Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2008, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2008
aSW _ .. . Í./^
FRETTIR
m *
Á+M
Forsetinn í Katar
Forseti (slands, Ólafur Ragnar
Grímsson, er staddur í Katar þar
sem hann hefur meðal annars
fundað með Amr Moussa, ffam-
kvæmdastjóra Arababandalags-
ins. Þá fundaði Ólafur Ragnar
einnig með emírnum af Katar,
Sheikh Hamad Bin Khalifa A1
Thani.
Á fundinum ræddu þjóð-
höfðingjarnir meðal annars um
að kanna möguleika á samstarfi
íslands og Katar í fjármálaþjón-
ustu, orkumálum og á sviði
erfðafræði og læknavísinda, að
því er fram kemur í tilkynningu
forsetaembættisins.
Brotum fækkar
Hegningarlagabrotum á
öllu landinu, fækkaði örlítið í
apríl sfðastliðnum miðað við
apríl á síðasta ári, samkvæmt
tölum frá ríkislögreglustjóra.
1 sfðasta mánuði voru skráð
1.074 hegningarlagabrot
miðað við 1.093 á sama tíma
ífyrra.
Skráðum fíkniefnabrotum
í apríl fækkaði einnig mið-
að við sama tíma í fyrra, en
139 brot á öllu landinu voru
skráð hjá ríkislögreglustjóra.
Á sama tíma f fyrra voru 178
fíkniefnabrot skráð á öllu
landinu.
Rúmeni í
farbanni
Þrír Rúmenar, tveir karlar
og ein kona, voru úrskurðaðir í
vikulangt gæsluvarðhald í síðustu
viku fyrir kortasvindl úr hrað-
bönkum. Einn þremenninganna
var dæmdur í farbann til 19. júní
en hinir eru frjálsir ferða sinna.
Málið er að sögn lögreglunn-
ar nokkuð ljóst. Upp komst um
þremenningana þegar hundr-
uð þúsunda höfðu verið tekin út
úr hraðbönkum hér á landi en á
þriðja hundrað korta voru í fór-
um Rúmenanna.
Brot allan
sólarhringlnn
Ríkislögreglustjóri hefur
birt mánaðarlega afbrotatöl-
fræði fyrir aprílmánuð. í töl-
unum kemur fram að meiri-
hluti líkamsárása, eða tæp
sextíu prósent, var framinn á
nóttunni. Á hinn bóginn eru
flest hraðakstursbrot framin
eftir hádegi en almenning-
ur virðist fremja eignaspjöll
nokkuð jafnt á öllum tímum
sólarhringsins, að því er ffam
kemur í skýrslunni.
Fréttir PV-
GREINILEG BIT-
FÖRÁBARNINU
VALGEIR ORN RAGNARSSON
bladamaður skrifar: valgeir&dv.is
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu-
maður á Selfossi, segir að mál lög-
reglustjórans á Selfossi gegn Mind-
augas Stankevicius muni fara sína
leið í dómskerfinu. Eins og DV
greindi frá í gær vann Mindaugas
áfangasigur í baráttu sinni fyrir því
að hundinum hans Sustriss verði
ekki lógað af lögreglunni á Selfossi,
en á mánudag felldi Hæstiréttur
íslands úr gildi úrskurð Héraðs-
dóms Suðurlands um að hundur-
inn skyldi aflífaður.
„Ég geri ráð fyrir því að fram-
haldið verði að Héraðsdómur Suð-
urlands kveði upp sinn úrskurð
í málinu. Hæstiréttur Islands er
æðsta dómstigið og það ber að
virða það," segir Ólafur Helgi.
Hann neitar því að það séu von-
brigði að mál, sem í upphafi var
talið einfallt, hafi farið svona langt
í dómskerfinu, en málskostnaður
beggja aðila vegna örlaga hunds-
ins hleypur á milljónum króna.
Mjög alvarleg kæra
Gunnar Helgi bendir á að mjög
skýrar reglur séu um hundahald og
hann telur þær reglur aðgengileg-
ar hverjum sem er. „Það
var lögð fram kæra,
um að hundurinn
hefði bitið barnið
og það er mjög al-
varlegt mál." í við-
tali við DV f gær
sagðiMindaugas
að hann hefði
aldrei heyrt um
það að sækja
þyrfti um
sérstakt leyfi
fyrir hunda-
haldi, jafn-
vel þótt
hann seg-
ist hafa I
undir höndum dýralæknabók um
hundahald.
„Það að fólk þekki ekki reglurn-
ar er á þess ábyrgð. Það má ekki
gleyma því að fólk ber borgaraleg-
ar og samfélagslegar skyldur, það á
að kynna sér reglurnar og þannig
er það í öllum samfélögum," segir
Ólafur Helgi spurður um málið.
Greinileg bitför
Mikið ber á milli frásagnar
Mindaugas af atburðunum og
þess sem fram kemur
í úrskurði Héraðs-
dóms Suðurlands.
