Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 12. JÚNf 2008 Fréttir DV Rjúpur í sókn Fækkunarskeið rjúpunnar hér á landi er nú afstaðið en það hefur varað í tvö ár. Þetta kem- ur nokkuð á óvart og er ekki í samræmi við hegðun stofnsins á undanförnum áratugum. Stofn- inn sveiflast þó mjög af náttúru- legum orsökum. Rjúpnatalning Náttúrufræðistofnunar Islands í vor sýnir að rjúpum á austan- verðu landinu hefur fjölgað um þrjátíu til sjötíu prósent. Stofninn stóð hins vegar r' stað á Vestur- landi. Rjúpnaveiðimenn þurfa þó að bíða þar til í ágúst þegar mat á veiðiþoli stofnsins liggur fyrir. Bretar kaupa í Kaupþingi Bresk vellauðug fjölskylda hefur nú keypt rúmlega tveggja prósenta hlut í Kaupþingi fyrir um 14,5 milljarða króna. Gertn- er-fjölskyldan svokallaða er um- svifamikil í olíugeiranum og far- síma- og námuviðskiptum. Hún hefur aðallega stundað viðskipti í Suður-Ameríku, Bandaríkjunum og Evrópu. f Viðskiptablaðinu er haft eftir Sigurði Einarssyni, stjórnarformanni Kaupþings, að þessi kaup sýni að menn hafi trú á bankanum. Beðið eftir fíkniefnum Hollendingurinn sem tek- inn var í Leifsstöð í lok maí með kókaín innvortis er enn með eitthvað af efnum inn í sér. Eyj- ólfur Kristjánsson, fulltrúi hjá lögreglunni á Suðurnesjum, segir að maðurinn hafi farið í röntgen í gær og þá hafi komið í ljós að eitthvað af efnum væri enn í iðr- um mannsins. Nú þegar hefur maðurinn skilað frá sér um 300 grömmum af kókaíni en hann er undir stöð- ugu eftirliti lækna. Hann hefur skilað frá sér um 40 smokkum sem innihalda um sjö grömm af efnum hver. Gæsluvarðhaldsúr- skurður yfir manninum rennur út á föstudaginn og segir Eyjólfur að líklega verði farið frarn á fram- lengingu á úrskurðinum fari svo að efnin verði enn í manninum. Fjórtán þúsund í Reykjanesbæ Reykjanesbær fagnaði fjór- tán ára afmæli í gær. Á sama tíma er íbúafjöldi orðinn fjór- tán þúsund manns. Dagný Gísladóttir, kynningarstjóri Reykjanesbæjar, segir að íbú- um í Reykjanesbæ hafi fjölgað um hartnær þrjátíu prósent á síðastliðnum fjórum árum. Reykjanesbær varð til við sameiningu sveitarfélag- anna Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna vorið 1994. Byggð á Reykjanesi hefur verið í nokk- urri sókn þrátt fýrir minnk- andi áherslu á sjávarútveg og brotthvarf bandaríska hersins. Eggert Haukdal, bændahöfðingi og fyrrverandi þingmaður, stendur í striði við bróður- dóttur sína, Benediktu Haukdal, um Bergþórshvol í Rangárþingi eystra. Eggert seldi frænkunni jörð sína en vill svo draga samninginn til baka. Margir dómar hafa verið kveðnir upp á siðastliðnum tveimur árum og segir Eggert að þetta mál sé ekki búið. Egg- ert var dæmdur til að rýma hluta hússins. Sýslumaður kvað upp úrskurð en Eggert kærði enn. H0FÐINGJA BERGLIND BJARNADÓTTIR bladamadur skrifar berglindbiyidv.is „Mannúð er ekki til í þjóðfélaginu hjá valdamönnum," segir Eggert Haukdal, bændahöfðingi og fyrr- verandi þingmaður Sjálfstæðis- flokksins. Eggert, sem er 75 ára, hef- ur staðið í stríði við bróðurdóttur sína, Benediktu Haukdal, og eigin- mann hennar, Runólf K. Maack, um jörðina og íbúðarhúsið á Bergþórs- hvoli í Rangárþingi eystra þar sem Eggert býr ásamt bróðurdótturinni. Stríð þeirra hófst árið 2006 þeg- ar Eggert seldi þeim jörð sína og húsakost en vildi síðan draga samninginn til baka. „Ég vildi draga samninginn til baka, því þau vantar mann- kærleika." Miklar erjur hefur ver- ið á milli þeirra eftir að hjónin keyptu jörð- ina af hon- um. Eggert hefur ver- ið þekktur fyrir það í gegnum árin að láta vel í ljós ef hann hefur verið ósáttur og ekki lætur hann undan í þessu máli. Jörðin of ódýr Samkvæmt kaupsamningi árið 2006 keyptu Benedikta og eigin- maður hennar jörðina