Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2008, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2008, Blaðsíða 62
62 FIMMTUDAGUR 1. MAl 2008 Helgarblað DV * Fjöldi íslenskra tónlistarmanna hefur lagt leið sína til Brussel síðan í febrúar að spila á hátíð- inni Iceland on The Edge sem stendur yfir til 15. júní. í gær var sérstakt Smekkleysukvöld þar „Hátíðin Iceland on the Edge er hugsuð sem þáttur í því að kynna Island og byggja upp ímynd lands- ins með jákvæðum hætti á erlendri grund þar sem menning og listir eru notuð sem þungamiðja," segir Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra ís- lands í Brussell. Fjöldi íslenskra tón- listarmanna hefur komið fram á Ice- land on the Edge-hátíðinni í Brussel sem hófst 15. febrúar síðastíiðinn en meðal þeirra sem komu fram á opn- un hátíðarinnar var hljómsveitín Hjaltalín. Sérstök Iceland Airwaves-kvöld hafa verið haldin á hátíðinni í febrú- ar og mars en í gærkvöldi stóð Smekkleysa fyrir skemmtilegu kvöldi þar sem ffam komu meðal annars Sjón, örvar Þóreyjarson Smárason, Stilluppsteypa, Ghostigital, Lay Low, Steintryggur og Kimono. „Ástæðan fyrir því að þetta er haldið í Brussel er að alþjóðasamfé- lagið er svo stórt hérna. Brussell er náttúrulega ein stærsta borg í heimi hvað varðar alþjóðasamstarf, það eru til að mynda hvergi fleiri sendiráð en hér auk þess sem höfuðstöðvar allra þessa Evrópustofnana eru í Brussel. Samstarfsaðili okkar hérlendis er menningarmiðstöðin Bozar sem er ein stærsta og öflugasta sinnar teg- undar í borginni og viðburðimir fara flestir fram meira og minna undir einu þaki hjá þeim. f samstarfi við þá höfum við náð að kynna hátíðina mjög vel og fengið mikla umfjöliun í fjölmiðlum hérlendis," segir Stefán en gríðarlega vel hefur verið mætt á alla viðburði hátíðarinnar. „Verkefnið er fremur umfangs- mikið og stórt og við hjá Útflutn- ingsráði höfum fengið tií samstarfs við okkur menntamálaráðuneytið, iðnaðarráðuneytið, Ferðamálastofu, Icelandair og Iceland Cargo aukþess sem Landsbankinn styður þetta á mjög myndarlegan hátt," segir Stefán og bætir við: „Þeir ferðaþjónustuaðil- ar sem eru í samstarfi við okkur eins og Icelandair segjast nú þegar finna fyrir auknum pöntunum á ferðum til íslands svo þetta er nú þegar farið að skila árangri." Diljá Ámundadóttir, verkefna- stjóri hjá hr.Örlygi hefur farið með íslensku hljómsveitunum á bæði Iceland Airwaves-kvöldin í Belgíu en hún segir stemninguna fyrir hátíð- inni hafa verið einstaklega góða. „Ég og Egill hjá Hr. Örlygi fórum með hljómsveitunum í febrúar og mars. Það var rosalega góð stemn- ing sama hvert við fórum. Niðri í bæ var Iceland Airwaves-lógóið útí um allt og ljósaskiltí úti á götu með dagskránni fyrir utan annað tónlist- arhúsið. Það var greinilega búið að kynna þetta alveg rosalega vel," seg- ir Diljá en uppselt var á alla Iceland Airwaves-viðburðina. „f mars vorum við með tvö kvöld, á fyrra kvöldinu var Tilraunaeldhúsið með perform- ans og seinni kvöldið endaði dag- skráin á múm. Það var búið að selja ellefu hundruð miða í forsölu og það komu svo margir til að kaupa miða við dyrnar að það var bara farið í það að stækka salinn til að koma öllum gestunum að. Ég vildi bara að við gætum flutt þessa tónleikastaði sem við unnum með úti hingað heim því skipulagið og stemningin var til fyr- irmyndar á þessum stöðum. Ég vona bara að tónlistarhúsið hérna verði eitthvað í líkingu við þetta." Iceland on the Edge hátíðin stend- ur yfir til 15. júní og er til að mynda stórsveit Samúels M. Samúelsson- ar ein þeirra sveita sem eiga eftir að stíga á svið í Brussel auk klassíska píanóleikarans Víkings Heiðars Öl- afssonar. „Ég mæli alveg með því að fólk heimsæki Brussel svona yfir eina helgi því þetta er æðisleg borg með unaðslegum vöfflum og frábæru fólki," segir Diljá að lokum. krista@dv.is Mýrdalshreppur Óviðjafnanlegt umhverfi - Góð þjónusta - Fallegur golfvöllur - Gönguleiðir - Aðeins 2 klst. akstur frá Reykjavík - http://www.vik.is Vík í Mýrdal Fjölskylduvænt samfélag ífögru umhverfi ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.