Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2008, Blaðsíða 28
Fókus DV
28 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR2008
T.......... .!;—.i|.' . |i_-
OPIÐ FRAM Á KVÖLD
Gríðarlegur áhugi hefur verið á sýningunni VATNSMÝRI, 102 REYKJAVÍK, sem opnuð var
(Hafnarhúsinu síðastliðinn fimmtudag í kjölfar verðlaunaafhendingar úr sam-
keppni um svæðið. Opnunartíminn í dag hefur verið lengdur til klukkan 22 en
síðasti sýningardagur er á morgun.
Munich
á Organ
BLINDUR
ROKKÞORSTI
Danska hljómsveitin Munich spilar
á tónleikum á Organ í kvöld ásamt
íslensku sveitunum Sudden Weath-
er Change og Retro Stefson. Mun-
ich hefur notið mikilla vinsælda í
heimalandi sínu og hefur átt nokkra
smelli í íslensku útvarpi, til að
mynda The Young Ones og Eyes of
Glass. Að sögn tónlistarfróðra spilar
sveitin eins konar blöndu af indíp-
oppi og rokki en þetta er í fyrsta sinn
sem bandið kemur hingað til lands.
Tónleikarnir í kvöld heíjast klukkan
21 og kostar 1000 krónur inn.
5968
HF 106
BIODOMUR
í SKYNDI
JOY DIVISION ★★★★
LEIKSTJÓRN: Grant Lee
Joy Division er
krahmikil mynd
um tlmamóta-
hljómsveit.
Sigur Rós, Eco og
Lmalangsokkur
SÍGILDUR RIKKIEN RAUÐUR
um var tilkynnt um sjálfsvíg söngv-
arans og það rann upp fyrir honum
að hann hafði sett mynd af grafhýsi
á síðustu plötu Joy Division.
Annað sem kemur fram í mynd-
inni og er helvíti sjokkerandi, er að
kvöldið eftir að Ian Curtis reyndi
að svipta sig lífi í fyrsta sinn var
Joy Division bókuð á tónleika en
í stað þess að aflýsa þeim fengu
þeir annan söngvara til að leysa
Ian af. Á meðan stóð Ian baksviðs
og fylgdist með félögum sínum
halda áfram án hans, daginn eftir
að hann ætlaði sér að vera dauður.
Svona blindar rokkþorstinn bestu
menn.
Kristín Kristjánsdóttir
Ég sagði dömunni á sýningarvél-
inni að nú væri gott að öskra svolít-
ið. Hún sagði: „Já, þetta er kannski
ekki mynd fyrir gangandi eldgos
eða fólk almennt á barmi brjálæð-
is.“
Joy Division er tímamóta
hljómsveit, það vita allir sem unna
rokktónlist og það sem er kannsld
merkilegast er að nú tuttugu og átta
árum eftir að Ian Curtis, söngvari
Joy Division svipti sig lífi og hljóm-
sveitin hætti, sé tónlistin enn að
vekja frumöskrið innra með þeim
sem verða fyrir henni. Því menn
verða fyrir Joy Division eins og tíu
tonna trukki og samnefnd heim-
ildarmynd um hljómsveitina hefur
svipuð áhrif. Nema hér blasa hetj-
urnar við okkur í allri sinni látlausu
dýrð. Við fáum að sjá svipmyndir af
vettvangi glæpsins og fylgjast með
Joy Division á sjarmerandi músík-
búllum í grámóskulegri Manchest-
er áttunda áratugarins. Eins og
verða vill með tónlist sem skiptir
máli, þá rann hún jafn átakalaust
upp úr þeim og fimmaurabrand-
ararnir sem flugu á milli munna
á tónleikaferðum. Þeir voru bara
kærulausir kjánar úr hverfmu eins
og við, eða hvað?
Það er freistandi að mæra
myndina eins og sköpunarverk
hljómsveitarinnar sjálffar, en þetta
er auðvitað tveir aðskildir veruleik-
ar; Joy Division annars vegar og
myndin um Joy Division hins veg-
ar. Það sem leikstjóri hennar, Grant
Lee, má eiga er að hann gerir mjög
mikið úr efni sem tekið var á með-
an Joy Division var í blóma og slag-
kraftur myndarinnar liggur fyrst og
fremst í því hvernig það er matreitt.
Inn á milli koma svo hressandi við-
töl við eftirlifandi meðlimi sveitar-
innarþar sem sögur af Ian Curtis og
hans innri átökum eru í forgrunni.
