Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2008, Side 20
'20 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2008
Umræða DV
ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og ReynirTraustason, rt@dv.ts
FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Janus Sigurjónsson, janus@dv.is
FRÉTTASTJÓRI:
Brynjólfur Þór Gufimundsson, brynjolfur@dv.ls
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Ásmundur Helgason, asi@birtlngur.is
DREIFINGARSTJÓRI:
Jóhannes Bachmann, joib@birtingur.is
DV Á NETINU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ÁSKRIFTARSlMI:512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7040.
Umbrot: DV. Prentvlnnsla: Landsprent. Drelfing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta afisent efni blaösins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
011 vifitöl blafisins eru hljóðrituð.
SV\l)KOK\
■ Björn Bjarnason dómsmála-
ráðherra játar á heimasíðu sinni
að hafa farið með slúður þegar
hann sagði
að Stef-
án Hrafn
Magnús-
son, hrein-
dýrabóndi
í Isortoq
á Græn-
landi, væri
með 5.000
hreindýr en hefði aðeins leyfi
fyrir 1.800. Stefán Hrafn mun
hafa sent dómsmálaráðherran-
um ítarlega athugasemd vegna
kjaftasögunnar sem Björn leið-
rétti fúslega. í því samhengi má
rifja upp að Stefán Hrafn var á
íslandi íyrir margt löngu. Æð-
arbóndi við Breiðaíjörð vildi þá
vita hvað hann ætti mörg hrein-
dýr. Stefán horfði þungbúinn
á hann og spurði á móti hvað
hann ætti margar æðarkollur.
■ Ástæða þess að Bjöm
Bjarnason dómsmálaráðherra
bar kjaftasöguna á borð er sú
að hann var í skemmtiferð á
Grænlandi
á kosmað
íslenskra
skattborgara
og danska
hersins. Ekki
fer sögum
afþvíhvert
erindi hans
var þangað.
En ráðherrann er með húmor
fyrir sjálfum sér og í samhengi
við fr ásögnina upplýsir hann
að bústofn hans í Fljótshlíð telji
nú alls 10 gripi eftir að ein af ám
hans varð þrflemba.
■ Markaðurinn, fylgiblað
Fréttablaðsins, er langbesti
viðskiptamiðill landsins. Ljóst
er að tilkoma Björns Inga
Hrafnssonar hefur styrkt Mark-
aðinn enn ffekar. Sjá má í nýj-
asta Markaðnum að Björn Ingi
hefúr stofnað skuggabankaráð
til að leggja mat á vaxtastefnu
Seðlabankans ogtengd mál-
eftti. Athyglisvert er að fríblað-
ið Markaðurinn ber höfuð og
herðaryfirViðskiptablaðið, sem
hefur lagt sig eftir því að vera í
herferð fyrir ákveðin sjónarmið
fremur en sinna fréttum.
■ Magnús Þór Hafsteins-
son, varaformaður Frjálslynda
flokksins, er að ganga í gegnum
sína dýpstu pólitísku lægð. Mál-
flutningur hans vegna einstæðu
flóttakvennanna ff á írak hefur
farið illa í langflesta. Raddir eru
uppi um
að Guðjón
A. Kristj-
ánsson,
formaður
flokksins,
- verði að taka
af skarið
og koma
Magnúsi
úr forystusveitinni svo hann
skaði flokkinn ekki frekar en
orðið er. Flokkurinn er í hreinni
ímyndarkreppu og ásakanir um
grímulausan rasisma heyrast
víða.
LEIÐARI
MÞjóðin fyrirjítur hunda
JÓN TRAUSTI REYNISSON RITSTJÓRISKRIFAR. Ý Tungiimálid lýgur ekki, þjóóin.fyrirlitur htinán.
s
elfyssingurinn Mindaugas Stankevicius hef
ur lagt allt í sölurnar til að bjarga hundinum
I sínum, Sustriss, frá dauðadómi yfirvalda. Erfitt
er að segja hvort Sustriss sé réttdræpur hund
ur, en ein niðurstaða er komin í málið, og það er að Hér-
aðsdómur Suðurlands braut gegn Mannréttindasáttmála
Evrópu þegar hann úrskurðaði að hundinn skyldi drepa
Þetta er niðurstaða Hæstaréttar.
