Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2008, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008
Ættfræði DV
AFMÆLISBARN DAGSINS
30 ÁRA AFMÆLI
■ Martina Hlavacová
Hafnarbraut 54, Neskaupstað
• Marcin Przemyslaw Mocko
Leifsgötu 5, Reykjavlk
■ Sveinbjörn Davið Magnússon
Ránargötu21, Reykjavík
• UnnurSigrún Þorbjargardóttir
Þverási 16, Reykjavlk
m Elva Ásgeirsdóttir
Miðtúni 2, Seyðisfirði
■ SmáriGuðjónsson
Úthaga 10, Selfossi
m Gunnar Ingi Björnsson
Þórðarsveig 16, Reykjavlk
m Sveinlaug Friðriksdóttir
Lækjarvöllum 14, Grenivlk
m Unnar Þór Garðarsson
Stórhóli 21, Húsavlk
■ Helga D. Möller Magnúsdóttir
Klettastíg 2b, Akureyri
40 ÁRA AFMÆLI
■ Sigurður Hjörtur Kristjánsson
Vallargötu 4, Vestmannaeyjum
m Gunnhildur Gunnsteinsdóttir
Stekkjarholti 1, Húsavlk
m Ólöf María Jóhannesdóttir
Bylgjubyggð 63, Ólafsfirði
m Elín Ellingsen
Reynimel 51, Reykjavík
m Guðmundur R. Benediktsson
Gvendargeisla 14, Reykjavlk
m Leifur Örn Haraldsson
Dvergholti 3, Hafnarfirði
■ Fjóla S. Friðriksdóttir
Vlkurtúni 9, Hólmavlk
m Kolbrún G. Kjartansdóttir
Grýtubakka 22, Reykjavlk
■ Guðrún Eyjólfsdóttir
Blásölum 22, Kópavogi
■ Jón Hannes Karlsson
Arkvörn 2b, Reykjavlk
■ Louise Harrison
Sllatjörn 17,Selfossi
50 ÁRA AFMÆLI
■ Bogdan Sanecki
Kleppsvegi 52, Reykjavlk
■ Anna María Gestsdóttir
Fannafold 59, Reykjavlk
■ Snorri Styrkársson
Skagfirðingabraut 35, Sauðárkróki
m Eygló Gísladóttir
Laufengi 23, Reykjavlk
■ Haukur Andrésson
Hjallabraut 33, Hafnarfírði
■ ViðarSigurjónsson
Ægisgötu 10, Reykjavlk
m Gunnar Örn Gunnarsson
Kóngsbakka 13, Reykjavlk
m Eiríkur Egill Sverrisson
Fornastekk 12, Reykjavlk
m Sigurbjörg Ása Óskarsdóttir
Vesturbergi 31, Reykjavlk
■ Pálmi Guðmundsson Ragnars
Garðastræti 17, Reykjavlk
• Hrafnhildur Konný Hákonardóttir
Hæðargarði 48, Reykjavlk
• Auður Jónsdóttir
Lambhaga, Akranesi
m Inga Rut Sigurðardóttir
Vlðihvammi 34, Kópavogi
■ Guðný Aðalsteinsdóttir
Jarðbrú, Dalvlk
m Eyjólfur K. Eyjólfsson
Neðstaleiti 1, Reykjavlk
m Snæbjörn Þór Ólafsson
Litluvör7, Kópavogi
m Gunnar Óli Björnsson
Brunnum 9, Patreksfírði
m Jón Ólafur fsberg
Sörlaskjóli 5, Reykjavlk
m Björn Rúnar Sigurðsson
Laufengi 56, Reykjavlk
■ Jón Þór Friðvinsson
Mánabraut 11, Kópavogi
■ Sigriður Lárusdóttir
Kirkjubraut 60, Höfn
m Einar Jóhann Þorgeirsson
Hjarðarhaga 15, Reykjavlk
• Dagur Brynjólfsson
Vesturholti 2, Hafnarfírði
MARÍA ÁGÚSTSDÓTTIR
HÉRAÐSPRESTUR í REYKJAVÍKURPRÓFASTSDÆMIVESTRA
STARFSFERILL
María fæddist á Egilsstöðum en
ólst upp lengst af á Mælifelli í Skaga-
firði. Hún var í Steinsstaðaskóla, lauk
grunnskólaprófi í Varmahlíð í Skaga-
firði, flutti með fjölskyldu sinni til
Kaupmannahafnar, lauk stúdents-
prófi frá Östre Borgerbydskole á
Austurbrú 1986, stundaði nám í trú-
arbragðasögu við Kaupmannahafn-
arháskóla og lauk síðan embættis-
prófi í guðfræði við HÍ1992.
