikhússtjóri hélt upp á fimm- tugsafmælið sitt um helgina með stæl. Gleðskapurinn fór fram að heimili hans og Katr- ínar Hall, listræns stjórnanda íslenska dansflokksins. Meðal gesta voru flestir þekktustu leikarar og skemmtikraft- ar þjóðar- innar auk mága Guð- jóns, þeirra Bjarna Hall, söngvara Jeff Who? og Franks Hafl útvarps- manns. Troðið var út úr dyrum og sér- stakt partítjald var reist úti í garði þar sem Sniglabandið sá um að skemmta mannskapn- um langt fram á nótt. ■ Meðal gesta í íslandi í dag á Stöð 2 á föstudaginn voru tveir ágætlega þjóðþelcktir menn sem bera nafnið Jón Karl Helgason, annars vegar bókmennta- fræðing- urinn og hins vegar kvikmynda- gerðar- maðurinn, og var ætlað að ræða um það sem hæst bar í síðustu viku. Það varð hálfvandræðalegt þegar kvikmyndagerðarmaðurinn Jón Karl hélt tölu um hversu kostuleg sagan af beinum Jónasar Hallgrímssonar er. Á meðan sat bókmenntafræð- ingurinn, sem skrifað hefur heila bók um efnið, yfirvegað- ur og sat greinlega á sér. kristjanh@dv.is 1 »7lTc11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.