Það er í rauninni áfellisdómur yflr Héraðsdómi
Suðurlands að ætla sér að svipta hund lífl án
þess að gefa eiganda hans færi á að gæta
hagsmuna sinna. En það er algerlega i takt
við viðhorf íslendinga gagnvart hundum
að eyða ekki of miklum tíma í að drepa
hund. Líf hunds þykir ekki mik- ilsvert
hér á landi.
Hundar hafa verið útilok-
aðir úr fjölbýlishúsum, með
undantekningum. Ef hundi
er leyft að búa þar hefur hver
einn og einasti nágranni ör-
lög hans í hendi sér. Ekki þarf
nema eina kvörtun og hund-
inum er hent út á gaddinn. Fjölmörg dæmi
eru um að örlög hunds eru ráðin í einni sjón-
hendingu, þar sem neikvæður nágranni nýtir
sér alræðisvald sitt.
Á flestum útivistarsvæðum eru hundar bann-
aðir. Þeir eru leyfðir á Geirsnefl, en þar er
vart hundi út sigandi vegna hættuakst-
urs fólks í reynsluakstri. Hundar eru
í reynd bannaðir í Reykjavík og það
^ er undantekning að leyfa þeim að
lifa hér.
For dómar íslendinga gegn hund -
um ná langt aftur í aldir, þótt
hróður þeirra hafi náð hærra í
upphafi búsetu hér á landi, eins
og lesa má um í Brennu-Njáls
sögu þar sem hetjudáð Sáms er
tíunduð. Sagt er að einhver sé
„hundheimskur" eða „hundleið-
inlegur", eitthvað er „hundfúlt",
menn eiga að „hundskast" eitthvert
og svo framvegis. Tungumálið lýgur
ekki, þjóðin fyrirlítur hunda.
SAMSÆRI í SERBÍU
SVARTHÖFÐI
Evróvisjónkeppnin á hug Svart-
höfða þessa dagana. I rúma tvo
áratugi hefur þjóðin rembst
eins og rjúpan við staurinn tfl að
vinna þessa keppni sem á stundum
hefur verið sögð fýrir homma og kell-
ingar. Reyndin er þó sú að harðsvír-
uðustu karlrembur hafa hrifist með
á hverju ári og trúað því fram í
rauðan dauðann að ísland
væri á leið að hirða fyrsta
sætið. Vonbrigðin hafa síð-
an skollið á okkur árlega
er skilningsleysi Evrópu-
búa á íslenskum hágæð-
um hefur verið staðfest.
Þegar timburmenn Evróvi-
sjón hafa skollið á þjóðinni og fært
yfir hana svartnætti hins misnotaða
höfum við ákaft leitað skýringa á því
hvers vegna við fengum svo hrak-
smánarlega útreið. Svarið er nánast
borðleggjandi. Kommúnistaþjóð-
imar í austri mynda blokk til að
koma tónlistarþjóðum
á borð við fslendinga á
kné. Við erum sem
sagtfórnarlömb
samsæris sem
teygir sig inn í myrk-
ustu afkima Evrópu. Og
okkur líður strax betur.
Þunglyndið vfloir og
við höldum höfði í
þeirri fúllvissu að
við erum fómar-
lömb sem töpuð-
um vegna illra hvata
frumstæðra þjóða sem
hafa brenglaðan tónlistarsmekk. Öll
þau ár sem við höfum keppt hafa
nágrannaþjóðir okkar, sem
búa að sterkri tónlistarhefð,
gjaman gefið okkur fullt hús
eða að minnsta kosti hástig.
Það er fullkomlega eðlilegt.
Við búum í heimshluta há-
menningar. „Big brains think
alike," eins og Bretinn myndi
orða það.
að er ekki eins og við
höfum ekki gert allt
til þess að vinna. Við
höfum gengið svo langt að
senda skrípi sem móðgaði
alla í keppninni. Sflvía Nótt
var eins konar þjóðhetja á ís-
landi og allar lidar stúlkur vfldu vera
eins og hún, skiluru. Hún var send
til Grikklands til að sigra Evrópu.