María vígðist til Dómkirkjunn-
ar í Reykjavík 1993 og starfaði þar í
fjögur ár, var settur prestur í Háteigs-
kirkju 1997-98, leysti af sem héraðs-
prestur í Reykjavíkurprófastsdæmi
vestra 1998-99, leysti af sem sjúkra-
húsprestur við Landspítalann 1999-
2000, var skipuð héraðsprestur við
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra
með aðsetur í Hallgrímskirkju 2000
og hefur gegnt því starfi síðan.
María hefur verið formaður í
samstarfsnefnd kristinna trúfélaga á
íslandi frá 2001, hefur starfað mikið
fyrir landsnefnd alþjóðlegs bæna-
dags kvenna á fslandi. Hún er höf-
undur námskrár fermingastarfanna,
hún á sæti í kristniboðs- og hjálpar-
starfsnefnd, sat um skeið í ritnefnd
Kirkjuritsins, var formaður Félags
presta á höfuðborgarsvæðinu og sat
þar í stjórn í fjögur ár. María birtir
reglulega predikanir sínar á Trú.is.
FJÖLSKYLDA
María giftist 26.12. 2003 Bjarna
Þór Bjarnasyni, f. 14.11. 1962, presti
í Grafarvogskirkju. Foreldrar hans
eru Bjarni Jónasson, f. 4.1. 1929, raf-
virkjameistari, og Guðný Jónsdóttir,
f. 22.10.1928, húsmóðir.
Börn Maríu og fyrri manns, Þrast-
ar Jónssonar, eru Kolbeinn, f. 24.9.
1994; Ragnhildur, f. 10.12.1996.
Börn Maríu og Bjarna Þórs eru
Guðný Lára, f. 27.5. 2004; Guðrún
María, f. 4.10. 2005.
Bróðir Maríu er Lárus Sigurbjörn
Ágústsson, f. 9.8. 1965, verkfræðing-
ur í Danmörku.
Foreldrar Maríu eru Ágúst
Matthías Sigurðsson, f. 15.3. 1938,
síðast sóknarprestur og fræðimaður
á Prestbakka í Hrútafirði og k.h. Guð-
rún Lára Ásgeirsdóttir, f. 14.11.1940,
kennari og skólabókavörður.
ÆTT
Ágúst er sonur Sigurðar, vígslu-
biskups á Möðruvöllum, bróður
Sesselju, móður Guðmundar Ragn-
ars Guðmundssonar sem var slökkvi-
liðsstjóri á Reykjavíkurflugvelli. Sig-
urður var sonur Stefáns, sjómanns
í Keflavík Hannessonar, b. og smiðs
á Brekku á Hvalfjarðarströnd Jóns-
sonar. Móðir Stefáns var Ragnhildur,
dóttir Einars, hreppstjóra að Litla-
Botni í Botnsdal Ólafssonar, b. á Efri-
Brú í Grímsnesi Jónssonar. Móðir
Einars var Ragnhildur Beinteinsdótt-
ir, lrm. á Breiðabólstað í Ölfusi Ingi-
mundarsonar, á Hólum Bergssonar,
ættföður Bergsættar Sturlaugsson-
ar. Móðir Sigurðar vígslubiskups var
Guðrún sem lengi rak kaffistofu við
Traðarkotssund í Reykjavík Matthí-
asdóttir, b. á Fossá í Kjós Eyjólfsson-
ar, af Kópvatnsætt.
