Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2008, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 1. MA[ 2008
Helgarblað DV
Vísitöluíjölskyldan gæti sparað sem nemur mánaðarlaunum ræstitæknis væri vernd-
artollum og innflutningshöftum á eggjum, kjúklingi og svínakjöti aflétt. Kaupmenn
reikna með að verð á þessum vörum gæti lækkað um allt að helming. Guðni Ágústs-
son, formaður Framsóknarflokksins, óttast að afnám tolla og hafta hefði i för með sér
að alvarlegar sýkingar bærust hingað i innfluttu kjöti og að kaupmenn hirtu gróðann.
„Þaðerekkert
leyndarmál að
verðlagið brennur
mjög á neytendum.
Það erstaðreynd"
TRAUSTI HAFSTEINSSON
bladamadur skrifar:
íslensk vísitölufjölskylda, tveir full-
orðnir og tvö börn, gæti sparað ár-
lega því sem nemur einum mán-
aðarlaunum væri verndartollum
og innflutningshöftum á eggjum,
kjúklingi og svínakjöti aflétt hér
á landi. Samkvæmt nýjum kjara-
samningi fær starfsmaður í ræst-
ingum rúmar 139 þúsund krónur í
dagvinnulaun á mánuði en árlegur
sparnaður vísitölufjölskyldunnar er
rúmar 123 þúsund krónur. Sú upp-
hæð miðast við að fjölskyldan kaupi
1 kíló af ferskum kjúklingabringum,
1 kíló af svínagúllasi og 1 bakka af
meðalstórum eggjum í viku. Mán-
aðarlegur sparnaður hennar er
rúmar 10 þúsund krónur.
Kjúklingakóngar íslands, Mata-
fjölskyldan og Sláturfélag Suður-
lands, SS, eru líka svínakóngar ís-
lands. Um leið og þeir eru með
langstærstan hluta markaðshlut-
deildar í kjúklingi eru þeir einnig
með nærri helming markaðshlut-
deildar í svínakjöti. Heildarmagn
í framleiðslu á kjúklingi og svína-
kjöti hérlendis er ríflega 13 þús-
und tonn á ári. Helmingurinn er á
vegum kónganna tveggja og hinn
helmingurinn skiptist annars vegar
á milli fjármálastofnana á borð við
Kaupþing, svínabúið Brautarholt á
Kjalamesi, og Sparisjóð Mýrasýslu,
svínabúið að Hýrumel í Borgarfirði,
og hins vegar Geirs Gunnars Geirs-
sonar hjá Stjömugrís.
Sama saga með eggin
Geir Gunnar er síðan með nærri
20 prósenta markaðshlutdeild í
svfnakjöti og hann er einnig með á
bilinu 50 til 60 prósent af eggjafram-
leiðslunni. Tveir framleiðendur em
með um það bil 90 prósent af eggja-
markaðnum, annars vegar Stjömu-
egg og hins vegar Nesbúið. Hin 10
prósentin eru á höndum Brúneggja
ehf. Skráðir eggjaframleiðendur em
þó 250 talsins hér á landi en margir
litlir framleiðendur em til og sumir
þeirra í framleiðslu fyrir stóm búin
tvö.
fslenska vísitölufjölskyldan gæti
sparað rúmar 50 þúsund krónur á
ári yrði vemdartollum og innflutn-
ingshöftum á svínakjöti aflétt hér
á landi. Þá er reiknað með að fjöl-
skyldan kaupi 1 kíló af svínagúllasi
vikulega en mánaðarlegur sparnað-
ur hennar yrði nærri 4 þúsund krón-
ur. Hver vísitölufjölskylda sparaði
sér tugi þúsunda árlega í innkaup-
um á svínakjöti sé horft til saman-
burðarlanda.
