Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2008, Page 7
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 22. MA( 2008 7
Ingibjörg S. Benediktsdóttir gagnrýnir barnaverndarnefnd
Reykjavíkur í harðorðu bréfi sem birtist í Morgunblaðinu í gær.
Hún segir sex ára son frænku sinnar hafa komið að móður sinni
látinni eftir of stóran skammt af fíkniefnum.
KOM AÐ LÍKI
MÓÐUR SINNAR
ERLA HLYNSDÓTTIR
bladamadur skrifor: erla&dv.is
%
„Viö fundum hass, hvítt duft,
!,f álpappír, plastpoka, 100
kveikjara, brenndar skeiðar,
skæri og hnífa."
„Ég get staðfest að hún var ekki svipt
forræði," segir Halldóra Gunnars-
dóttir, framkvæmdastjóri barna-
vemdar Reylqavíkur, um frænku
Ingibjargar S. Benediktsdóttur tann-
læknis sem skrifaði grein í Morgun-
blaðið í gær þar sem hún gagnrýndi
störf nefndarinnar harðlega. Þar seg-
ir hún að tveimur sonum frænku
sinnar, sex og tíu ára, hafi verið leyft
að fara til móður sinnar þrátt fyrir
ítrekaðar ábendingar aðstandenda
um að hún væri ekki í standi til þess.
í maíbyrjun kom yngri sonurinn að
móður sinni látinni eftir of stóran
skammt eiturlyfja.
f greininni segir Ingibjörg að
frænka hennar hafi verið svipt for-
ræði yfir drengjunum. Þessu mót-
mælir Halldóra. Að öðm leytí segist
hún ekki geta tjáð sig efnislega um
málið sjálft. „Til þess hef ég ekki leyfi.
Ég mun aldrei geta farið með fjöl-
miðlum yfir þetta einstaka mál, lið
fyrir lið. Það er þessi mikli trúnaður
sem við emm bundin sem gerir störf
okkar oft dáh'tíð flókin," segir hún en
ítrekar: „Bömin sjálf em auðvitað
númer eitt."
Nefndin ekki hafin
yfir gagnrýni
Ingibjörg segir í greininni að
frænka hennar hafi verið 26 ára þeg-
ar hún lést eftír langvarandi baráttu
við fíkniefrú og geðhvarfasýki. Þar tíl
stuttu áður höfðu drengimir dvalist
hjá afa sínum og ömmu úti á landi.
Að kröfu bamaverndarnefndar vom
þau hins vegar send til móður sinnar
miðvikudaginn 30. apríl. „Aðfaranótt
laugardags tekur hún svo inn stóran
skammt eiturlyfja og læknalyfja og
sofnar svefninum langa. Yngri son-
ur hennar og faðir hans koma svo að
henni látinni á laugardagskvöldið,"
segir Ingibjörg í greininni.
Henni sárna vinnubrögð barna-
vemdamefndarinnar en sá starfs-
maður sem átti að sinna óvæntum
heimsóknum á heimilið lét það gott
heita þegar móðirin svaraði ekki
síma. „Látíð fólk á auðvitað erfitt
með að taka síma, en þessir blessuðu
frændur mínir hefðu alveg eins getað
verið í tvo daga
yfir lfki móður
sinnar yfir þessa
helgi, nú eða bara útí í sandkassa
og það í boði barnaverndamefndar
Reykjavíkur" segir í grein hennar.
Halldóra harmar upplifun Ingi-
bjargar. „Þetta er sorglegt og afskap-
lega leiðinlegt þegar fólk upplif-
ir samskiptí við okkur með þessum
hætti. Við tökum gagnrýni og skoð-
um hana. Við emm ekki hafin yfir
gagnrýni hér, aldeilis ekki."
Fíkniefni um alla íbúð
Ingibjörg segir í greininni að hún
hafi farið á heimili frænku sinnar
stuttu eftir andlátið og ofboðið það
sem hún sá. „Við fundum hass, hvítt
duft, álpappír, plastpoka,100 kveikj-
ara, brenndar skeiðar, skæri og
hnífa. Við það eitt að lyfta upp sess-
unni á stofusófanum blöstu við um-
merki um gífurlega eiturlyfjaneyslu.
Enginn hefur verið í íbúðinni síðan
frænka mín lést." Henni þykir und-
arlegt að barnaverndamefndinni
þyki þetta boðlegt húsnæði fyrir
börn.
Barnaverndarstofa hefur eftír-
lit með öllum bamaverndarnefnd-
um sveitarfélaganna, þar með tal-
ið barnaverndamefnd Reykjavíkur.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barna-
vemdarstofu, segir að þeim hafi bor-
ist erindi vegna umrædds máls og
það verði tekið til skoðunar. „Þar af
leiðandi get ég ekki tjáð mig um það.
Þá væri ég að gera mig vanhæfan til
að fjalla um málið og mína stofmm
alla," segir hann. Honum þyldr mik-
ilvægt að almenningur beri traust til
bamaverndarnefnda og því nauð-
synlegt að kanna hvort eitthvað hafi
farið úrskeiðis, og þá hvers vegna,
Rannsakar málið Barnaverndarstofa
sinnir eftirlitshlutverki með barnavernd-
arnefnd Reykjavíkur. Bragi Guðbrands-
son segir mikilvægt að fólk treysti
barnaverndnarnefndum.
þannig að hægt sé að læra af því.
Halldóra segir örla á missldlningi í
grein Ingibjargar en þar gagnrýn-
ir hún að bömunum hafi ekki verið
skipaður löggæsluaðili við lát móður.
„Þess þarf ekki því feður fá sjálfkrafa
fprsjá bama sinna ef mæður deyja,
að því gefnu að þeir séu á lífi," segir
HaÚdóra.
Strax í gær hófst Halldóra handa
við að kynna sér málið til hlítar í sam-
starfi við þá sem að því hafa komið.
Hún segir að af og til komi upp mál
þar sem fólk er ósátt við vinnubrögð
bamavemdamefitdar og fari vinnan
nú í hefðbundið ferli þar sem farið er
yfir öll fyrirliggjandi gögn og rætt við
viðkomandi aðila og aðstandendur.
Barnavemdarstofa mun síðan rann-
saka málið.
Ekki náðist í Ingibjörgu við
vinnslu fréttarinnar.
Full búð
af sumarvörum
Stœröir
34-52
Suöuriandsbraut50 I lOSReykjavík I arini: 588 9925 I gsm: 6949925 I emllia@gala.is
Rakavarnar- og
byggingaplast
Klettháls: Opið
virka daga kl.8-18,
laugardaga 9-16
Suðurnes: Opið
virka daga kl.8-18,
laugardaga 9-14
Rakaþolplast, verð aðeins
7.995 kr. pr. 100m2 rúlla.
_____ Vottuð vara!
I MÚRBUÐIN
- Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi 7 Rvk - Fuglavik 18 Reykjanesbæ
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
HÚSEIGENDUR -
HÚSBYGGJENDUR
Viö getum bætt viö okkur verkefnum.
Bjóöum upp á alhliöa þjónustu í byggingariðnaði nýsmíöi
og viðhaldsverkefni. Má þar nefna uppslátt, uppsteypu
húsa og annara mannvirkja, endurnýjun þaka, viögeröir
utanhúss og klæðningar, endurnýjun glugga og huröa,
smíöi innveggja, uppsetning lofta, smíöi sólpalla og fl.
Gerum föst verðtilboð.
Áratuga reynsla meistara og fagmanna.
Sími: Gunnar Þór 891 6591 og 891 6590
Fyrirspurnir má einnig senda á
netfangið alhiida@yahoo.com