Grafíkin sem svo er prjónuð er við
efnið er vel heppnuð, svo og kyrrar
ljósmyndir sem bráðna saman við
kvikar myndir bæði úr tíð Joy Di-
vision og samtímanum. Viðtöl við
náungann sem hannaði plötuum-
slög Joy Division, fyrir Unknown
Pleasures og Closer voru fín eink-
um fyrir söguna af því þegar hon-
Sjómannalög
ogveðurþjóðtrú
Þankagangur þjóðarinnar: Menn-
ing skoðuð út frá sjómannalög-
um og veðurþjóðtrú er yfirskxift
þemakvölds Félags þjóðfræðinga
á íslandi í húsi Sögufélagsins við
Fischersund í kvöld. Erindi flytja
Rósa Margrét Húnadóttir og Ei-
ríkur Valdimarsson. Rósa kynnir
BA-ritgerð sína, Draumur hins
djarfa manns: frá sjómannalög-
um til gúanórokks, sem varpar
ljósi á íslenska dægurlagamenn-
ingu á 20. öld. Eiríkur fjallar um
hvernig veðurþjóðtrú birtist í
hugarheimi fslendinga á öld-
um áður og hvemig hún býr yfir
mörgum og ólíkum birtingar-
myndum, svo sem trú á hegð-
un dýra og tilfinningalíf manna.
i Þemakvöldið hefst klukkan 20.
V_________________^
Fyrsta hefti Tímarits Máls og menn-
ingar er komið út. Þar er meðal ann-
ars fjallað um hið tilbúna tungu-
mál Sigur Rósar, „vonlensku". Bæði
Halldór Guðmundsson og Pétur
Gunnarsson nota í bókum sínum
um Þórberg Þórðarson lýsingu á
ástum Þórbergs og Sólu sem Kristín
Guðmundardóttir (Kristín í Holly-
wood) skrifaði Sigurði Nordal um
miðja síðustu öld. f heftinu er þessi
mergjaða frásögn loksins birt í heilu
lagi. Einnig má nefha stflrannsókn
Umberto Eco á Kommúnistaávarp-
inu, grein Katrínar Jakobsdóttur um
Línu Langsokk, villibarnið og sið-
menninguna, og yfirlit Jóns Yngva
Jóhannssonar yfir skáldsögur sfðasta
árs. Þá eru sjö ritdómar í heftinu.
Aðeins einn viðskiptavinur er
um hituna við heitt matarglerbúrið
á Rikka Chan í Kringlunni þegar ég
kem þar að að ganga sjö um kvöld.
Þau skipti sem ég hef snætt þar hef
ég yfirleitt valið einhverja tvo rétti
í eina máltíð sem núna kostar 890
krónur. Sú upphæð var mun lægri
áður fyrr en hefur líklega hækkað í
takt við almennt verðlag í landinu,
svo ég hljómi nú eins og spreng-
lærður hagfræðingur án þess að
hafa hundsvit á peningum. Hins
vegar er hægt að fetta fingur út í
þær álögur á aukið val sem Rikki
viðhefur, því reiða þarf fram 60
krónur í viðbót ef maður vill skipta
máltíðinni á milli þriggja rétta, en
báðar útgáfurnar eru hugsaðar fyr-
ir eina manneskju.
Stúlkan sem afgreiddi mig var
nokkuð viðkunnanleg og rösk,
en jafnvel aðeins of rösk því hún
gleymdi núllinu aftast í verðinu
þegar hún stimplaði hana inn í pos-
ann og rukkaði mig því einungis um
89 krónur. Hún kippti því hins veg-
ar snögglega í liðinn með annarri
færslu upp á 801 krónu en á þess-
um tímum aukinnar umræðu um
seðil-, stimpil- og færslugjöld verð-
ur manni hugsað um hversu mikið
þessi aukafærsla kostaði mig, fá-
tækan blaðamanninn.
Máltíðin, sem samanstóð af
kjúklinga chop suey og nautakjöti
í ostrusósu, smakkaðist bara dé-
skoti vel. Þó get ég ekki hjá líða að
nefna að einn kjúklingabitinn var
rauður innst og lét ég vera að setja
hann upp í mig. Ekki tók ég eft-
ir hvort þetta gilti um fleiri bita en
það kemur kannskf í ljós á næstu
dögum. Rennikvikindið og önnur
tilheyrandi einkenni salmónellu og
kamfílósýkingar eru í það minnsta
ekki farin að gera vart við sig þegar
þetta er skrifað.
Hvað umhverfið varðar er
Stjörnutorg bara eins og það er.
Paradís fyrir þá sem vilja sýna sig
og sjá aðra, helvíti á jörðu fyrir þá
sem kjósa notalegheit. Ég er meira
fyrir það síðarnefnda.
KRISTJÁN HRAFN
GUÐMUNDSSON
fór á Rikka Chcin
HRAÐI: ★★
VEITINGAR
VIÐMÓT:
UMHVERFI: