Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2008, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2008, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 Fréttir DV DV FRÉTTIR Húsbíll stóð í Ijósum logum Eldur kom upp í húsbíl sem stóð fyrir utan íbúðar- húsnæði við Suðurgötu á Akra- nesi. Slökkviliðið náði að ráða niðurlögum eldsins fljótt en talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni en bíllinn er 1989 árgerð. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á Akranesi stóð bfllinn þétt upp við húsið og urðu nokkrar skemmdir á húsinu vegna brunans. Bíllinn er hins vegar handónýtur eftir eldinn. Missti bílinn út af í hálku 27 ára kona slapp án meiðsla þegar hún missti stjórn á bíl sínum við Nesjavallaveg um hádegisbilið í gær. Bíllinn fór út af veginum og endaði á hliðinni. Konuna sakaði ekki en var nokkuð brugðið við óhappið. Bíllinn skemmd- ist nokkuð en var ökufær eftir óhappið. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á Selfossi var mikil hálka á Hellisheiði og í Þrengslunum. Karlmaður missti einnig stjórn á bíl sínum rétt ofan við Draugahlíðar- brekku á Hellisheiði. Það varð honum til happs að vegrið kom í veg fyrir að bfllinn færi út fyrir veginn. Manninn sakaði ekld en bfllinn rispaðist nokkuð á annarri hliðinni. Ánægja með reykingabannið Sjö af hverjum tíu lands- mönnum eru hlynntir því að allir veitinga- og skemmtistað- ir séu reyklausir. Ellefu prósent eru hvorki hlynnt né andvfg og einungis 17 prósent andvíg. Þetta kemur fram í könnun sem Lýð- heilsustöð lét vinna fyrir sig. 95% svarenda sögðu að síð- asta ferð þeirra á veitingahús hefði verið jafnánægjuleg eða ánægjulegri en áður en reyk- ingabanninu var komið á. Svipað hlutfall svaraði því sama þegar spurt var um kaffihús, eða 90% aðspurðra. Kortaþjófar handteknir Lögreglan á Selfossi hand- tók par vegna gruns um að hafa stolið greiðslukorti og notað það til að svíkja út vör- ur í verslunum þar í bæ. Lögreglumenn voru bún- ir að leysa gátuna tveimur klukkustundum eftir að mað- ur gekk inn á lögreglustöðina og kærði þjófnað. Maðurinn sagði að greiðslukorti hans hefði verið stolið úr yfirhöfn í læstum fataskáp á vinnustað hans á Selfossi. Sá hann fljótt að kortið hafði verið notað til að greiða með því vörur í þremur verslunum á Selfossi. lögreglumenn fóru á staðinn, fundu út hver fjársvikarinn var og handtóku svo pilt og stúlku. Þau viðurkenndu að hafa staðið saman að þjófnað- inum á kortinu og úttektinni. Sérkennurum á Akureyri finnst sú þróun skelfileg að æ fleiri konur kjósi að eyða fóstrum ef litningagalli á borð við Downs greinist á meðgöngu. Þeir ætla að boða til fundar þar sem þróunin verður rædd. Þetta kemur i kjölfar umQöllunar DV um málið. „Viljum við veröld þar sem er einungis fólk án vandamála?“ spyr Gustavo Manuel Perez Deniz. Skapandi og jákvæðir lL Brynhildur Kristins- Bk dótt- sem RÓBERT HLYNUR BALDURSSON bladamadut skrifar: roberthbaodvJs Sérkennarar á Akureyri hyggjast boða til fundar þar sem þróunin hvað varðar fóstureyðingar barna með Downs verður rædd. Gustavo Manuel Perez Deniz, sérkennari við Giljaskóla, segir samhug vera meðal akureyrskra sérkennara um að koma saman og ræða málið eftir að þeir lásu umfjöllun DV um málið síðasta föstudag. „Við eigum að hugsa hvernig við förum með fóstureyðingar og íhuga hvernig samfélag við viljum og mannkynið sjálft. Viljum við veröld þar sem er einungis fólk án vanda- mála? Ákveðin bannhelgi er yfir þessum hópum og viljum við varpa hulunni af þeim," segir hann. Eins og DV greindi frá síðasta föstudag hefur eyðingum fóstra sem greinast með Downs-heilkennið, sem og aðra litningagalla, fjölgað gífurlega síðustu árin. Af 27 Downs- heilkennum sem greindust á með- göngu frá árinu 2002 til ársins 2006 var einungis tveimur fóstrum hlíft. Þetta kemur í kjölfar bættrar tækni sem snýr að greiningu fóstra á með- göngu, en æ fleiri konur kjósa að fara í svokallaða fósturskimun sem var innleidd í íslenska heilbrigðiskerfið árið 1998. Rétturtil lífs Stefnt er að því að halda fundinn á föstudag, en þó á nákvæmari tíma- setning eftír að koma í ljós. Þar verður leitað eftír að fá sem flesta til umræðunnar, það er einstaklinga með Downs, foreldra, sérfræðinga og alla aðra sem hafa áhuga á mál- efninu. „Það er ekki hægt að neita fólki með Downs um réttinn til lífs einungis vegna þess að enginn er tíl að taka við því," segir Gustavo. Gustavo hefur unnið í fjögur ár með fötluðum einstaklingum en þar áður vann hann sem sérkenn- ari úti á Spáni. Á þessum tíma hef- ur hann kynnst fjöida einstaklinga með Downs-heilkenni sem og aðra fötlun. „Margt er mjög vel gert á ís- landi en það vantar mikið upp á upplýsingar bæði til þessa hóps og um hann. íslenskir