Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2008, Blaðsíða 28
28 MÁNUDAGUR 3. MARS 2008
Fókus DV
HVARERGÓÐA
Ég horfði Gettu betur á föstu-
dagskvöldið og skemmti mér
þokkalega. Það er eitthvað
hressandi við að fylgjast með ung-
liðunum brillera á sviði viskunnar.
Það voru lið MR og Versló sem tók-
ust á þetta kvöldið. Og MR vann.
Krakkarnir í salnum voru hressir
að vanda og studdu þéttingsfast við
bak félaga sinna. Þau voru kurteis
og lítið var um frammíköll eins og
gjarnan er í þessum þætti. Sem bet-
ur fer. Það er ekki skemmtilegt sjón-
varpsefni.
GETTU BETUR ★★★
RÚV kl.20:10áföstudögum
SJÓNVARPSDÓMUR
Sigmar Guðmundsson stýrir
keppninni af miklum aga. Kannski
helst til of miklum. Það er þó líklega
honum að þakka að krakkarnir virða
reglur sjónvarpssalarins og eru ekki
að garga að óþörfu. En kommon -
hvar er húmorinn?
Sigmari vex ásmegin sem að-
gangsharður og gagnrýninn spyrill
í Kastljósinu. Þar er hann á heima-
velli. En það er eitthvað ekki rétt við
hann í Gettu betur. Það er nauð-
synlegt að hafa stjórn á fullum sal
af stjórnlausum unglingum og
það gemr Sigmar. Það sem hann
vantar hins vegar er góða skapið
- svona smá hnyttni fyrir okkur sem
heima sitjum og lítum á þetta sem
skemmtiþátt. Er þetta ekki annars
líka fýrir okkur?
Berglind Hdsler
FJÖRUGUROG
FRÆÐANDI
Það er ljóst að úrslitakvöldið í
Laugardagslögunum sem fór fram
um helgina er eflaust eitt það sterk-
asta frá upphafi. Öllu var til tjaldað
og mér fannst það heppnast nokkuð
vel.
Allir flytjendurnir gerðu sitt allra
besta og það var í raun enginn sem
olli mér neinum vonbrigðum. Þvert
á móti gat ég eiginlega séð öll lögin
sem tóku þátt fyrir mér á sviðinu í
Belgrad.
KVIKA ★★★★*
Rás 1 kt. 10.15 á taugardögum
ÚTVARPSDÓMUR
Fyrir úrslitin hafði ég spáð This is
my life sigri. Einfaldlega vegna þess
að eftir að Palli komst með puttana í
lagið gjörbylti hann því og gaf því allt
sem það vantaði áður. Þá var lagið
líka óaðfinnanlega sungið hjá Reg-
ínu og Friðriki.
Það var hins vegar Dr. Spock sem
vann hug minn allan. Ég kaus lagið þó
nokkrum sinnum og hefði virkilega
viljað sjá það fara áfram. Sviðið var
algjörlega þeirra og dýrslegur kraftur
sveitarinnar skilaði sér ótrúelga vel.
Mikið hefur verið talað um hvort
eyða eigi öllum þessum peningum í
forkeppnina en eftir að hafa séð úr-
slitín og fylgst vel með í vetur finnst
mér það hið besta mál. Þegar upp er
staðið hafa Laugardagslögin hleypt
lífi í skammdegið og sameinað þjóð-
ina við skjáinn. Það hefði samt mátt
sleppa undanúrslitunum, stytta
þetta aðeins og nota þá peninga í
eina leikna þáttaröð eða svo.
Krista Hall
HVAÐ VEISTU?
1. Fyrir hvað er bloggarinn GAUKUR ÚLFARSSON, sem dæmdur var fýrir meiðyrði á
dögunum, þekktastur að frátöldum dóminum?
2. Hvaða fornfræga hljómsveit hélt heljarinnar tónleika f LAUGARDALSHÖLUNNI nýverið?
3. Hvaða listakonurtaka þátt í samsýningunni STREYMIÐ sem opnuð var i Listasafni
Islands nýverið?
aiiioasaviAiiÐNi vsoa angho oo aiuoasaiaoibd via.ibavo •£ NNianaaouvsana tuqn viaiis SNisiaaraaiaAd anaNndOHQdw i
/'
. 'tk
HARHORPUR
OG HAUSKÚPUR
Hrafnhildur Arnardóttir myndlist-
armaður hefúr hannað glæsilegan
nýjan verðlaunagrip fýrir Menn-
ingarverðlaun DV sem afhent verða
við hátíðlega athöfn í Gyllta sal Hót-
el Borgar 5. mars. Þetta er enginn
venjulegur gripur eða stytta eins
og menn eiga að venjast, heldur er
hver gripur einstætt, handgert verk
eftir þessa framsæknu listakonu.
Hrafnhildur, eða Shoplifter eins
og hún er kölluð, hefur unnið tals-
vert með hár í sínum verkum, meðal
annars fýrir ljósmyndir af Björk sem
hún gerði fyrir umslag plötu hennar
Medúllu. Verðlaunagripurinn er að
sama skapi unninn úr fléttuðu hári í
stíl sem skírskotar til fornrar hefðar.
„Ég hef verið að flétta undir sterk-
um áhrifum ffá þeirri gamaldags
hefð að búa til blóm og skrau
úr mannshári sem til forna
voru gerð til þess að minnast
látinna ástvina," segir Hrafn-
hildur en hún eignaðist svona
hárblóm þegar hún var
fimmtán ára og hef-
ur heillast af þeim
æ síðan. Þegar hún
vann að umslag-
inu fýrir Björk hafði
hún því samband
við Ástu Björk Frið-
bertsdóttur hjá hand-
verkssmiðjunni Hárverki
á Suðureyri og vann með
henni að gerð umslagsins sem hún
segir byggjast á eins konar kyrralífs-
innsetningu á Björk.
„Þegar ég var beðin um að gera
þennan verðlaunagrip fór ég strax
að hugsa um einhverja styttu, ósk-
arinn eða eitthvað sem maður teng-
ir við svona verðlaunaafhending-
ar, íþróttagripi, medalíur og þess
háttar. Ég sá fyrir mér afreksfólk í
menningu og listum annars veg-
ar og íþróttum hins vegar og end-
aði á því að búa til grip sem í senn
er skjöldur sem þú getur hengt upp
á vegg heima í stofu og borið um
hálsinn eins og sigurvegari. Það
er ákveðin auðmýkt fólgin í því að
lúta höfði og taka við upphefðinni
sem svona viðurkenning er," segir
Hrafnhildur. Hún hefur verið búsett
í New York-borg um árabil og unnið
mikið undanfarið með Eddu Guð-
Hrafnhildur Arnardóttir
bjótil hárfléttur fyrir
Medúllu umslag Bjarkar.
mundsdóttur fata-
hönnuði að hönnun fylgihluta fyr-
ir línu sem kallast „VPL" og stendur
fyrir „Visible Panty Line", þar á með-
al herðaslá, smekk og tösku sem allt
er unnið úr hári.
„Ég nota reyndar gervihár," segir
hún. „Ég hef ekki trú á að ég þurfi
að nota alvörumannshár til þess að
koma þessum áhrifum til skila. Það
er bæði dýrt og fæst ekki í jafnmiki-
um lengdum og gervihárið, en svo
er líka svo mikið af fólki sem stríð-
ir við hármissi og þarf virkilega að
eignast hárkollur. Þannig að mér
finnst allt í lagi að nota gervihár."
Það er allt brjálað að gera hjá
Hrafnhildi um þessar mundir. Sýn-
ingin „Skin, Bone, Hair" sem hún
stendur að í samstarfi við banda-
ríska tónskáldið Nico Muhly verð-
ur frumsýnd í tílraunaleildtúsinu
TheKitcheníNewYork7.mars. Nú
þegar er uppselt á sýninguna.
