Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2008, Page 23
DV Ættfræði
MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 23
TIL
HAMINGJU
MEÐ
afmælið
AFMÆLISBARN DVGSIXS
SIGURÐUR S. KETILSSON
SKIPHERRA ÁTÝ
30 ÁRA AFMÆLI
Beata Tatiana Styrna Hraunbæ 109, Reykjavik
Marcin Miklaszewski Hraunteigi 12, Reykjavik
Nobuko Hada Eggertsgötu 28, Reykjavik
Kristjana Guðný Rúnarsdóttir Fng;avö//um 12,
Hafnarfjörður
Einar Jón Erlingsson Kaplaskjólsvegi35, Reykjavik
Ingi Björn Sigurðsson Laufásvegi 10, Reykjavik
Edda Marý Óttarsdóttir Barmahlið 34, Reykjavik
Einar Þór Hafberg Framnesvegi 65, Reykjavik
Kristján Elvar Meldal Ægisbraut 11, Búðardalur
Anna Lydía Helgadóttir Framnesvegi 17, Reykjanesbær
40 ÁRA AFMÆLI
Helga Jónsdóttir Lækjasmára 11, Kópavogur
Júlía Árndís Unnur Árnadóttir Stelkshólum 10, Reykjavik
Bergrós Kjartansdóttir Jötnaborgum U.Reykjavik
Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson Bollagörðum 45,
Seltjarnarnes
Ólafur Stefánsson Sætúni, Reykjavik
Ásgeir Héðinn Guðmundsson Borgarbraut20,
Stykkishólmur
Jóhannes Þór Hauksson Egilsbraut 23, Þorlákshöfn
Svava Liv Edgarsdóttir Þinghólsbraut 76, Kópavogur
Saulius Urbonas Veghúsum 13, Reykjavík
Slawomir Mazurek Steinási24, Njarðvík
Guy Germain Melgeröi 9, Reyöarfjöröur
50 ÁRA AFMÆLI
Jamal Jón Lahham Engihjalla3, Kópavogur
Anna Þorgeirsdóttir HringbrautS, Reykjavik
Þorvaldur Ingi Jónsson Birkigrund 18, Kópavogur
Jóhanna Valdls Jóhannsdóttir Lyngdal 12, Vogar
Guðrún I Sturlaugsdóttir Laugateigi21, Reykjavik
Anna Sigríður Óskarsdóttir Suðurgötu 34, Sandgeröi
Víðir Ástberg Pálsson Safamýri40, Reykjavík
Monika Sigurlaug Baldursdóttir Hverafold46, Reykjavik
Anna Gunnarsdóttir Kotárgerði 16, Akureyri
Kazimiera Wojewodzka Spóahólum 8, Reykjavik
Eda Rafael De Luna Kleppistarfsmhúsi, Reykjavík
Jonas Ziminskas Háaleitisbraut 119, Reykjavik
60 ÁRA AFMÆLI
Sigríður Jónsdóttir Sandgerði 9, Stokkseyri
Magnea Inga Víglundsdóttir Lágmóa 13, Njarðvik
Sigríður Júlíusdóttir Einholti 14d, Akureyri
Birgir Ásgeirsson Tryggvagötu 4a, Selfoss
Sigurbirna Árnadóttir Höfðavegi 38, Vestmannaeyjar
Haraldur Kr Olgeirsson Einilundi 9, Carðabær
Eiríka Inga Þórðardóttir Vesturbergi60, Reykjavik
Ómar Vignir Lúðvíksson Keflavikurgötu 7, Hellissandur
70 ÁRA AFMÆLI
Anna Lilja Stefánsdóttir Aðalgötu 13, Daivik
Anna Ragnheiður Hallgrímsdóttir Sunnubraurð,
Búðardalur
Jóhannes Magnús Þórðarson Krossnesi, Borgarnes
Unnur Halldórsdóttir Reykási41, Reykjavik
Theódór Helgi Ágústsson Sléttuvegi 19, Reykjavík
Guðríður Hannibalsdóttir Gvendargeisla 92, Reykjavik
Grétar H Óskarsson Seiðakvisl38, Reykjavík
Friðgeir Már Alfreðsson Neðstaleiti 7, Reykjavik
75 ÁRA AFMÆLI