Mikill sparnaður
Sama fjölskylda gætí sparað sér
45 þúsund krónur á ári væri vernd-
artollum og innflutningshöftum af-
létt hér á landi. Sá sparnaður miðast
við að fjölskyldan keyptí ódýrasta
kjúklingakjöt sem í boði er, 1 kíló
af ffosnum kjúklingabringum, einu
sinni í viku. Mánaðarlegur sparn-
aður þessarar sömu fjölskyldu væri
3.500 krónur.
DV DV 17. APRÍL 2008
Ef íslenska vísitölufjölskyldan
leyfði sér að kaupa ferskar kjúkl-
ingabringur í stað frosinna kemur í
ljós að verðmunur milli fslands og
samanburðarlanda er enn meiri.
Væm verndartollar og innflutnings-
höft afnumin af kjúklingakjöti hér á
landi sparar fjölskyldan mun meira
árlega kaupi hún ferskar bringur.
Miðað við sömu forsendur, að keypt
sé 1 kíló af ferskum bringum á viku,
er árlegur spamaður fjölskyldunnar
tæpar 70 þúsund krónur. Mánaðar-
legur spamaður hennar er rúmar 5
þúsund krónur.
Tryggvi Axelsson, forstjóri Neyt-
endastofu, segir stærsta verkefni
stofnunarinnar að bregðast við
ábendingum og kvörtunum neyt-
enda vegna verðlags og verðmerk-
inga. Hann bendir á að Neytenda-
stofa framfylgi þeim lögum sem í
gildi em og það falli í hlut stjóm-
málamanna að ákveða afnám
vemdartolla og hafta. „Það er ekk-
ert leyndarmál að verðlag og verð-
merkingar brenna mjög á íslenskum
neytendum. Það er staðreynd. Al-
gengasta umkvörtunarefnið til okk-
ar er hátt verðlag en hvort bændur,
sem líka em neytendur, fagni breyt-
ingunni er erfitt að segja til um.
Hvort eigi að hafa áfram verndar-
tolla er hins vegar stjórnmálaleg
ákvörðun," segir Tryggvi.
Ódýrari egg og
beikon
Jóhannes Jóns-
son, kaupmaður í
Bónus, segir hið svo-
kallaða hvíta kjöt,
svínakjöt og kjúkl-
ing, vera í kringum
11 prósent af mat-
arinnkaupum fjöl-
skyidunnar og að
hlutfallið fari vax-
andi. Vilji stjórnvöld
yfirhöfuð lækka
matvæla-
verð
á ís-
landi vill hann sjá tollum og höftum
aflétt hið allra fýrsta neytendum til
heilla. „Ég get ímyndað mér að verð-
ið á þessum vömm gætí lækkað um
helming og það hefur augljóst vægi
í heildarinnkaupum fjölskyldunn-
ar. Afnám tolla og hafta hefði vem-
leg áhrif fýrir neytendur. Fyrir vik-
ið gætí spælda eggið og beikonið á
morgnana væntanlega orðið helm-
ingi ódýrara," segir Jóhannes.
„Hversu lengi vill almenningur í
landinu leggja á sig kostnaðinn við
að vemda sárafáa aðila sem stunda
kjúklinga- og svínarækt? Ég vil sjá
hagsmuni fjöldans tekna fram fyrir
hagsmuni fámennis. Ferskur kjúkl-
ingur og svínakjöt, meðal annars
marinerað á ýmsan hátt, er orðinn
ríkur þáttur í matarinnkaupunum
og við finnum mikla aukningu frá
því sem áður var. í raun hefur orð-
ið algjör bylting en verðið er samt
alltof hátt. Fyrir neytandann og við-
skiptavininn vil ég geta boðið upp á
hvíta kjötíð á helmingi lægra verði."