'HíHu t /..
m
„Ég sá fyrir mér afreksfólk í menningu og listum
annars vegar og íþróttum hins vegar og endaði
á því að búa til grip sem í senn er skjöldur sem
þú getur hengt upp á vegg heima í stofu og bor-
ið um hálsinn eins og sigurvegari. Það er ákveð-
in auðmýkt fólgin í því að lúta höfði og taka við
upphefðinni sem svona viðurkenning er."
„Nico er búinn að semja þrjú
tónverk sem eru að einhverju leyti
inspíreruð af mínum verkum," seg-
ir Hrafnhildur. „Þetta er eins konar
myndlistar- og tónlistargjörning-
ur þar sem ég hef búið til hálfgerða
leikmynd eða umgjörð um flytj-
endur verkanna og hljóðfæri sem
þau nota í performansinn. Ég verð
meðal annars með hár sem læðist
upp úr flyglinum, hauskúpur með
míkrófónum innan í sem spilað
verður á og mennska hárhörpu sem
Nico spilar á. Ég fæ þrjár konur með
ofsalega sítt hár til þess að liggja á
sviðinu og svo spilar hann á hár
þeirra eins og hörpu."
Þeir sem hreppa verðlaunagrip
Menningarverðlauna DV í ár geta
kannski ekki spilað á hann, en hin-
ir lánsömu geta í staðinn spígspor-
að um með hann um hálsinn á mið-
vikudagskvöldið.
Líkamslist fyrir a. v.a.f. assume vi-
vid astro focus. Verkefni, gjömingur
í Deidsch Projects í London í maí.
SPAUGILEG ALVARA LIFSINS
Góðar unglingamyndir eru
gulls ígildi. Yfirleitt eru unglinga-
myndir gerðar um hressa krakka
sem verða skotnir í hver öðrum og
allt er æðisgengið, eða þær fjalla
um vandræðabörn í eiturlyfjum og
innbrotum. Juno er millivegurinn,
raunverulegt fólk í raunveruleg-
um, en fyndnum aðstæðum. Kvik-
myndin fjallar um táningsstúlkuna
Juno sem verður ólétt. Hún veit vel
að hún er of ung til þess að sjá um
barnið og finnur því indælt par,
sem vill ættleiða barnið við fæð-
ingu. Upp koma brestir í sambandi
þeirra, barnsfaðirinn verður henni
fjarlægur, óléttan tekur meiri toll
en Juno hafði ætlað og unglings-
JUNO
LEIKSTJÓRN: Grant Lee
Jurto er lítil saga úr litlum
heimi, sæt og krúttleg,
og á fullkomlega erindi
viö fólk, óháö aldri og stöðu.
BIODOMUR
árin verða skyndilega allt of alvar-
leg. Juno er yndisleg kvikmynd.
Vel skrifuð og útfærð. EHen Page,
sem leikur Juno heldur mynd-
inni algjörlega uppi. Hún er snið-
ug og fyndin þrúgandi aðstæður
verða spaugilegar, þegar sérviska
hennar fær að njóta sín. En einnig
Juno Skemmtilega skrifuð og útfærð unglingamynd.
tekst henni að fanga sakleysi ungl- senunni, sem bugaði sigurvegar-
ingsáranna í trega sínum og skiln- inn. Tónlistin er notuð frábærlega,
ingsleysi. Leikarar í myndinni eru annaðhvort er myndin í takt við
stórkostlegir, meira að segja hin lögin eða öfugt. Juno er lítil saga úr
yfirborðskennda Jennifer Garner litlum heimi, sæt og krúttleg, og á
er hæfilega skemmtilegt vísitölu- fullkomlega erindi við fólk, óháð
hallæri. Jason Bateman stelur svo aldri og stöðu. DóriDNA