Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2008, Page 14
ii MÐ&ÍKtíMiSiftát FEBRÚÁR'ÍM''.
Heimili DV
Sigríður Arnardóttir sjónvarpsskona býr í fallegu húsi með stóra sál. Hún hefur lagt mikið upp úr því að
skapa hlýja og notalega stemningu og það hefur henni tekist. Sirrý bauð Kolbrúnu Pálínu Helgadóttur
blaðamanni í skenuntilegt innlit. __________________
GÓÐAR STUNDIR VIÐ MATARtiORÐIÐ
„Mér líður Iwað allra best með fjölskyldu
minni við eldhúsborðið að borða góðan
mat, drekka gott kaffi og spjalla í marga
klukkutíma/'segirSirrý
„Fyrir þó nokkru ákvað ég að byrja að leggja
pening inn á bankann til að eiga fyrir flatskjá.
Núna á ég pening fyrir flatskjá og finnst æðislegt
að hafa hann bara inni á bankanum, gamla
sjónvarpið okkar er bara fínt," segir Sigríður
Arnardóttir, fyrrverandi sjónvarpskona, betur
þekkt sem Sirrý. Þetta lýsir Sirrý og heimili
hennar mjög vel þar sem hún hefur ekki lagt
mikla áherslu á að fylla heimili sitt af rándýrri
merkjavöru að eigin sögn. „Bækur eru það sem
ég eyði peningunum mínum í. Ég elska góðar
bækur. Eg vil líka frekar geta verið meira heima
hjá mér og mínum í stað þess að eyða öllum
mínum tíma í að vinna fyrir dauðum hlutum
sem skipta ekki máli."
Fluttum húsið á flutningarbíl
Það ríkir góður andi á heimili Sirrýar og
fjölskyldu. Húsið á sér langa og fallega sögu
og hefur stækkað svolítið með árunum. Sirrý
ljómar þegar hún byrjar að segja frá ævintýri
húsins.„Við fluttum í þetta hús á Frakkastíg
4 þar sem nú eru að rísa stórar blokkir í
svokallaða Skuggahverfinu. Húsið var passlega
stórt til að komast upp á vörubíl. Við plöntuðum
húsinu okkar svo á gamla tívolíið hérna í
Skeij afirðinum. Þegar við grófum grunninn fyrir
húsinu fundum við gamlar kókflöskur og ýmsa
aðra skemmtilega muni frá tívolíinu. Þetta var
fyrsta heimilið sem við hjónin keyptum okkur
saman," segir Sirrý með fortíðarblik í augum.
Litla kotið okkar
f dag hafa þau hjónin bætt heilli hæð við
húsið og breytt því töluvert. „Við köllum þetta
litla krúttlega kotið okkar, það er ótrúlegt að
hugsa til þess að hér áður fyrr hafi búið tuttugu
manns í húsinu eins og það var upprunalega en
húsið var byggt árið 1903. Það þótti bara eðlilegt
á þeim tíma."
Sólstofa og stærðar pallur í garðinum er ein
afviðbótum hússins en eitt af áhugamálum Sirr-
ýar er að rækta grænmeti og huga að fallega
garðinum sínum. „Hér bý ég bara á sumrin og
rækta mitt grænmeti, það er yndislegt," segir
Sirrý og bendir stolt á garðinn sinn. „Það er
ekki leiðinlegt að vera að elda dýrindismat fyrir
VILHAFA
LÍFIÐ í UT
Hvað er heimilið í
þínum huga?
„Mikilvægasti staður í heimi."
Hvar líður þér best?
„í faðminum á mínum mönnum.
Sonum mínum tveimur og
eiginmanni."
Hver er þinn griðastaður
innan heimilisins?
„Heimilið allt er minn griðastað-
ur. Garðurinn gerir mig líka
sérlega hamingjusama."
Besta minningin?
„Eftir langan dimman vetur er
dásamlegt að færa eldhúsið út í
garð, rækta grænmeti, lesa blöðin
á morgnana úti undir berum
himni, bjóða fjölskyldunni í
sumarboð og bömin að fara í
handahlaup á grasinu, smíða
kofa eða pútta á túninu. Ég á ótal
margar svona góðar minningar
og get varla beðið vorsins."
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn?
„Fiskur og grænmeti, með
íslensku vami."
Besti drykkurinn?
„Kaffið sem maðurinn minn
brennir og malar í kjallaranum."
Uppáhaldshluturinn þinn?
„Ég er bókaormur og fataffík en
lítill hlutadýrkandi."
Uppáhaldsliturinn þinn?
„Kóngablár, rauður og hvítur. Ég
vilhafalífiðílit"
segir Sirrýþegar hún er spurð út í það hvar henni
líði best í húsinu. Talandi um kaffi er óhætt að
segja að Sirrý njóti góðs af einu af áhugamálum
eiginmanns síns. „Ég er svo heppin að hann
fékk áhuga á að flytja inn kaffi frá hinum ýmsu
löndum. Hann brennir það og malar héma í
kjallaranum hjá okkur og oftar en ekki vakna
ég við yndislegan kaffiilm sem leikur um húsið."
Hún hellir upp á dýrindis kaffi og ilmurinn er
svo sannarlega yndislegur.
örlagadagurinn verður að bók
Sirrý vinnur þessa dagana við að skrifa bók
sem byggð er á þættinum örlagadagurinn. „Ég
er mikið að skrifa hér heima ásamt því að hugsa
um börnin mín og því skiptir miklu máli að mér
líði vel á heimilinu. Það leikur enginn vafi á því
á Sirrý er heimakær mjög og hún hefur ákveðn-
ar skoðanir á því hvernig heimili hennar á að
vera, ekki þá hvað útlit varðar heldur sjálf til-
finningin á heimilinu. Það er aðdáunarvert að
sjá hvernig þessi glæsilega kona hefur forgangs-
raðað lífi sínu og ættu margir að taka hana sér
til fyrirmyndar.
koibwn@dv.is
-^íÉSf
fjolskylduna og geta bara skotist út í garð og náð
í krydd og salat."
200 smafuglar i mat
Til þess að toppa persónulegu stemninguna
í þessum fallega garði, sem þakinn er sfyddu
og snjókomu þegar blaðamann ber að garði,
má finna eina stóra hillu áfasta við handrið
svalanna. „Hér koma stundum hátt í tvö
hundruð smáfuglar og fá sér að borða hjá
okkur. Það er yndislegt að sitja með kaffibollann
sinn og horfa á alla þessa fúgla samankomna.
Núna hins vegar koma þeir ekki því feitu,
ofdekruðu kettimir í hverfinu sem fá rjóma og
rækjur heima hjá sér stökkva héma upp á og
fæla þessi grey í burtu," segir Sirrý sem finnst
grimmdarlegt að horfa upp á feitu kettina
ræna af Iidu mögm fuglunum. Þetta er ein af
mörgum skemmtilegum sögum sem Sirrý deilir
með blaðamanni úr garðinum góða.
Þar sem mér líður best
„Mér líður hvað allra best með fjölskyldu
minni við eldhúsborðið að borða góðan mat,
drekka gott kaffi og spjalla í marga klukkutíma,"