Við glöddumst þegar mestöll
fjölmiðlaumræða snerist um
Silvíu og smám saman trúð-
um við því að fýrirbærið
myndi vinna. En það var
ekki að því að spyrja.
Samsærisöflin fóru
á kreik og Silvía var
slegin út úr undan-
keppninni. Einhverjir á
Islandi sáu að hún hélt ekki
almennilega lagi á sviðinu
og var eins og hálfgerður
bjáni. En þetta var samt
samsæri. Eftir keppn-
ina hættu stúlkubörnin
að segja „skilum" og
Silvíubúningamir hættu
að seljast. Lokatilraunin
við Evróstjömuna Silvíu var að Stuð-
maðurinn Jakob Frímann Magn-
ússon eyddi stórfé í að gera
hana heimsff æga. Það
floppaði og tjaldið
féfl í síðasta sirm
hjá Silvíu Nótt.
Kommamir í
austri höfðu drep-
ið íslenska þjóð-
hetju.
Fleiri dæmi em um hreinar
aftökur á íslenskum keppend-
um í Evróvisjón. Einn dáðasti
ástmögur þjóðarinnar, Sverrir Storm-
sker, hélt utan ásamt látúnsbarkan-
um Stefáni Hflmarssyni til að syngja
um Sókrates. Gott ef Sverrir uppgötv-
aði ekki Stefán um það leyti. Þeim
var stútað á írlandi og afleiðingin var
sú að nú syngja þessir snfllingar ekki
lengur saman heldur úthúða hvor
öðrum í fríblaði. Eitt af
örfáum skiptum
sem við höf-
um nálgast
fýrsta sætið
var þegar
við send-
um sæmflega
lagvissa leikkonu,
Selmu Björnsdóttur,
íkeppnina. Þá
munaði mjóu.
Þegar öllu
er á botn-
inn hvolft
höfum við reynt
næstum allt til að
vinna þessa keppni. Nýjasta útspil
okkar er Evróbandið með Friðrik
Ómar og Regínu Úsk í fararbroddi. Tfl
þess var stofnað með einhverri
veigamesm sönglagakeppni
á íslandi sem nú er um það
bil að setja fjárhag Rfldsút-
varpsins á hliðina. í kvöld
stíga þau á svið í Serbíu
og Svarthöfði mun þá vera
orðinn þrunginn af þjóð-
emistflfinningu með snakk
og bjór fýrir framan sig. Með ein-
hverri heppni munum við sleppa við
samsærið í austri og kannski ícom-
umst við áfram í aðalkeppnina. En
þar mun enn og aftur koma á daginn
að skilningsleysi þjóðanna í Austur-
Evrópu er algjört. Enn og aftur verður
traðkað á íslenskri menningu og við
send heim. Samsærið í Serbíu blasir
við eða eins og ágætur
stjómmálamað-
ur gæti orðað
það: Þar sem
tvær Aust-
ur-Evrópu-
þjóðirkoma
saman, þar
er samsæri.
Ogviðerum
fórnarlömb-
in.
DOMSTOLL GÖTUIVIVAR
KEMST ISLANI) Ul»l> IJK IJNDANKEPPNI EUKOVISION?
Já, jafnvel, ég held það sé bara kominn
tími á það. Ég hef bara trú á að það
gerist núna."
Helga Braga Gunnarsdóttir, 25 ára
heimavinnandi
„Já, ísland kemst áfram núna loksins,
skiptir engu hvort við vinnum, bara aö
við komumst upp úr undankeppninní."
Sara Margrét Hammer Ólafsdóttir,
T9 ára afgreiðsludama
„Já, það held ég, mér finnst þetta bara
mjög skemmtilegt lag, skemmtilegt
fólk og þeim gengur bara vel."
Alma Gylfadóttir, 34 ára
leikskólaleiðbeinandi
„Nei, við getum það ekki. við eigum
ekki stað til að halda keppnina eða
fjarmagnið til þess."
Eyþór Helgason, 16 ára
atvinnulaus