Auður Vordís Jónsdóttir Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík
Unnur Jónsdóttir Asvallagötu 29, Reykjavik
Erla Waage Hrisateigi 8, Reykjavik
Rakel Sigurleifsdóttir Á/fatún/29, Kópavogur
80 ÁRA AFMÆLI
Gíslína Þórarinsdóttir Litlagerði 14, Reykjavik
Hreinn Kristjánsson Hrishóli, Akureyri
Ragna Karlsdóttir Ólafsvegi 47, Ólafsfjörður
Sigrún Sesselja Bárðardóttir Laufbrekku 14, Kópavogur
Fanney Magnúsdóttir Norðurbrún 1, Reykjavik
Guðrún Jónsdóttir Skólavegi 36a, Fáskrúðsfjörður
85 ÁRA AFMÆLI
Margrét Guðjónsdóttir Datsmynni 1, Borgarnes
Arngrímur Jónsson Álftamýri41, Reykjavik
Marinó Sigurbjörnsson Heiöarvegi 12, Reyðarfjörður
90 ÁRA AFMÆLI
Guðlaug Pálsdóttir Hliðarhúsum 7, Reykjavik
Rósa Ólafsdóttir Hæðargarði 10, Reykjavik
Valborg Guðrún Eiríksdóttir Furugerði 1, Reykjavik
Sigurður Steinar Ketilsson, skipherra á Tý,
er sextugur í dag.
STARFSFERILL
Sigurður Steinar fæddist í Keflavík og
ólst þar upp. Hann byrjaði til sjós fimmtán
ára og var þá á bátum frá Keflavík. Hann hóf
síðan störf sem háseti á varðskipum Land-
helgisgæslunnar 1968 og hefur starfað hjá
Gæslunni síðan, eða í fjörutíu ár. Sigurð-
ur Steinar hóf nám við Stýrimannaskólann í
Reykjavík 1968, lauk fisldmannaprófi og síð-
an III stigs farmannaprófi 1970 og lauk próf-
um frá varðskipadeild 1972.
Sigurður Steinar hefur verið háseti, báts-
maður, stýrimaður og skipherra á öllum skip-
um Landhelgisgæslunnar. Hann hefur auk
þess verið stýrimaður í flugdeild Landhelgis-
gæslunnar, einkum á árunum 1984-92, verið
spilmaður og sigmaður á þyrlum Landhelg-
isgæslunnar og siglingafræðingur á Fokk-
ernum, TF SÝN. Þá hefur hann tvívegis verið
framkvæmdastjóri aðgerðarsviðs Landhelg-
isgæslunnar.
Sigurður Steinar hóf að leysa af sem skip-
herra á skipum Gæslunnar upp úr 1980, varð
skipaður fastur skipherra 1992, hefur ver-
ið skipherra á öllum varðskipunum og er nú
skipherra á Tý. Hann hefur tekið þátt í mikl-
um fjölda björgunaraðgerða með þyrlum
gæslunnar og var t.d. skipherra á Óðni sum-
arið 1989 er skipið var sent í leiðangur til að
steypa upp þyrlupall í Kolbeinsey.
FJÖLSKYLDA
Eiginkona Sigurðar Steinars er Sólveig
Matthildur Baldursdóttir, f. 27.5. 1951, skrif-
stofukona í Hafnarfirði. Hún er dóttir Bald-
urs Óla fónssonar, f. 17.9.1913, d. 25.2.1999,
tannlæknis, og k.h., Irmu Jóhönnu Pálsdóttur
Ehlers, f. 20.6.1914, húsmóður.
Synir Sigurðar Steinars og Sólveigar eru
Baldur Óli Sigurðsson, f. 27.4. 1975, kerfis-
stjóri í Hafnarfirði en kona hans er Hildur Ar-
mannsdóttir; Ketill Sigurðsson, f. 8.6. 1977,
hagfræðinemi í Kaupmannahöfn.
Systur Sigurðar Steinars eru Guðrún Ey-
berg Ketilsdóttir, f. 22.8. 1939, búsett í Kópa-
vogi; Helga Eyberg Ketilsdóttir, f. 3.10. 1952,
búsett í Hafnarfirði.