Móðir Ágústs var María Júlíana
Kristjana Ágústsdóttir, heilbrigðis-
fulltrúa og bæjarfullrúa í Reykjavík,
eins af stofnendum Alþýðuflokksins
sem skrifaði fróðlegar endurminn-
ingar frá uppvaxtarárum sínum
í Reykjavík Jósefssonar, sjómanns
Helgasonar. Móðir Ágústs var Guð-
ríður Guðmundsdóttir, b. á Syðri-
Krossum í Staðarsveit Símonarson-
ar. Móðir Maríu Júlíönu var Pauline
Charlotte Amelie, dóttir Christian A
Sæby, beykis á Siglufirði.
Meðal systkina Guðrúnar Láru er
Einar Þorsteinn, arkitekt og hönn-
uður. Guðrún Lára er dóttir Ásgeirs,
dýralæknis Einarssonar, verka-
manns í Borgarnesi Ólafssonar, b. á
Stóru-Fellsöxl Jónssonar. Móðir Ás-
geirs var Þórstína Gunnarsdóttir, b. í
Fögruhlíð á Djúpavogi Þorsteinsson-
ar. Móðir Gunnars var Helga Árna-
dóttir, b. á Karlsstöðum Jónssonar og
Guðrúnar Ólafsdóttur, af Antoníusa-
rætt. Móðir Þórstínu var Þórunn
Björg Jakobsdóttir, b. á Eyjólfsstöð-
um í Fossárdal Steingrímssonar.
Móðir Guðrúnar Láru er Kirstín
Lára, systir Gísla, forstjóra Elliheimil-
isins Grundar og Áss í Hveragerði, og
systir Lárusar sem byggði upp Árbæj -
arsafnið. Kirstín Lára er dóttir Sigur-
björns Á., pr. á Elliheimilinu Grund
Gíslasonar, b. á Neðraási í Hjaltadal
Sigurðssonar, af Ásgeirsbrekkuætt.
Móðir Gísla á Neðraási var Sigríð-
ur Þorláksdóttir, systir Þorbjargar,
ömmu Stefáns Stefánssonar skóla-
meistara, föður Valtýs ritstjóra og
Huldu skólastjóra, móður Guðrún-
ar Jónsdóttur arkitekts. Móðir Sig-
urbjörns var Kristín Björnsdóttir, b.
á Syðri-Brekkum Ingimundarsonar.
Móðir Björns var Sesselja Gísladótt-
ir, b. á Miklahóli Hannessonar, pr.
á Staðarbakka Þorlákssonar, sýslu-
manns á ísafirði Guðbrandssonar,
sýslumanns á Lækjamóti Arngríms-
sonar, lærða á Melstað Jónssonar.
Móðir Kirstínar Láru var Guðrún, rit-
höfundur og alþm. Lárusdóttir, próf-
asts og alþm. á Valþjófsstað Hall-
dórssonar, prófasts og alþm. á Hofi
í Vopnafirði Jónssonar, bróður Guð-
rúnar, ömmu Sveins Björnssonar
forseta. MóðirGuðrúnarvar Kristín
Pétursdóttir, dómorganista og tón-
skálds í Reykjavík Guðjohnsen og
Guðrúnar Lauritzdóttur Knudsen,
ættföður Knudsenættar.
María verður að vinna á afmælis-
daginn og heldur síðan upp á afmæl-
ið með vinum og vandamönnum.
Anna Þóra Þórhallsdóttir
VERSLUNARMAÐUR í LEIFSSTÖÐ
Anna Þóra fæddist í
Reykjavík en ólst upp í
Keflavík. Hún var í Myllu-
bakkaskóla, í Holtaskóla
og lauk stúdentsprófi frá
Fjölbrautarskóla Suður-
nesja 1999.
Anna Þóra vann í
rækjuvinnslu í Keflavík,
var síðan stuðningsfull-
trúi við Heiðarskóla og
Myllubakkaskóla, kenndi
við Myllubakkaskóla í
einn vetur og starfaði
síðan við skíðahótel í
Vermount í Bandaríkjun-
um í eitt ár. Hún hóf störf hjá Opti-
cal Studio í Leifsstöð 2003 og hefur
starfað þar síðan.
Anna Þóra var formaður Leik-
félags Keflavíkur 2005-2006. Hún
hefur starfað með félaginu í nokk-
t k
30
ur ár, leikið þar töluvert og
leikur nú í revíunni Blátt
áfram, eftir Breiðbandið
og undir leikstjórn Helgu
Braga en revínuna á að
frumsýna 7. mars nk.
