Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2008, Blaðsíða 37
PV Sport
FIMMTUDAGUR 1. MA( 2008 37
Nýliðarnir Guðmundur Benediktsson og Kristóier Sigurgelrsson voru að vonum kátir
með fyrsta landsleiklnn. Báöir komu inn á sem varamenn og Kristóler lagöi upp sigur-
marklð fvrir Guðmund. DV-mvnd GS
tilbúnir í svona álag, búnir að taka
út allan Iíkamlegan vöxt snemma
en svo eru aðrir sem eiga kannski
lengra í land. Ég á 10 ára dreng
sem er í fótbolta og körfubolta og
því hef ég aðeins spáð í þetta. Það
er eins og með pabbann, það snýst
allt um að komast í íþróttir allan
sólarhringinn.
Auðvitað hefur maður auga
með þessu og áhyggjur af því að
hann gæti lent í því sama og ég
gerði. Ég sleit krossband 16 ára
sem ég náði í raun aldrei að vinna
mig út úr og hef verið að elta alla
tíð síðan. Seinna sleit ég krossband
þrisvar í viðbót og ég veit ekki hvort
það séu margir sem myndu nenna
að standa í þessu með þessi hné
sem ég er með. Ég hreinlega þakka
Guði fyrir það að vera ennþá að
spila fótboltaþví þótt það sé gaman
að horfa á fótbolta er fátt skemmti-
legra en að spila hann," sagði Guð-
mundur með mikilli ástríðu.
Dr. Martens bjargaði ferlinum
Guðmundur fór í atvinnu-
mennsku 16 ára til belgíska liðs-
ins Ekeren. Það voru þó mörg lið
sem höfðu áhuga á þessum undr-
apilti en öll þau lið flúðu strax skip-
ið þegar Guðmundur meiddist í
fyrsta skiptið. I Ekeren fékk hann
hjálp mjög færs læknis til að koma
sér aftur í stand og telur að það sé
lykilliinn að því að hann spili enn
þann dag í dag.
„Ekeren hafði séð mig spila með
drengjalandsliðinu gegn Belgíu í 1-
1 jafnteflisleiksem ég náði að skora
í. Það voru samt íjölmörg lið sem
höfðu haft samband en ég vildi
bíða með viðræður fram yfir úr-
slitakeppni drengjalandsliða sem
var um sumarið og var samkomu-
lag að öll liðin ætluðu að koma að
horfa á mig.
Þau gerðu það flest held ég en
fóru fljótt því ég sleit krossband
eftir korter held ég í fyrsta leik. Ég
hafði meiðst heima á Akureyri fyrir
mótið en var gefið leyfi til að fara af
stað rétt fyrir mótið. Það var samt
greinilega ekkert í lagi með mig
sem var leiðinlegt. Við vorum með
hörkulið þarna og ætluðum okkur
stóra hluti.
Ekeren bauð mér samt til Ant-
werpen eftir leikinn að hitta lækni
að nafni dr. Martens sem var á þeim
tíma einhver ffægasti íþróttaskurð-
læknir heims. Hann skar mig svo
upp út frá því. Svona krossbands-
slit á þessum tíma voru mun verri
en þau eru í dag. Það voru marg-
ir knattspyrnumenn sem þurftu
bara að hætta ef þeir lentu í svona
meiðslum.
Eftir aðgerðina hófust samn-
ingaviðræður við Ekeren og reynd-
ar Stuttgart líka sem ég hafði æft
með í gegnum Ásgeir Sigurvinsson
sem starfaði fyrir félagið á þeim
tíma. Á endanum valdi ég Belgíu
en hvort það hafi verið rétt eða röng
ákvörðun er síðan allt annar hand-
leggur. Ég hef nú hitt Ásgeir nokkr-
um sinnum síðan og hann tilkynn-
ir mér reglulega að þetta hafi verið
röng ákvörðun," sagði Guðmund-
ur og hlær. „Ég valdi Ekeren því ég
taldi mig geta spilað fyrr með að-
alliði Ekeren en Stuttgart sem var
risastór klúbbur. Ég var á þannig
flugi á þessum tíma að ég ædaði
mér strax í aðalliðið enda fullur
sjálfstrausts.
Þótt ég hafi ekki náð mörgum
leikjum fyrir félagið sé ég samt ekki
eftir því að fara þarna. Hefði ég ekki
farið þarna út og fengið þá meðferð
ég fékk og kynnt mér hvað þarf að
gera til að ná sér af svona meiðsl-
Guðmundur Benediktsson:
Samdi munnlega
við Ekeren
- skrifað undir á Akureyri fljótlega
Kris^inBwTtburg. DV. Beigkr
Guömurulur Bcnediktssou, knatt
spymumaður úr Þór á Akureyri.
pírtii á laugardaginn var munnkgt
samkomulag yiö belgiska L deUdar-
liöiö Ekeren. Á næstu dögum munu
viðræöur lieftast á milli Ekcren og
Þótí og cftir þær vcröur skritaö und
ir samning. Guömundur mun gera
tvcgaa ára samning vió bdgiska liö
iö.