Foreldrar Sigurðar Steinars voru Ketill Eyj-
ólfsson, f. 20.4.1911, d. 11.10.2006, útgerðar-
maður í Keflavík og síðan eigandi Efnalaugar
Hafnfirðinga og þá búsettur í Hafnarfirði, og
k.h., Anna Rósaliíja Amadóttir, f. 6.7.1923, d.
18.2.1996, húsmóðir.
ÆTT
Ketill var sonur Eyjólfs, sjómanns í Merk-
inesi í Höfnum Símonarsonar, b. í Heima-
landi í Flóa Gíslasonar. Móðir Eyjólfs var
Björg Eyjólfsdóttir.
Móðir Ketils var Helga Gísladóttir, b. í
Hólakoti á Miðnesi Halldórssonar, og Guð-
rúnar Eiríksdóttur.
Anna Rósalilja var systir Sigurðar Arna-
sonar, skipherra hjá Landhelgisgæslunni.
Anna var dóttir Arna, skipstjóra í Reykjavík,
bróður Steinunnar, ömmu Mörtu Guðjóns-
dóttur, formanns Varðar. Önnur systir Árna
var Ingveldur, amma Helenar Eyjólfsdóttur
söngkonu. Ami var sonur Þorkels, b. í Lamb-
haga, Arnasonar, bróður Guðrúnar, lang-
ömmu Víglundar Þorsteinssonar forstjóra.
Móðir Þorkels í Lambhaga var Steinunn Þor-
kelsdóttir, b. í Krýsuvík Valdasonar, og Þór-
unnar Alfsdóttur, b. í Tungu í Flóa Arasonar,
hreppstjóra á Eystri-Loftsstöðum Bergsson-
ar, ættföður Bergsættar Sturlusonar. Móðir
Arna skipstjóra var Ingveldur, langamma Páls
Jenssonar prófessors. Systir Ingveldar var
Sigríður, langamma Harðar Sigurgestsson-
ar, fyrrv. forstjóra Eimskipafélagsins. Önnur
systir Ingveldar var Sigurbjörg, amma Guð-
mundar Björnssonar læknaprófessors. Ing-
veldur var dóttir Jóns, ættföður Setbergsættar,
og bróður Sigurðar, afa Ottós N. Þorlákssonar,
fyrsta forseta ASf. Jón var sonur Guðmund-
ar, b. í Miðdal í Mosfellssveit, bróður Einars,
langafa Sigríðar, móður Vigdísar Finnboga-
dóttur. Móðir Ingveldar var Sigríður Þórðar-
dóttir, b. á Reykjum í Biskupstungum, Jóns-
sonar, b. á Rafnkelsstöðum, bróður Sigurðar,
afa Vilborgar, langömmu Sigurborgar, móður
Emils Jónssonar forsætisráðherra.
Móðir Önnu Rósalilju var Steinunn Sig-
ríður Magnúsdóttir, b. í Garði Eyjólfssonar og
Vilborgar Berentsdóttur.
Sigurður Steinar er að heiman á afmælis-
daginn.
Þorsteinn Gunnarsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI Á SELFOSSI
MERKIR ÍSLENDIIVGAR
Þorsteinn fæddist
á Akureyri og ólst þar
upp. Hann var í Odd-
eyrarskólanum, Gagn-
fræðaskóla Akureyrar,
og lauk síðan námi í bif-
vélavirkjun við Iðnskól-
ann á Akureyri.
Þorsteinn starfaði
á bifvélaverkstæðinu
Þórshamri 1974-81,
festi þá kaup á Bílasölu
Norðurlands, starfrækti
hana með hléum ásamt
rekstri myndbanda-
leiga og fleiru en stofnaði síðan
Bílasöluna Bílaval árið 1988. Þá
sinnti hann viðhaldi fyrir verka-
takafyrirtækið Fjölnismenn á
árunum 1988-1991 en rekstri
eigin verkstæðis og viðskipt-
um ffá 1991-1995. Hann var
framkvæmdastjóri Hagfangs frá
1995-1998 og rakauglýsingastof-
una Ellefu frá 1997-1998 er hann
flutti á Selfoss þar sem hann hef-
ur búið síðan. Þar hefur hann,
ásamt eiginkonu sinni, starfrækt
ilmkertagerðina Töfraljós. Þá
starfrækja þau hjónin fyrirtæk-
ið Skrifa.Com, sem er íslenskur
upplýsingavefur um móttöku á
gervihnattasjónvarpsefni, Sky-
kort.com, sem veitir
upplýsingar um mót-
töku sjónvarpsefnis frá
Sky, ásamt því að starf-
rækja vefverslunina
Versla.com. Einnig reka
þau hjónin afþreyingar-
vefinn Betra.net.