Mindaugas seg-
ir hundinn ekki Á&
hafa glefsað í
umrætt barn,
heldur hafi
það einung-
is rispast
þegar það
var að leika
við hund-
inn. I úr-
skurðinum
segir hins
vegar: „Um-
rætt barn bar
þess merki
að hundur-
hefði
glefsað í það, greinileg bitför hafi
verið á hendi og gat verið á peysu
barnsins."
Eins og fram kom í DV í gær var
dómsúrskurður Héraðsdóms Suð-
urlands fenginn án þess að Mind-
augas ætti kost á að skýra sína hlið
á málinu og þótti það stríða gegn
ákvæði í mannréttindasáttmála
Evrópu. Móðir barnsins kom á lög-
reglustöðina og tilkynnti atburð-
inn og strax í framhaldi af því var
fenginn dómsúrskurður.
Gísli Örn Jónsson,
fulltrúi lögreglustjór-
ans á Selfossi,
sagði í samtali
við DV að skýr
ákvæði væru í
lögreglusam-
þykktinni
hvað beri
að gera
í þessu
máli.
„Þau eru eins skýr
og þau geta
verið."
Spurður
um
næstu
skref
máls-
ins, seg-
ist hann
ekki vera í
stöðu til að
velta vöng-
um yfir því.
inn
Mindaugas Stankevicius og
j hundurinn Sustriss Eigandinn
! neitar því alfarið að hundurinn
j hafi bitiö barn og berst áfram fyrir
\ lífi Sustriss fyrir dómstólum
Ólafur Helgi Kjartansson
„Það að fólk þekki ekki
reglurnar er á þess ábyrgð."
Sýslumaðurinn á Selfossi segir það mjög alvarlegt mál þegar hundaeigendur eru kærð-
WQfTna þess að hundar þeirra hafi bitið fólk. í dómsúrskurði Héraðsdóms Suðurlands
acgn au greinileg bitför séu á barni sem var að leika sér við hundinn en Mindaugas
þvertekur fyrir að hundurinn hafi bitið. Mikið ber á milli frásagnar Mindaugas og lög-
reglunnar. Baráttan um líf hundsins hefur kostað milljónir í dómskerfinu.
Síbrotamaður sýknaður af því að hafa stolið bílum af bílasölum:
Fjögurra daga reynsluakstur
Pétur Steindór Gunnarsson var
sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur
af því að hafa stolið tveimur bflum
sem hann skilaði ekki til baka á bfla-
sölu að loknum reynsluakstri. Einnig
var hann sýknaður af fjársvikum eft-
ir að hann lét sig hverfa án þess að
greiða reikning efdr að gista fjórar
nætur á gistiheimiíi.
Pétur játaði hins vegar að hafa
stolið tólf bjórum, kassarauðvíni,
rauðvínsflösku og vodkaflösku úr
Vínbúðinni, mat að verðmæti um
17 þúsund krónur úr Bónus, bens-
íni á N1 fýrir tæpar sjö þúsund krón-
ur og bensíni fyrir sömu upphæð á
Olís. Hann var dæmdur til tíu mán-
aða refsivistar. Pétur hefur áður feng-
ið þrjá dóma fyrir auðgunarbrot og
skjalafals.
Bifreiðirnar tvær fékk Pétur til
reynsluaksturs hjá sitt hvorri bflásöl-
unni síðasta haust, Ingvari Helgasyni
og B&L.
Við yfirheyrslur hj á lögreglu vegna
bflsins frá Ingvari Helgasyni sagðist
hann hafa fengið bflinn að láni hjá
sölumanni án þess að rætt hefði ver-
ið um skiladag. Hann hefði því litið
svo á að hann hefði bifreiðina eins
lengi og honum hentaði og sagðist
á þessum tíma hafa verið að leita sér
að bfl til að kaupa. Pétur sagði þetta
fyrirkomulag tíðkast í viðskiptum
með notaða bfla og að hann hefði oft
fengið bfla lánaða með þessum skil-
málum.
Framburður Péturs og starfs-
manns bflasölu B&L var einnig sam-
hljóma að því leytí að ekki var rætt um
tímalengd reynsluaksturs þegar Pétur
fékk bflinn þar að láni.
Starfsmenn beggja bflasala sögðu
að yfirleitt tíðkaðist að reynsluakstur
tæld um tuttugu mínútur. Þeir tóku þó
fr am að dæmi væru um að samið væri
um lengri afnot.
Lögreglan hafði uppi á báðum bfl-
unum fyrir bflasölurnar, öðrum eft-
ir að Pétur hafði ekið á honum í þrjá
daga, en hinum eftir fjóra daga.
Um greiðslu fyrir gistingu á Gisti-
heimilinu Borgartúni hafði Pétur
samið við starfmenn þar að hann
gætí ekki greitt fyrirffam og myndi
vinna upp í hluta af skuldinni. Hann
hafi hins vegar horfið af gistiheimil-
inu án þess að gera upp því hann var
handtekinn. Því var hann sýknaður
þar sem ekki var sýnt ffarn á að hann
hefði ætlað sér annað en að greiða
skuldina. erla&dv.is