sérkennarar eru mjög góðir og frábærir einstakling- ar vinna með fötluðu fólki, en það vantar meira af rannsóknum á þessu sviði. Ástandið gæti verið mun betra á íslandi, eins efnað og það er,“ segir Gustavo. Gustavo segir einstaklinga með Downs auka á fjölbreytni samfélags- ins og segir þá ekki eiga minni rétt á að vera til en hver annar. „Við get- um ekki metið hamingju þeirra fyrir- fram. Þessir einstaklingar geta reynst miklu hamingjusamari en þeir sem eru vel efnaðir og með miklar eign- ir. Einn af þeim gætí elskað meira en við öll saman. Þarna má líka spyrja sig hverjir verða næstir í þessari læknisþróun, eins og þeir sem lítur út fyrir að verði óvenju lágvaxnir," segir Gustavo. fW 15. FEBRÚAR myndlistarkennari við Fjölmennt á Akureyri, hefur unnið að verkefn- inu með Gustavo. Til hennar koma reglulega fullorðnir fatlaðir einstakl- ingar sem vinna þar að ýmiss konar myndlist. Þar á meðal eru nokkrir einstaklingar með Downs-heilkenni. „Það er yndislegt að umgangast þá. Þeir eru alltaf glaðir og upplagð- ir. Þarna geta þeir mál- að, leirað smíðað eða hvað annað „Það er ekki hægt að neita fólki með Downs um réttinn tillífs einung- is vegna þess að enginn er til að taka við því." þeim dettur í hug. Þeir eru mjög skapandi, jákvæðir og tilbúnir tíl námsins. Þrátt fyrir að oft heyrist að þeim fýlgi heiisufarsvandamál eru engir nemendur sem mæta jafnvel í tíma og þeir" segir Brynhildur. Einn þeirra nemenda með Downs sem sækir námskeið Bryn- hildar í fjölmennt er 42 ára og hefur unnið í um tíu ár í Mjólkursamsöl- unni á Akureyri, áður Norðurmjólk. Fjölmennt var sett á laggirnar fyrir um fimm árum og er þar stefnt að skapandi kennslu fyrir fatlaða. Bryn- hildur segir að nemendur vinni nú í sameiningu að verkefninu List án landamæra. „Við Gustavo vorum gáttuð þegar við lásum þessa grein DV. Þrátt fyrir að við vissum þegar af þessari þróun st^kk þessi umfjöll- un okkur. Við vitum hversu yndislegt fólkþetta er og finnst þetta hræðilegt. Fólk hlýtur að myrida sér skoðanir út frá þeim skilaboðum sem samfélagið gefur," segir Brynhildur. vt. Einstaklingar með Downs Koma reglulega saman í Fjölmennt á Akureyri og vinna þar að ýmiss konar myndlist. Með þeim á myndinni er Gustavo, skipuleggjandi fundarins á Akureyri. Tugir trjáa á þingstað Þingvalla hafa verið felldir vegna stefnu þjóðgarðsins: Öll qrenitré hafa verið felld Búið er að fella öll þau tré sem stóð til að fella inni á þingstaðnum á Þingvöllum, tugi trjáa. Að mestu leytí er um að ræða greni sem gróðursett var á Þingvöllum eftir að þeir urðu að þjóðgarði. Fyrstu trén á Þingvöll- um voru gróðursett við upphaf barr- trjáræktar á íslandi árið 1899. í sum- ar fór umræðan nokkuð hátt um að þarna væri verið að fella fjölda ttjáa sem settu svip sinn á Þingvelli ein- ungis vegna þess að þau væru ekki upprunaleg. Þingvallanefrid samþykktí stefnu- mörkun hvað þetta varðar árið 2004, þar sem segir meðal annars að gróður sem ekki sé upprunninn á Þingvöllum verði fjarlægður úr þinghelginni. Þar er vísað til barrtrjáa og aspa á þeim stöðum þar sem slflcur gróður er nærri markverðum menningjarminjum. Umhirða og grisjun barrtrjáa miði að því að náttúrulegur gróður fái að njóta sfn. Formaður Þingvallanefridar er Björn Bjarnason dómsmálaráðherra. Að sögn Einars Á. E. Einarssonar, fræðslufulltrúa Þingvalla, er þar um að ræða meðal annars tré sem plant- að var í rústir og aðrar náttúruminjar Þingvalla. Einar segir menn hafa ráð- ist í verkefriið í vetur af krafti vegna góðra aðstæðna hvað snjó og ffost varðar, en þar hafi loks verið hægt að komast að illaðgengilegum trjám. Trjánum hefur nú verið hlaðið upp og er gert ráð fyrir að Skógrækt rfldsins taki við þeim. Hugmyndin um að fella trén kom fyrst upp hjá Þingvallanefrid árið 1988, en þá gegndi Þórarinn Sigur- jónsson formennsku. í stefnumörkun nefridarinnar frá þeim tíma segir að til að þjóðgarður standi undir nafrii séu meðal annars gerðar þær kröfur að þar ríki eins óspillt náttúra og kost- ur er og afskiptí manna af gróðurfari með plöntun og aðflutningi erlendra tegunda séu alveg forboðin. Þetta lá meðal annars til grundvallar því að trén voru felld. Árni Finnsson, formaður Nátt- úruverndarsamtaka fslands, telur þá stefriu sem Þingvallanefnd hefur tek- ið vera í góðu samræmi við náttúru- verndarsjónarmið. „Þarna er ekki verið að eyðileggja neitt. Þarna er ver- ið að breyta staðnum í átt til uppruna- legs ástands. Við höfum miklu meiri áhyggjur af hlutum eins og vegagerð á svæðinu. Það er oft misskilningur að skógrækt sé það sama og náttúru- vernd,“segirÁmi. roberthb@dv.is i i Þingvallatimbri hlaðið upp Gert er ráð fyrir að Skógrækt ríkisins taki við trjánum sem felld voru.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.