Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Blaðsíða 32
Tundurdufl í netin Kalla þurfti út sprengjusérfræð- inga eftir að tundurdufl hafnaði í veiðarfærum togskipsins Þorvarðar Lárussonar frá Grundarfirði á laug- ardag þar sem það var að veiðum undan Látrabjargi. Ahöfn skipsins hafði samband við Vakstöð siglinga vegna stórrar álkúlu sem kom í veiðarfærin. Eftir að skipstjóri lýsti kúlunni fyrir sprengjusérfræðingum ^ varð ljóst að um væri að ræða þýskt tundurdufl, líklega frá seinni heims- styrjöld. Skipið kom strax í land með tundurduflið sem var sprengt á afviknum stað en sprengiefnið var vel virkt. Sparkaði í liggjandi unnustu Aðalmeðferð í máii flugstjór- ans Jens R. Kane fór fram í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær. Fyrr- verandi unnusta hans kærði hann t fyrir líkamsárás en honum er gef- ið að sök að hafa tekið hana háls- taki, slegið höfði hennar í vegg og sparkað í hana þar sem hún lá á gólfi íbúðar hans. Jens komst í fr éttirnar í ágústlok þegar fjallað var um að flugstjóri hefði smyglað unnustu sinni frá Venesúela með fragtflugi til íslands. Það mál var látið niður falla. Jens neitaði stað- fastlega sök vegna ásakana um líkamsárás. Gekk undir öðru nafniítvöár Lögreglustjórinn á Eskifirði hef- ur höfðað mál á hendur Pólverjan- um Pavel Janas fyrir að þykjast vera annar en hann er. Með því að þykj- ast vera annar maður í tvö ár, undir nafninu Henryk Stanislaw Szelag, hefur Pavel falsað skjöl, ffamvísað fölsku vegabréfi og fengið þannig * dvafarleyfi frá Útíendingastofnun, skrifað undir ráðningarsamning, falsað ökuskírteini og tekið verklegt próf á vinnuvél. Krafist er að skír- teinin hans verði gerð upptæk. Pavel neitaði sakargiftum í Héraðsdómi Austurlands í gær. Pólverji undirfölsku flaggi! / FRÉTTASKOT 51 2 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónurfyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. ÞRfÐJUDAGUR 20. NÖVEMBER 2007 ■ DAGBLAÐIÐ VlSIR STOFNAÐ 1910 Farþegar réðust af ofsa á Kjartan H. Margeirsson strætisvagnabílstjóra: BILSTJORIBARINN FYRIR AÐ RUKKA UM FARGJALD EINAR ÞÓR SIGURÐSSON blciðamaður skrifar „Þeir létu höggin dynja á mér alveg miskunnarlaust," segir Kjartan H. Margeirsson strætisvagnabílstjóri sem varð fyrir fólskulegri árás tveggja ungra pilta í síðustu viku. Atvikið átti sér stað fyrir utan Grímsbæ um klukkan ellefu á fimmtudagskvöldið. Piltarnir sem eru á bilinu sex- tán til sautján ára stigu þá inn í vagninn en neituðu að borga fargjaldið. Þegar Kjartan benti þeim á að þeir yrðu að borga brugðust þeir ókvæða við. Fólskuleg árás „Þeir neituðu að borga. Ég sagði þeim að annaðhvort yrðu þeir að borga eða yfirgefa vagn- inn. Að svo búnu hlupu mennimir aft- ur fyrir vagninn og tóku loftið úr einu afturdekki strætisvagnsins þannig að hann varð óökufær. Ég fór þá aft- ur í vagninn til að athuga hvað væri í gangi. Þá réðst annar þeirra á mig með höggum." Kjartan segir að þá hafi hann hót- að að hringja í lögregluna og gert sig líklegan tíf þess. „Ég fór og settíst við stýrið en þá hlupu þeir á eftir mér og lömdu mig þar sem ég sat," segir Kjartan sem „Ég fór og settist við stýrið en þá hlupu þeir á eftir mér og lömdu mig þarsemégsat" Árás í strætó Piltarnir hentu stærðar grjóthnull- ungi íframrúðuna. Rúðan brotnaði en Kjartan erfeginn að hún hélt. er nánast svartur af mari á líkamanum eftir árásina. Eftir að piltamir höfðu lokið sér af við barsmíðamar reyndi Kjartan að koma vagninum af stað. Þá hlupu þeir ffarn fyrir vagninn og hentu stórum grjóthnulfungi í ffamrúðuna. „Ég sá þennan stóra hnullung stefiia beint á höfuðið á mér. Sem betur fer var rúð- an það sterk að hún hélt, þó hún hafi að vísu mölbrotnað." Ekkert smeykur Kjartan segir að eftir hans bestu vitund séu mennirnir ófundnir. Tveir aðrir farþegar voru í vagninum, annar þeirra eiginkona Kjartans. „Þetta vom mjög óvægnir piltar en ef ég sé þá aft- ur er það á hreinu að ég læt lögregluna hirða þá," segir Kjartan. „Ég er alveg að drepast í hægri hendinni