Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2008, Blaðsíða 32
AÐSTOÐARKONA VILDI
RÍFA LAUGAVEGSHÚS
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaöur skrifar:
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, arkitekt
og aðstoðarmaður Ólafs F. Magnús-
sonar borgarstjóra, vann að ráðgjöf
vegna deiliskipulagstillögu borgar-
innar þar sem gert var ráð fyrir því að
húsin við Laugaveg 4 og 6 yrðu rifin.
Verkið vann hún áður en hún gerð-
ist aðstoðarmaður og þá sem starfs-
maður hjá arkitektastofu Gylfa Guð-
jónssonar.
„Ég vann á teiknistofunni þegar
verkefnið fór í gang, það stemmir.
Vinnan snerist um ráðgjöf við deili-
skipulagið en ég var hins vegar aldrei
inni í neinu ákvörðunartökuferli
með sjálft deiliskipulagið. Ég var í því
að safna upplýsingum og undirbúa
deiliskipulagstillöguna. Okkar hlut-
verk fólst í ráðgjöf fyrir borgina en
ég var náttúrlega bara starfsmaður
hjá Gylfa. Hann var í ábyrgð fyrir ráð-
gjöfina og hans stofa vann þá vinnu,"
segir Ólöf.
Óskar Bergsson, oddviti fram-
sóknarmanna í borgarstjórn, telur
undarlegt hversu auðveldlega Ólöf
vippaði sér yfir borðið og fór að vinna
gegn eigin ráðgjöf. Hann bendir á að
stjórnmálamenn byggi ákvarðan-
ir oft á tíðum á ráðgjöf sérfræðinga.
„Mér finnst þetta fyrst og fremst frek-
ar fyndið og grátbroslegt. Það fylg-
ir því mikil ábyrgð að vera sérfræð-
ingur í vinnu hjá hinu opinbera. Það
eru mikil vonbrigði að þegar á reyn-
ir standi þeir sérfræðingar, sem jafn-
vel bera höfuðábyrgð á ákveðnum
ákvörðunum, ekki lengur með sinni
fyrri ráðgjöf heldur taka sér jafnvel
stöðu gagnrýnandans sem mótmæl-
ir ákvörðun stjórnmálamanna sem
aftur byggðu ákvörðun sína á þeirra
sérfræðiráðgjöf," segir Óskar.
Bara starfsmaður
Ólöf segist vera búin að hlæja
mikið af því að fólk sé að velta sér upp
úr þessari tengingu. Hún segir þetta
vera lýsandi fyrir stöðuna í stjórn-
sýslu borgarinnar. „Ég hef aldrei ver-
ið hlynnt niðurrifi þó svo niðurstaða
deiliskipulagsins hafi verið sú að rífa
húsin. En við vorum ráðgjafar sveit-
arfélagsins og ekki þeir sem tóku
ákvarðanirnar. Sú ákvörðun var tekin
hjá pólitíkusum," segir Ólöf.
„Það var farið fram með þetta
skipulag því að verslunareigendur
voru farnir að garga á uppbyggingu
miðbæjarins og þrýstingur á pólit-
íkusa var orðinn mikill. í þessu til-
viki réð borgin til sín ráðgjafa og ég
var bara starfsmaður hjá teiknistofu
Gylfa. Ég var hætt að vinna þarna
þegar sjálft skipulagið var samþykkt.
Reykjavíkurborg er með skipulags-
og byggingasvið á bak við sig og þar
eru línurnar lagðar. Þetta var fyrst
og fremst í hönd- um
þeirra. Ef ég
hefði feng-
ið að ráða á
þessum tíma
litiReykjavík
örugglega
öðruvísi út
ídag."
Ólafur F. Magnússon Aðstoðarkona
borgarstjórans gaf ráð urn niðurrif
Laugavegshúsa.
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, aðstoðarmaður borgarstjóra, gaf áður ráð um niðurrif.
Giftast næsta
hlaupársdag
„Þetta kom mjög á óvart," segir
Hallgrímur Helgason um frumlegt
bónorð Oddnýjar Sturludóttur, sam-
býliskonu sinnar, á hlaupársdag. Á
bloggsíðu Oddnýjar kemur fram að
saklaust sagnfræðigrín hafi snúist
upp í hárómantískt bónorð. Hall-
grímur brást hinn besti við bónorði
Oddnýjar og svaraði með sínum
heimsborgarlega hætti, á lettnesku.
Oddnýju tókst þó fljótlega að ráða
svarið sem hljómaði svona, Protams,
milumin og merkir; auðvitað, elsk-
an. Að sögn Hallgríms munu þau
ganga í hjónaband á hlaupársdag að
fjórum árum liðnum.
Hljóðgjörningar í
Salnum
Óvenjulegur tónlistargjöm-
ingur verður framinn í Salnum í
Kópavogi á þriðjudagskvöldið. Þar
koma fram tónskáldið og flautu-
leikarinn Þuríður Jónsdóttir, fiðlu-
leikarinn Una Sveinbjarnardóttir
og kontrabassaleikarinn Borgar
Magnason, ásamt myndlistakon-
unum BjörkViggósdóttur, Ólöfu
Nordal, Mireyu Samper og Ásdísi
Sif Gunnarsdóttur.
