Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2008, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2008, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 Sport PV BIKARÚRSLIT KVFNNA Fylkir - Stjarnan 25-20 Mörk Fylkis: Sunna Marla Einarsdóttir 10/4, Natasa Damljanovic 5/1, Elzbieta Kowal 3, Ingibjörg Karlsdóttir 1, Nataly Sæunn Valencia 1/1. Varin skot: Jelena Jovanovic 17/1. Mörk Stjörnunnar: Alina Petrache 14/4, Sólveig Lára Kjærnested 4, Birgit Engl 3, Harpa Sif Eyjólfsdóttir 2, Rakel Dögg Bragadóttir 2. Varin skot: Florentina Stanciu 11/2 (25/6),Helga Vala Jónsdóttir 5(11 /2), Fram-Valur 26-30 Mörk Fram (skot); Andri Berg Haralds- son 9/2, Jón Björgvin Pétursson 4, Rúnar Kárason 4, Halldór Jóhann Sigfússon 2/1, Haraldur Þorvarðarson 2, Brjánn Guðni Brjánsson 1, Guðjón Finnur Drengsson 1, Einar Ingi Hrafnsson 1, Hjörtur Hinriksson 1, Jóhann Gunnar Einarsson 1. Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 11, Magnús Gunnar Erlendsson 4/1. Mörk Vals: Arnór Gunnarsson 7/1, Baldvin Þorsteinsson 7/3, Ernir Hrafn Arnarson 4, Ingvar Árnason 3, Sigfús Páll Sigfússon 3, Elvar Friðriksson 3, Fannar Þór Friðgeirsson 2, Gunnar Harðarson 1. Varin skot: Pálmar Pétursson 3, Ólafur Haukur Gíslason 9/1. Gleði, gleði . Valsmenn eru nú ríkjandi (slands- og bikarmeistarar. 1SKIP B1KARME1STARAR Mikil spenna var fyrir bikarúrslita- leik karla í handbolta þar sem Reykjavíkurrisarnir Valur og Fram mættust. Spennan var þó minni inni á vellinum þar sem Valsmenn réðu lögum og lofum ffá upphafi til enda og báru auðveldan 30-26 sigur úr býtum. Byrjun Fram í leiknum varð því að falli. „Spiluðum eins og aul- ar,“ segir Björgvin Páll Gústavsson, markvörður, Fram. Valur átti ekki í miklum vandræð- um með að landa bikarmeistara- titíi karla í handbolta á laugardag- inn. Þeir unnu þá Fram, 30-26, eftír að hafa verið yfir allan leikinn, mest með tíu mörkum. Fyrri hálfleikur Fram varð því að falli þar sem það var gjörsamlega heillum horfið og gerði lftið meira en áhorfendur þar sem þeir stóðu stjarfir og horfðu á Val yfirspila sig. Fyrir einu ári var Fram einnig í úrslitaleiknum og þá varð byrjun- in einnig því að falli í leik sem liðið tapaði með tíu marka mun. „Ég ein- faldlega trúi ekki að við höfum mætt svona tíl leiks annað árið í röð. Fyrri hálfleikurinn í fyrra og núna var ná- kvæmlega eins. Ég hélt að þetta gætí ekki gerst," sagði afar ósáttur Andri Berg Haraldsson við DV eftir leik. „Hvort við fórum á taugum eða hvað veit ég ekki. Þegar munurinn var orð- inn tíu mörk var þetta orðið of mik- ið og við vorum að elta þá allan leik- innsagði Andri. Eitt lið á vellinum „Þjálfarar meistaraflokks kvenna í fótbolta, Freyr Alexanderson og Elísabet Gunnarsdóttír, sýndu okk- ur öllum myndband daginn fyrir leik og eftír að ég sá það vissi ég að við myndum vinna," sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, við DV eftir leik. Myndbandið virkaði vel á Vals- menn sem komu mun ákveðnari tíl leiks og voru komnir í 3-0 áður en fólk var sest í sætin. Fram gerði aldrei heiðarlega tílraun til þess að minnka muninn í fyrri hálfleik og voru undir í hálfleik, 16-9. Það var ekki fyrr en Ingvar Árna- son, línumaður Vals, var rekinn út af með sína þriðju brottvísun snemma í seinni hálfleik að Frarn fór að saxa á forskotið. Botninn datt úr leik Vals- manna og Fram náði að koma til baka þá helst fyrir tilstilli Jóns Björgvins Péturssonar sem var oft eini maður- inn með lífsmarki hjá Fram-liðinu. Hann ásamt níu marka manninum, Andra Berg Haraldssyni, komu Fram í snertifjarlægð við Val og minnkuðu forskotið í þrjú mörk, 27-24. Undir lokin var munurinn of mik- ill fyrir Fram að yfirstíga og fögnuðu Hlíðarendapiltar sætum sigri, 30-26. Leikurinn sem svo lengi hafði verið beðið eftir stóð aldrei undir vænt- ingum og geta Framarar engum um kennt nema sjálfum sér. Vorum eins og aular Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, var kátur í leikslok en kenndi sjálfum sér um að hluta hversu ná- lægt Fram komst því að jafna. „Ég áttí að rúlla liðinu meira og skipta meira inn á eins og ég er vanur að gera. Það reynir virkilega á að spila svona vörn eins og við gerðum en þetta hófst að lokum og við erum virkilega ánægð- ir. Við nutum þess í vikunni að undir- búa okkur og njótum þessarar stund- ar," sagði Óskar. Björgvin Páll Gústavsson, mark- Keppnismaöur Björgvin Páll, markvörð- ur Fram, átti erfitt með sig eftir tapið. vörður Fram, sat stjarfur af reiði og svekkelsi eftir tapið. „Þetta er öm- urleg tílfinning að tapa svona. Við getum samt engum um kennt nema sjálfum okkur. Við spiluðum eins og aular í fyrri hálfleik og vorum snemma komnir með skituna upp fyrir haus. Því kom þessi endurkoma í lokin allt of seint. Við vorum engan veginn klárir í leikinn og spennustíg- ið var ekki í lagi," sagði Björgvin Páll svekktur eftir leik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.