Ekcren cr miög upprennandi lið í
Bdgiu cn ó síöasta timabiii hafhaði
Uðiö i flmmta sæti f 1. ddld og vann
sér um leiö réttinn til að leíka í Evr-
ópukeppnl félagsliöa (UBPA) á kom-
andi hausti. Guömundur tnun ckki
lxája aö leika mcö liðinu fyrr ai cftir
4-6 manuói cn hann á i meiösJum.
Forráöamcnn Ekcren vUJa iá Guö-
tnund $em allra fyrst til Udgiu þar
scm hann vcrftur i cndurhæfingu hjá
hinum þckkta lækni dr. Martens.
Ekcrcn hcfur fylgst mcö Gj
umcinsárs skotö og var Gu
um Uma við œfingar M
Þýdm lelagið Stuttgart sý
mundi mikinn óhuga cn h
bdgiskaUöið.
.. ~
V
MUNNLEGUR SAMNING-
UR Guðmundurfór snemma
utan í atvinnumennsku.
um væri ég eflaust ekki ennþá í fót-
bolta í dag. Hérna heima hefði ég
bara verið í skóla eða vinnu en ekki
fengið eingöngu að vinna í því að
ná mér eins og ég gerði þarna úti.
Á svipuðum tíma og ég sleit
krossbönd gerði annar strákur það
í liðinu einnig. Sá drengur hafði
náð sér í konu sem var dóttir for-
seta félagsins," segir Guðmund-
ur og skellir upp úr. „Það voru því
hæg heimatökin í húsi forsetans
þar sem við gátum farið í sund alla
morgna áður en við fórum í endur-
hæfingu."
Eini íslendingurinn sem
skoraði á gamla Wembley
Landsliðsferill Guðmundar er
ekki langur í A-landsliðinu en þó
sæmir það þessum magnaða fram-
herja að hafa skorað í sínum fyrsta
landsleik. Ungmennalandsliðsfer-
ill hans var aftur á móti magnaður
og er Guðmundur eini fslending-
urinn sem skoraði á gamla Wemh-
ley-leikvanginum.
„Ég var mjög ánægður þegar
þeir rifu gamla Wembley," segir
Guðmundur brosandi. „Ég spil-
aði þar sýningarleik með úrvals-
liði Norðurlandamóts unglinga
fyrir leik Liverpool og Arsenal um
góðgerðarskjöldinn á móti Eng-
landi. Þar náði ég að gera helvíti
fi'nt mark og fékk klapp fyrir frá
stuðningsmönnum beggja liða.
Þarna voru um 80.000 manns eða
hvað völlurinn nú tók og þótt það
hafi oft verið margir á KR-vellin-
um eða Hlíðarenda er þetta nokk-
uð örugglega langmesti mann-
fjöldi sem ég hef spilað fyrir. Ég hef
reynt að grennslast fyrir um hvort
það voru einhverjir frægir að spila í
þessu liði Englands þarna og sama
með liði Frakklands sem ég spilaði
gegn í mínum fyrsta drengjalands-
leik. Það eru margir góðir í þessum
liðum á mínum aldri og það væri
virkilega gaman að sjá hvort ein-
hver nöfn hafi verið í þessum leikj-
um."
Eini sem skoraði á gamla
Wembley
Landsliðsferill Guðmundar er
ekki langur í A-landsliðinu en þó
sæmir það þessum magnaða fram-
herja að hafa skorað í sínum fyrsta
landsleik. Ungmennalandsliðsfer-
ill hans var aftur á móti magnað-
ur og er Guðmundur eini fslend-
ingurinn sem hefúr skorað á gamla
Wembley-leikvanginum.
„Ég var mjög ánægður þegar
þeir rifu gamla Wembley," segir
Guðmundur brosandi. „Ég spil-
aði þar sýningaleik með úrvals-
liði Norðurlandamóts unglinga
fyrir leik Liverpool og Arsenal um
góðgerðarskjöldinn á móti Eng-
landi. Þar náði ég að gera helvíti
fi'nt mark og fékk klapp fyrir frá
stuðningsmönnum beggja liða.