FJÖLSKYLDA
Eiginkona Þorsteins
er Helga Auðunsdótt-
ir, f. 28.4. 1961, ffarn-
kvæmdastjóri Töffa-
ljósa.
Fósturböm Þorsteins og börn
Helgu em Auðunn Eggert, f. 21.5.
1980, verktaki í Danmörku; Vig-
dís Anna, f. 14.10. 1981, blóma-
skreytingakona; Jóhanna Hlín, f.
17.12. 1985, nemi við FSu; Kol-
brún Lilja, f. 5.6. 1987, eigandi
og ffamkvæmdastjóri urdar-
brunnur.is, Kolbeinn Sigurður, f.
21.7.1995, nemi.
Dóttir Þorsteins er Linda
María, f. 22.10.1979, sálffæðing-
ur í Reykjavík.
Foreldrar Þorsteins: Gunn-
ar Jónsson, f. 1932, d. 2000,
sjómaður á Akureyri, og Elsa
Þorsteinsdóttir, f. 1931, hjúkmn-
arfræðingur á Akureyri.
ÓLI S.ÞORVALDSSON
f. 3. mars 1923, d. 13. mars 1992
Óla Sverri Þor-
valdsson þekktu flestir
Reykvíkingar hér áður
fyrr sem Óla blaða-
sala. Óli hóf blaða-
sölu í Reykjavíkur er
hann var fjórtán ára,
eða í kreppunni, 1937.
Hann seldi dagblöð
í Miðbænum í meira en hálfa
öld. Hann seldi öll dagblöðin en
mest seldi hann þó af síðdegis-
blöðunum, Vísi og síðan Dag-
blaðinu og loks DV eftir sam-
einingu síðdegisblaðanna 1981.
Auk þess seldi hann svo Mánu-
dagsblaðið.
Óli var ókrýndur konung-
ur blaðasalanna í Miðbænum.
Síðustu árin var honum þó
veitt hörð samkeppni af Auð-
uni Gestssyni sem varð einmitt
sjömgur f síðustu viku. Óli hafði
sinn fasta sölustað við inn-
ganginn á Reykjavíkurapóteki,
á homi Austurstrætis og Póst-
hússtrætis, og voru það óskráð
lög að enginn annar mætti
selja blöð þar á horninu. Þetta
var á þeim árum er mannlíf-
ið var mun meira og fjölbreytt-
ara í Miðbænum en
nú er og lausasala
dagblaðanna miklu
meiri. Segja má að Óli
og Auðunn hafi verið í
hópi síðustu einstakl-
inganna sem settu
sinn fasta, viðkunnan-
lega svip á mannh'fið í
Miðbænum, manna á borð við
Kjarval, Vilhjálm ffá Skáholti,
Óla Maggadon og Eggert Stef-
ánsson svo fáeinir séu nefndir.
Óli fæddist í Reykjavík 3.3.
1923 en missti móður sína
ungur og ólst upp hjá hjónunum
Ögmundi Þorkelssyni og
Jónínu Þórðardóttur við
Bergstaðastrætið. Hjá þeim var
hann í tuttugu ár en bjó síðar
hjá systur sinni í Hlíðunum um
langt skeið. Óli var nefmæltur
og hafði djúpa og sterka
rödd. Líklega sjá margir eldri
Reykvíkingar hann enn fyrir
sér á hominu við Apóteldð þar
sem hann stóð í öllum veðrum
í grænu úlpunni sinni og
hrópaði: „Vísir! Dagblaðið og
Mánudagsblaðið - Náttfari enn
á ferð." Óli lést 13.3.1992.
r