af Eggerti Haukdal ásamt öllum mannvirkj- um, girðingum, vélum og bústofni. Kaupverð jarðarinnar var 54 millj- ónir króna. Samkvæmt samningn- um segir að seljandinn megi búa í íbúðarhúsinu, endurgjaldslaust, eins lengi og hann vill. Eggert Hauk- dal reyndi að rifta kaupunum og vildi að jörðin yrði verðlögð á rúm- lega 101 milljón króna. Benedikta og eiginmaður hennar fluttu inn í nóvember 2006 í þann hluta hússins sem þá var íbúð- „Það hefur allt ver- ið svikið og þetta mál er ekki búið" hæfur. f kaupsamningi kom fram að Eggert ætti að sjá um að íbúðin yrði íbúðarhæf en lítið hefur gerst í þeim málum. Eggert Haukdal vildi að kaupsamningurinn yrði gerður ógildur. Eggert krafðist þess að hjón- unum yrði gert að flytja úr íbúðar- húsinu. Hann tapaði því máli. Eggert skyldi borinn út Sýslumaðurinn í Rangárþingi eystra kvað upp úrskurð um að Egg- ert yrði borinn út. Mikið ósætti hef- ur verið á milli Eggerts og hjónanna og því var talið að þetta væri eina lausnin til að reyna að koma á sátt- um á milli þeirra. Eggert kærði þann úrskurð héraðsdóms að Runólfi og Benediktu var heimilað að láta bera hann út úr húsnæðinu. Málinu ar- Hæstiréttur Islands Mál bændahöfðingjans og bróður- dóttur hans rataði inn í Hæstarétt Útburðarstríð Eggert Haukdal telur að menn með völd í landinu hafi ekki mannúð. Hann sættir sig ekki við að verða borinn út. var vísað frá. Þá kærði Eggert sýslu- manninn vegna úrskurðar hans. Sagan ekki búin Nú eru liðin rúm tvö ár frá því að erjur frændsystkinanna á Bergþórs- hvoli hófust. Benedikta Haukdal vildi ekki tjá sig um málið en frændi hennar er ómyrkur í máli. „Það hef- ur allt verið svikið og þetta mál er ekki búið," segir Eggert sem bíð- ur eftir nýjum dómi og ákveður þá hvað verði gert í framhaldinu. Eggert var á meðal þekktustu þingmanna þjóðarinnar og þótti harður í horn að taka. Hann átti í áralöngum deilum við nágranna sinn, sóknarprestinn á Berg- þórshvoli, og rötuðu þau mál fyrir dómstóla. Nýsprautaðri bíldruslu var stolið á Blönduósi við kátínu eiganda hennar: Verðlausum bíl stolið í kreppunni „Bíllinn er einskis virði. Við hlóg- um bara þegar við sáum að hon- um hafði verið stolið," segir Kristján Blöndal, annar eigandi tölvufyrir- tækisins Kjalfells á Blönduósi, sem varð fyrir bílþjófnaði á þriðjudags- morguninn. Bíllinn er fyrirtækisbfll af gerðinni Opel Combo. Lögreglunni á Blöndu- ósi var tilkynnt um hvarf bflsins um níuleytið á þriðjudagsmorguninn. Stuldurinn átti sér stað um nóttina eða morguninn áður en starfsmenn- irnir mættu til vinnu, þar sem starfs- menn Kjalfells segjast hafa vitað af bflnum þegar þeir fóru heim úr vinn- unni og hafði bfllinn verið á plani fyrir utan búðina kvöldið áður. Kristján segir að sér hafi kom- ið á óvart að þessum bfl hafi verið stolið. Engin verðmæti voru í bflnum og segir Kristján bflinn vera í mesta lagi hundrað króna virði, eða jafnvel minna. „Bfllinn leit mjög vel út, þar sem það var nýbúið að sprauta hann en það var annars hrein martröð að keyra hann," segir Kristján. Kristján hafði lesið í Morgunblaðinu um öku- mann sem hefði verið stoppaður á Vesturlandsvegi þar sem ökumaður mældist á 144 kflómetra hraða á bfl sem hann hafði tekið ófrjálsri hendi og vonaði Kristján að þetta væri sami bfllinn. Komið hefur í ljós að um aðra bifreið var að ræða í ofsaakstr- inum. Samkvæmt lögreglu hefur bfll- inn ekki komið í leitirnar ennþá. Þrátt fyrir tilfinnanlega galla bif- reiðarinnar vonast Kristján til að endurheimta hana sem fyrst. Því eru allar ábendingar vel þegnar. olivalur&dv.is Flagð undir fögru skinni Ekkierallt sem sýnist því bíllinn er„martröð“ þtátt fyrir að vera nýsprautaður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.