Þarna voru um 80.000 manns eða
hvað völlurinn nú tók og þó það
hafi oft verið margir á KR-vellin-
um eða Hlíðarenda er þetta nokk-
uð örugglega langmesti mann-
fjöldi sem ég hef spilað fyrir. Ég hef
reynt að grennslast fyrir um hvort
það voru einhverjir frægir að spila í
þessu liði Englands þarna og sama
með liði Frakklands sem ég spilaði
gegn í mínum fyrsta drengjalands-
Ieik. Það eru margir góðir í þessum
liðum á mínum aldri og það væri
virkilega gaman að sjá hvort ein-
hver nöfn hafa verið í þessum leikj-
Útlitið slæmt eftir sýkingu
Meiðslin hafa sett stórt og mikið
strik í feril Guðmundar og eftir að
hann gekk til liðs við KR lenti hann
í mjög slæmri sýkingu sem batt
næstum enda á feril hans.
„Um mitt mót 1996 meiddist ég
í hnénu gegn ÍA í uppgjöri topplið-
anna. Þar hneig ég eiginlega nið-
ur þegar ég var kominn í gegnum
vörnina og sleit þar krossband.
Læknarnir vildu samt meina að ég
hefði ekki slitið krossband þarna
heldur hefði það gerst löngu fyrr.
Þeir útskýrðu það þannig að ég
væri með svo sterka lærvöðva að
þeir héldu mér saman og þannig
gæti ég spilað þótt það væri ekki
sniðugt.
Ég ákvað því að halda áfram að
spila svona fyrst ég gæti það því við
vorum í bullandi séns að verða ís-
landsmeistarar. Það reyndar end-
aði nú ekki vel því við töpuðum
þessum fræga úrslitaleik gegn ÍA
uppi á Skaga í lokaumferðinni.
Eftir tímabilið fór ég í aðgerð
og lá heima algjörlega þjáður af
verkjum og svaf varla dúr í nokkra
daga. Ég keyrði því sjálfur upp á
bráðamóttöku og sagði læknunum
að það væri eitthvað mikið að mér,
svona verkir væru ekki eðlilegir. Þá
kom það í ljós að sýking hafði kom-
ist í hnéð eftir aðgerðina og það
var mikil drulla og skítur sem hafði
komist í það.Þetta leit ekki vel út
sögðu læknarnir og þeir voru ekki
vongóðir um að ég myndi ná mér
í hnénu.
1998 þegar Atli Eðvaldsson tók
við KR var ég alveg tekinn úr hópn-
um og æfði nánast ekkert með
strákunum. Heldur var ég settur
í einkaprógram til að reyna að ná
mér af meiðslunum. Ég var send-
ur til Gauta Grétarssonar sjúkra-
þjálfara til að ná mér og það gekk
svo vel upp að ég náði öllu 1998
tímabilinu. Það var alveg frábært
að vinna með Gauta," sagði Guð-
mundur.
Hélt við myndum vinna
titilinn strax
Guðmundur gekk til liðs við KR
þar sem hann var í ein tíu tímabil.
Með KR vann hann fjóra Islands-
meistaratitla og var í KR-liðinu
sem vann þann stóra eftir langa
bið vesturbæjarstórveldisins. Guð-
mundur þurfti að bíða í 4 ár eftir
titlinum en bjóst við honum fyrr.
„Það er gríðarlega gaman að
vera í KR þegar vel gengur en mjög
erfitt þegar illa gengur. Það er ekk-
ert félag sem fær jafnmikla athygli
og KR og ekki allir sem geta spilað
fyrir þann klúbb. Ég sá nú marga
koma og fara á mínum 10 tímabil-
um sem einfaldlega réðu ekki við
það að spila fyri KR. Hvort sem KR
gengur vel eða illa hafa allir skoð-
un á liðinu og það er alltaf á milli
tannanna á fólki.
Ég lít á það þannig að góðir
knattspyrnumenn vilja takast á við
miklar áskoranir og því lá KR vel
fyrir mér. Aðalástæðan var sú að
Guðjón Þórðarson var við stjórn-
völinn þar en mig langaði mikið
að vinna með honum. Mér stóð til
boða að fara til ÍA líka og það heill-
aði mikið enda Skaginn með frá-
bært lið á þessum tíma.
KR hafði ekki unnið titil í fjölda
ára og mig langaði að vera hluti
af því liði sem myndi vinna tit-
ilinn loksins. Ég ætla nú ekki að
fara í neinar grafgötur með það
að ég bjóst alveg eins við því að
við myndum vinna um leið og ég
mætti. Við þurftum samt að bíða í
fjögur ár en það var svo sannarlega
biðarinnar virði. Það var magnað
andartak að taka við titlinum þá.