FJÖLSKYLDA
Bróðir Önnu Þóru er
Einar Ottó Þórhallsson, f.
28.9.1980, lagerstjóri hjá
Eimskip en kona hans er
Dagmar Aðalsteinsdóttir.
Foreldrar önnu Þóru
eru Þórhallur Steinar
Steinarsson, f. 23.12.1958,
starfsmaður Olís í Reykjanesbæ,
og Guðmunda Kristín Pétursdótt-
ir, f. 3.9.1957, yfirþerna á Hótel
Keflavík.
Anna Þóra heldur uppá afmæl-
ið með vinum og vandamönnum.
Heiða Brynja Heiðarsdóttir
NEMI OG ÞJÓNUSTUFULLTRÚI HJÁ JÁ - 118
Heiða Brynja fædd-
ist á Fáskrúðsfirði en
ólst upp á Akureyri.
Hún var í Glerárskóla,
stundaði síðan nám
við VMA og lauk stúd-
entsprófi þaðan 2003.
Hún stundar nú nám
í sálfræði við Háskól-
ann á Akureyri.
Heiða Brynja starf-
aði með námi á sól-
baðsstofunni Stjörnu-
sól á Akureyri um
skeið, var síðan þrjú
sumur þema á Gríms-
eyjarferjunni Sæfara og hefur
starfað hjá Já - 118 með náminu
frá sumrinu 2006.
Heiða Brynja hefur æft jóga í
nokkur ár og hefur mikinn áhuga
á útivist.
FJÖLSKYLDA
Maður Heiðu Brynju er
Sveinar Gunnarsson, f. 14.11.
1979, verslunarmaður á Akur-
eyri.
Sonur Heiðu Brynju og
Sveinars er Heiðar Guðni, f.
2.11.2006.
Systkini Heiðu Brynju eru
Ólafúr Borgar Heiðarsson, f.
6.12. 1971, hárgreiðslumaður
en hann á og starfrækir
hárgreiðslustofuna Solit í
Reykjavík; Anna Rósa Heiðars-
dóttir, f. 28.5. 1974, húsmóðir
og hjúkrunarfræðingur, búsett
í Reykjavík.
Foreldrar Heiðu Brynju eru
Heiðar Jóhannsson, f. 14.12. 1948,
sjómaður á Akureyri, og Bergrós
Ananíasdóttir, f. 26.10. 1951, versl-
unarmaður á Akureyri.
Unnur Sigrún Þorbjargardóttir er þrítug í dag:
Ætlar með börnin til Spánar
„Það verður engin stórveisla," segir Unnur
Sigrún Þorbjargardóttir, afmælisbarn DV, sem
er þrítug í dag. „Ég ætla að halda eitthvað lítið
bara með fjölskyldunni í dag." Unnur á þrjú börn
og hún aetlar að fagna afmæli sínu með þeim á
Spáni. „Ég ætla fara með börnin mín í sólina á
Spáni og við ætlum að slaka þar á í tvær vikur."
Aðspurð hvort Unnur sé vön að halda mikl-
ar veislur á stórafmælum segist hún hafa haldið
upp á 20 ára afmælið sitt með pompi og prakt.
„Það var haldið svakapartí og fínirí. Það var mjög
gaman," segir Unnur og tekur fram að hún hafi
róast töluvert á þeim tíu árum sem liðin eru.
Draumaafmælisdagur Unnar er nokkuð ein-
faldur í sniðum og fjölskyldan spilar þar aðal-
hlutverkið. „Draumaafmælisdagurinn er bara að
fá að eyða honum með börnunum mínum og í
faðmi fjölskyldunnar. Það væri svo ekki leiðin-
legt að halda smá veislu um kvöldið í góðra vina
hópi," segir Unnur.
Spurð um uppáhaldsafmælisköku segir hún
marenskökur vera góðan kost. „Marenskaka með
jarðarberjum og svona er alltaf góð," segir Unn-
ur að lokum en DV óskar henni innilega til ham-
ingju með daginn.
Unnur Sigrún
Þorbjargardóttir
Eyðir deginum (faðmi
fjölskyldunnar.
I