og á erfitt með sumar hreyf- ingar. Ég slapp afveg við mar í and- liti en þetta var langt frá því að vera skemmtileg lífsreynsfa. Eg fór upp á slysadeild og þar kom í ljós að ég var með spmnginn vöðva í öxlinni og mikið marinn á nánast öllum effi hfuta líkamans." Kjartan hefur verið strætisvagna- bílstjóri í 23 ár og segist aldrei hafa lent í öðm eins. Aðspurður hvort hann sé smeykur við að keyra vagninn aftur eftir árásina segir hann að svo sé ekld. „Maður er svoÖtið var um sig en ekk- ert smeykur. Maður á náttúrlega aldrei von á því að vera laminn undir stýri. Það er áhyggjuefni hversu lítillar virð- ingar strætisvagnabílstjórar virðast njóta." fsland til hjálpar Rauði kross (slands sendi í gær 3 milljóna króna styrktarfé til neyðaraðstoðar í Bangladesh. Fellibylurinn Sidr hefur kostað ríflega 2000 heimamenn Kflð og nærri 50 þúsund fjölskyldur hafa misst heimili sín í hörmungunum. mynd-.cetty Starfsmaður í veislu Jóns Ásgeirs og Ingibjargar lenti á spítala: Ástæðulaus ótti í brúðkaupi aldarinnar Hræðsla greip um sig meðal starfs- fólks í brúðkaupi Jóns Ásgeirs Jóhann- essonar og Ingibjargar Pálmadóttur á laugardag þegar einn úr starfsliðinu var fluttur á sjúkrahús vegna salmon- ellusýkingar. Ragnar Kr. Guðmunds- son, eigandi veitingahússins Lauga- áss, staðfestir að nokkur ótti hafi gripið um sig. Ragnar og starfslið hans eld- uðu mat fyrir starfsfólk veislunnar. „Það var þama einhver einn ein- staklingur sem taldi sig hafa feng- ið salmonellu. Það er mjög fátítt að finna salmonellu í mat á Islandi og það er víst að fleiri hefðu fundið fyr- ir því ef svo hefði verið," segir Ragnar. Hann segir enga aðra hafa fundið fyrir einkennum og því sé ftáleitt að haída að um salmonellu hafi verið að ræða. „Þetta var auðvitað grafafvarlegt mál Jón Ásgeir og Ingibjörg Uggur greip um sig þegar starfsmaður í brúðkaupi Jóns Ásgeirs og Ingibjargar taldi sig hafa sýkstafsalmonellu. þegar þetta kom upp, en við vorum á endanum beðin afsökunar á þessum vandræðagangi," segir hann. Veitingahúsið Laugaás sá um mat fyrir um eitt hundrað starfsmenn brúð- kaupsins, bæði föstudag og laugar- dag. Ragnar bendir á að ef salmonella hefði komið upp hjá svo stórum hópi hefðu fleiri líkast til veikst. „Það hefðu örugglega þijátíu tif fjörutíu manns lagst veikir ef salmonella hefði verið á ferðinni. Þetta var bara einn maður og hann getur hafa náð sér í niðurgang hvemig sem er," bætir hann við. Ragnar segir að mikil ánægja hafi verið með matinn og veitingamenn- irnir sem komu að utan tíl þess að sjá um matínn fyrir brúðkaupsgesti hafi borið sérstakt lof á starfsmannamat- inn. „Þeim þóttí mikið tíf þess koma að hægt væri að hafa mat framleiddan í þessu magni svona góðan." Ragnar hefur rekið veitingahúsið Laugaás í 28 ár og kveðst aldrei nokk- urn tímann hafa orðið fyrir því að salmonella fyndist í mat hjá sér. sigtryggur@dv.is Fundusnák við húsleit Lögreglan á Egilsstöðum gerði upptækan svokallaðan corn-snák í öúsleit sem framkvæmd var innanbæjar. Snákurinn sem var í glerbúri í opnu rými í íbúðinni var haldlagður og færður í trygga geymslu á varðstofu lögreglunn- ar. Com-snákar geta orðið allt að tveir metrar að lengd. Snákarnir finnast aðallega í Bandaríkjun- um og þykja þeir vinsæl gæludýr. Snákurinn var aflífaður og mun fulltrúi Heilbrigðiseftirlitsins annast eyðingu á hræinu. Sluppu ótrúlega vel Tvær erlendar konur sluppu vel þegar þær misstu stjórn á bílaleigu- bíl sem þær óku á Biskupstungna- braut í gær. Sfysið varð ldukkan 11.30 skammt austan við afleggjar- ann að Laugarvatni en mikil hálka var á veginum. Konurnar sluppu nánast ómeiddar en þeim var eðli- lega mjög bmgðið eftir óhappið. Bíllinn sem þær ókur er hins vegar gjörónýtur og var hífður burt með kranabíl. Umferð gekk að öðm leytí vel fyrir sig þrátt fyrir að töluverð hálka væri í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í gær. / 1 Litlar samlokur 399 kr. + lítið gosglas 100 kr. - 499 a. v

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.