Enginn afsláttur
Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur ■ Neytendasamtakanna, hefur
lengi barist fyrir því að vemdartoU-
ar og innflumingshöft á kjúklingi
verði lögð af. Hann segir verðlagn-
ingu á kjúklingi hér á landi einfald-
lega ekki ganga upp. „Rök-
in fyrir því að tollar
og höft verndi
landbúnað-
inn eiga
ekki við
leng-
ur þegar
horft er
tíl kjúkl-
ingafram-
ieiðslunnar
Sam-
þjöppun hefúr átt sér stað og að
sjálfsögðu er verið að vernda hags-
muni fárra aðila á kostnað fjöld-
ans. Ég spyr mig hversu endalaust
er hægt að ganga í pyngju neytenda
tíl að vernda hagsmuni tíltölulega
fárra," segir Jóhannes.
Ema Bjamadóttir, hagfræðingur
Bændasamtaka íslands, er ósam-
mála því að verið sé að vernda hags-
muni fárra. Hún telur mikilvægt að
horfa tíl þess að verndartollar og
innflumingshöft verndi í raun alla
kjötframleiðslu í heild sinni. „Við
teljum kjúklingaframleiðslu til
landbúnaðar líkt og aðra kjötfram-
leiðslu hér á landi. Þó svo að um
sé að ræða tvo stóra aðila em fleiri
smærri í þessari framleiðslu sem
vinna fýrir þessa stóm. Við viljum
ekki sjá að vemdin verði afnumin
og gefum engan afslátt af því. Það er
mikilvægt að vernda landbúnaðinn
í heild sinni," sagði Erna í samtali
við DV nýverið.
Bitnar á neytendum
Hildur Traustadómr, fram-
kvæmdastjóri Félags kjúklingafram-
leiðenda, tekur í sama streng og ótt-
ast hún hrun í kjúklingaframleiðslu
hér á landi verði tollarnir og höft
afnumin. „Það verður hmn með
breytíngunum og ekki bara í kjúkl-
ingunum heldur landbúnaðinum í
heild og allri kjötvinnslu. Við gemm
ekki keppt við erlenda framleiðend-
ur og þá hætta menn þessu bara.
Samkeppnisstaða okkar er engin í
samanburði við nágrannalöndin og
því em þessir verndartollar og inn-
flutningshöft lífsnauðsynleg til að
vernda iðnaðinn hér á landi," segir
Hildur.
Gunnar Ólafur Haraldsson, for-
stöðumaður Hagfræðistofnun-
ar Háskóla íslands, er fylgjandi því
að tollar og höft séu afnum-
in hér á landi, í. kjúkl-
ingaiðnaði sem og í
annarri framleiðslu.
Hann segir vemd-
arstefnuna bima
á neytendum.
„Vemdarstefna á
landbúnaðaraf-
urðir kemur sér
alltaf illa fyrir
neytendur
en vel
fyrir
Dýr kjúklingur Verð á kjúklingi hér á lar
talsvert liærra i samanburði við verð víða
nágrannalöndunum. Því er spáð að verð.
kjúklingi hérlendis gæti lækkað um allt ai
helming væri tollum og höftum aflétt
WS:
m
framleiðendur. Það er bara þannig
og það þarf pólitíska ákvörðun um
breytíngu þar á. Nútímakjúklinga-
bú em verksmiðjur með stærðar-
hagkvæmni að leiðarljósi. Spurn-
ingin um það hvers vegna verið sé
að vernda fáa framleiðendur er
góð og gild. Fjölskyld-
una munar um þenn-
an sparnað og fyrir
hana, og neytand-
ann almennt,
finnst mér að af-
» létta eigi tollum
1 og höftum," seg-
ir Gunnar.
Helmingslækkun Jóhannes biðut spenntui
ettir þvi að geta boðið vlðskiptavmum sinum
upp a egg, kjúkling og svinakjot a helmingi
lægra verði en nu býðst.
Ógnarský á lofti úuðni ottast að verslanir myndu hirða
ágóðann af afnami tolla og hafta Hann segir islenska
neytendur græða langmest a þvi að haldið se utan um
islenskan kjotiðnað, emn þann alflottasta i heiminum.