Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2008, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2008, Side 29
DV FólkiS MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 29 MATTHÍAS SEGIR ICELAND EXPRESS MUN BETRI KOST: KEPPINAUTUNUM Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Ice- land Express, lenti í því að missa af Ex- press-vélinni frá Kaupmannahöfn og þurfa að fljúga með keppinautunum Icelandair heim á klakann. Hann segist hafa fyllst sjálfstrausti fyrir hönd Ex- press eftir flugferðina. Matthias Imsland, fram- kvæmdastjóri lceland Express Sannfærðist enn frekar um ágæti sinna manna eftir flugferð með lcelandair. ICELANDAIR Farþegar f hádegisflugi Ice- landair ífá Kaupmannahöfn síð- astliðinn fimmtudag ráku upp stór augu þegar þeir sáu sjálfan framkvæmdastjóra Iceland Ex- press, Matthías Imsland, koma sér fyrir á Saga Class-rými flug- vélarinnar. Matthías segir ósköp einfalda ástæðu fyrir því að hann hafi flogið heim með keppinaut- unum. „Það var nú bara þannig að ég missti af vélinni með Ice- land Express frá Köben því ég var á fundi sem dróst á lang- inn. Ég náði því Icelandair-vélinni sem fór klukkutíma seinna í loftið. Ég var bara „upgreidaður" svo ég þurfti því ekki að borga Saga Class- gjald fyrir miðann. Það vildi nú líka þannig til að konan sem sat við hlið- ina á mér í vélinni var líka upgreiduð þannig að það gengur greinilega eitthvað erfiðlega hjá þeim að selja í þessi Saga Class-sæti sín," seg- ir hann hnyttinn. Það er ágætt að ferðast svona með keppinautunum því maður fyllist bara sjálfstrausti fyrir hönd Iceland Express. Munurinn á því að ferð- ast með Icelandair á Saga Class eða með Iceland Express er sá að öll sætin í Ex- press-vélunum eru svona Saga Class- sæti. Það er rosalega rúmt í Express-vél- unum og góð sæti og manni líður eins og kóngi allan tímann. Það var nú ekkert svoleiðis hjá Icelandair í Saga-Class, það er ekkert stórkosdegt. Ég myndi aldrei borga þetta verð sem þeir rukka fyrir þetta, ég myndi ekki sofa á nóttunni ef ég eyddi í svona videysu," segir Matthí- as fúllur sjálfstrausts fyrir hönd sinna manna. Aðspurður hvort hann hafi val- ið sér einhverja skemmtilega mynd tíl að horfa á í flugferðinni svarar Matthí- as: „Nei, þeir voru bara að sýna einhverja gamla mynd sem ég nenntí nú ekki að horfa á. Eg spjallaði bara við konuna við hliðina á mér, hún var mjög skemmtileg og við áttum bara fi'nar samræður. Hún var einmitt að fljúga með Icelandair í fyrsta skiptí í langan tíma því hún flýgur alltaf með Express." Aðspurður hvort hér hafi verið um einstakt tilfelli að ræða eða hvort Matthías eigi eftir að nýta sér Ice- landair frekar í framtíðinni svarar hann. „Ég reyni alveg eins og ég get núna að fljúga með Express. Að mínu mati er það bara miklu miklu betra. Ég myndi segja að ég sé það sanngjarn maður að ég geti alveg dæmt þetta út frá hlutiausum for- sendum. Mér finnst alveg æðislegt að fljúga með Iceland Express og manni líður eins og kóngi allan tí'mann," segir flugfé- lagsframkvæmdastj órinn að lokum. krista@dv.is Ágúst Bent Sigbertsson hefur gert teiknimyndasögu um erjur Bubba og Dóra DNA: STRÍÐIÐ RÉTT AÐ HEFJAST „Mér finnst gaman að gera um eitthvað körrent, eitthvað sem er að gerast núna, eins og Bubbi og Dóri hafa sjálfir verið að gera," segir Ág- úst Bent Sigbertsson, tónlistarmað- ur og nemandi í grafískri hönnun við Listaháskóla íslands, sem gerði teiknimyndasögu um erjur Bubba Morthens og Dóra DNA, blaða- og tónlistarmanns, á dögunum. Teikni- myndasagan var lokaverkefni Bents í teiknimyndasögukúrs í skólanum en hann á enn eftir að fá einkunn fyrir verkefnið. Upphaf deilunnar var neikvæður dómur Dóra í DV um þáttinn Band- ið hans Bubba sem nú er sýndur á Stöð 2. Bubbi svaraði fullum hálsi á netsíðu sinni þar sem hann sagði Dóra meðal annars einungis hafa unnið sér það til frægðar að vera út- þynnt gen af nóbelsskáldinu. „Svona tuttugu prósent eru sannsöguleg en restin er framtíðarspá. Og ég náttúr- lega reikna með því að þessar erjur séu langt frá því að vera búnar. Stríðið á milli Bubba og Dóra á eftir að her- taka okkur öll." Aðspurður hvort hann sjái fyr- ir sér að „stríðið" eigi eftir að kosta annan hvom þeirra lífið segist Bent ekki búast við því. „En það er aug- ljóst að þeir þurfa að kljást. Þetta endar með alvöru sjódáni á milli þeirra." Bent segist hafa gert mik- ið af teiknimyndasögum í æsku, en ekki í seinni tíð. „Kannski er þetta bara mitt fyrsta skref í því. Það fer eftir því hvernig þessari sögu verður tekið," segir Bent sem hyggst prenta söguna í smá upplagi og hafa tíl sölu í einhverjum fata- og plötubúðum bæjarins. kristjanh@dv.is GILLZ- LEIKURINN VINSÆLL Gillzenegger-leikurinn svokall- aði hefur náð miklum vinsæld- um á síðunni leikjaland.is. Um sjö þúsund manns spila leikinn dag hvern, sem verður að teljast ansi gott. Leikurinn gengur út á það að klæða Gillzarann í föt, svo hann sé sem skæslegastur í ræktínni. Það var Ingvar Þór Gylfason, eigandi síðunnar, sem gerði leikinn sjálfur og von er á öðrum svipuðum leik, þar sem annar frægur fslendingur verður í aðalhlutverki. ÁSDÍS KOMIN ÍFYRSTASÆTI Ásdís Rán Gunnarsdóttir er nú kom- in í fyrsta sæti á heimasíðunni isshe- hot.com, en þar eru valdar stúlkur til þess að koma fram í sérstökum raunveruleikaþætti í Ástralíu, þar sem sigurvegarinn hlýtur eina millj- ón dollara í verðlaun. Ásdís var lengi vel í þriðja sætinu, en eftir að hafa biðlað til kvennanna á barnaland.is um að kjósa sig og eftir að frétt birtist um málið á Stöð 2, hefúr hún skotist upp í það fyrsta. Ásdís er með 8,67 í meðaleinkunn, næstum því einum heilum á undan þeirri sem er í öðru sætinu, en sú er með 7,78. Sigurveg- arinn verður úrskurðaður á þriðju- daginn en sá fer til Ástralíu í vor. Ágúst Bent Sigbertsson „Svona tuttugu prósent eru sannsöguleg en restin erframtfðarspá." Mynd:Ásgelr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.