Leikin verður tónlist eftir Þur-
íði og ítalska tónskáldið Salvat-
ore Sciarrino en öll umgjörð og
framsetning verkanna verður með
framsæknu móti. Rafhljóð, mynd-
list og einleikur Borgars bráðna í
eitt á þessum sérstæða viðburði
sem er liður í tónleikaröð Salarins,
TÍBRÁ.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20.00.
Svartur á leik Það voru sjötfu og fimm ár sem aðskildu skákmennina tvo sem tókust á í skák á sunnudaginn. Úkrfanska
undrabarnið lllya Nyzhnyk, sem er ellefu ára, teflir þarna við aldursforseta Reykjavíkurmótsins, Bjarna Magnússon sem er 86 ára
vistmaðurá Hrafnistu. Þeir sömdu umjafntefli að lokum. DVmyndSigurður
Grímulaus með
kjúkllng
Finnski skrímslarokkarinn Lor-
di var grímulaus á ferli á höfuð-
borgarsvæðinu um helgina. Gestir
veitingastaðarins Kentucky Fried
Chicken töldu sig bera kennsl á
kappann þar sem hann kom við
um miðjan dag á laugardag og
pantaði sér kjúkling og franskar.
Sá síðhærði miðaldra Finni sem
þar var ásamt samferðafólki var
mjög ólíkur því sem gerist þegar
hann er hinn grimmdarlegasti í
gervinu. Hann var hinn alúðleg-
asti.
Ekki tókstþó með óyggjandi
hætti að úrskurða hvort þetta væri
sjálfur rokkarinn sem lagði hálfa
heimsbyggðina að fótum sér með
laginu Rock Haleluja Eurovision-
keppninni 2005. Lordi er maður
dagsins í DV og á sér þann draum
að hitta Silvíu Nótt eins og fram
kemur á blaðsíðu 30.
Föstílyftu
Þingkonan Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, utanríkisráðherr-
ann Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og
Valgerður Sverrisdóttir festust inni í
lyftu í háhýsi sem hýsir kvennaráð-
stefnu í New York. Samkvæmt bloggi
Valgerðar voru þær þó ekki einar
í lyftunni heldur var Ingi Valur Jó-
hannsson, deildarstjóri í félagsmála-
ráðuneytinu, með þeim. Sátu þau
föst í tuttugu mínútur þar til þeim
var bjargað. Sjálf segir Valg^vftur á
bloggi sínu að sumum hafi verið far-
ið að líða illa í þröngri vistinni.
Tuttugu umferðar-
óhöpp
Töluverður erill var hjá lögregl-
unni í Reykjavík vegna umferðaró-
happa síðastliðna helgi. Frá klukkan
sjö á sunnudagsmorgun til klukkan
sjö um kvöldið áttu sér stað alls tut-
tugu umferðaróhöpp. Flest óhöppin
urðu vegna hálku og lélegrar færðar.
„Það verður að segjast að þetta eru
mjög mörg óhöpp á einum degi,"
segir Teitur Guðmundsson hjá lög-
reglunni. Hann segir þó engin alvar-
leg slys hafa orðið á fólki en að mikið
sé um eignatjón eftir daginn.
Rafrænt bónorð?
Framkvæmdir ganga vel vegna nýrrar verslunar Bauhaus:
Bauhaus rís við Lambhaga
Gísli H. Guðmundsson, verkfræð-
ingur hjá ístaki, segir framkvæmdir
að nýrri verslun Bauhaus við Lamb-
hagaveg við Úlfarsfell ganga vel, en
stutt er frá því framkvæmdir hóf-
ust. „Við erum rétt að byrja, erum að
vinna að undirstöðum og sökklum
byggingarinnar," segir Gísli.
Fyrirhugað er að verslun Bauhaus
verði um 21 þúsund fermetrar að
stærð. Samningar um að ístak tæki
að sér verkið voru undirritaðir 10.
október síðastliðinn en áætluð verk-
lok eru í desember á næsta ári. Enn á
eftir að vinna töluverða jarðvinnu við
framkvæmdirnar en til að átta sig á
umfangi verkefnisins er gert ráð fyrir
að um 950 tonn af stáli verði notuð
við uppbygginguna.
Borgarráð Reykjavíkurborgar
samþykkti 4. maí árið 2006 að Bau-
haus fengi lóð við Úlfarsfell, skammt
austan Vesturlandsvegar. Stefán Jón
Hafstein, borgarfulltrúi Samfylking-
arinnar, var á þeim tíma formaður
borgarráðs. 1 bókun borgarráðs frá
árinu 2006 segir að það fagni tilkomu
Bauhaus á byggingarvörumarkað-
inn í Reykjavík og vænti þess að sam-
keppni á þeim markaði muni aukast,
borgarbúum til hagsbóta.
616 milljónir fyrir
byggingarréttinn
Talsverð óvissa var á tímabili um
hvar og hvort Bauhaus fengi lóð
undir starfsemina. Höfðu forsvars-
menn fyrirtækisins leitað árangurs-
laust að lóð undir fyrirtækið í ná-
grannabyggðum Reykjavíkur áður
en þeir fengu byggingarrétt í Úlfars-
felli. Verðið sem Bauhaus greiddi fyr-
ir byggingarréttinn á lóðinni var 616
milljónir króna, eða rétt tæplega 31
þúsund krónur á hvern fermetra.
roberthb@dv.is
Litlar samlokur 399 kr.
+ lítið gosglas 100 kr.
= 499
FRÉTTASKOT
51 2 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 ■ DAGBLAÐIÐ VlSIR STOFNAÐ 1910