Mér þykir ofboðslega vænt um
KR og á margar góðar minningi-
ar þaðan. Ég á barn í KR og bý við
hliðina á vellinum en á meðan ég
er ennþá að spila og fyrir annað fé-
lag get ég lítið spáð í það. Maður
reynir að gera sitt besta fyrir hvert
félag hverju sinni," sagði Guð-
mundur sem skildi nú ekki við KR
í algjörri sátt.
„Samningurinn minn var út-
runninn við KR og þeir höfðu ekki
haft samband við mig. Ég tók því
sem skýrum skilaboðum um að
þeir vildu ekki hafa mig áfram. Það
hafði verið einhver kergja í samn-
ingsmálum þar tvö undanfarin ár
en ekkert sem er óeðlilegt þannig
séð. Það var engin dramatík eða
þannig.
Ég neita því ekkert að þegar
maður er búinn að eyða 10 tíma-
bilum með einhverju liði er svolít-
ið sárt að fara svona þegar manni
þykir vænt um félagið. Manni
finnst kannski að maður eigi betra
skilið en það er ekkert hægt að
hugsa þannig í fótbolta eða íþrótt-
um yfirhöfuð. Það er ekki hægt að
halda leikmönnum af einhverri
góðmennsku. Ég skil þá vel. Ég var
búinn að vera í miklum meiðslum
og þeir töldu þetta réttan kost á
sínum tíma."
Liðstjórinn sótti KR-búninga
til Everton-manna
KR atti kappi við Everton í ein-
um af stærstu Evrópuleikjum ís-
lensks liðs á seinni árum. KR tap-
aði með einu marki hér heima en
tveimur á útivelli. Guðmundur
vildi samt meina að sá leikur hafði
Athyglisverður leikmaður
í leik Pram og Þórs, A„ í riölakeppn-
inni, sem Þór sigraöi 4-2, bar mikiö á
einum Icikmanna Þórasarn, en j>aö cr
Guömundur Ðcnediktsson. Finginn
vufi leikur á aö hór cr mikiö cfni á
feröinni. Aðspuröur kvaðstGuÖmund-
ur hafa hyrjaö aö eporka bolta 2ja-3ja
ára og hafi hann vcriö að siöan.
1 leiknum gegn FVam geröi Guð- j
mundur2 markanna, BirkirGuðnason
og Jóltann Bcssason l hvor. Mdrk
Framara gerðu Heiðar Pálsson og
Kjartan Hallkclsson.
HH.
getað farið á allt annan veg.
„Everton-leikirnir voru einstak-
lega skemmtilegir leikir svo ekki
sé meira sagt. Everton var með
þrusulið á þessum árum og við
töpuðum bara með einu marki, 3-
2, á Laugardalsvellinum. En úti-
leikurinn sem endaði 3-1 hefði vel
getað farið á annan veg. Einar Þór
Daníelsson skoraði fyrst fyrir okk-
ur og það þagnaði allt á Goodison
Park. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks átti
ég svo skot sem fór í varnarmann
og stefndi í galtómt hornið því
Neville Southall sem var í markinu
hjá þeim var kominn í hitt hornið.
Southall var nú ekki alveg á sínu
léttasta skeiði þarna en á einhvern
ótrúlegan hátt náði hann að verja
boltann aftur fyrir. Ég er alveg viss á
því að hefðum við leitt 2-0 í hálfleik
hefði eitthvað getað gerst.
Það var mjög fyndið að eft-
ir leikinn skiptumst við nokkrir á
treyjum við Everton-mennina og
Lúlli eða Gassi sem voru liðstjórar
þarna hlupu inn í klefann hjá Ev-
erton til að sækja treyjurnar okkar
því við máttum ekki skipta við þá.
Það var einhver sparnaður í gangi.
Ég hefði viljað sjá svipinn á þessum
atvinnumönnum þegar treyjurn-
ar okkar voru bara hirtar til baka,"
sagði Guðmundur og hló.
David Moyes leist vel á
Gumma
Guðmundur fór utan aftur til
belgíska liðsins Gel og reyndi einn-
ig fyrir sér á Englandi þar sem
hann var nálægt því að fá samning.
Hann fór bæði til Preston þar sem
hann hitti fyrir stjóra sem þjálfar
nú í ensku úrvalsdeildinni. Guð-
mundur var þarna með spelku eft-
ir meiðsli sem hann hafði lent í og
sú spelka átti eftir að þvælast mikið
fyrir honum.
„Ég fór til Preston fyrir tilstilli
Ólafs Garðarssonar umboðsmanns
þar sem David Moyes, núverandi
stjóri Everton, var við stjórnvöl-
inn. Moyes er alveg hörkustjóri og
það var mjög gaman að æfa undir
Framhaldá
næstusíðu