Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Side 4
Fréttir DV 4 FIMMTUDAGUR 12.JÚNI2008 fc-r Skötur vilja neyðarsíma Hjólabrettaskötur á Akur- eyri hafa óskað eftir því að fá neyðarsíma við hjólabrettasvæði sunnan Sólborgar á Akureyri. Erindi þess eðlis var lagt fyrir framkvæmdaráð Akureyrarbæjar í vikunni en hafði áður legið inni á borði hjá bæjarráði. Erindinu var þaðan vísað til framkvæmda- ráðs sem ákvað að ffesta málinu til næsta fundar. Það var Oddur Helgi Halldórsson sem bar ffam erindið en um er að ræða neyð- arúrræði slasist einhver hjóla- brettaskatan á svæðinu. ASÍ óttast atvinnuleysi Miðstjórn Alþýðusambands tslands hefur lýst yfir þungum áhyggjum yfir stöðu efnahags- mála á fslandi. í tilkynningu segir að verðbólga sé mikil, vextir háir og fram undan sé samdráttur í hagkerfinu, rýrn- andi kaupmáttur og aukið at- vinnuleysi. Þar segir einnig að þetta sé alvarlegasta staða sem þeir hafi séð ifam á í langan tíma. Miðstjórnin telur mikil- vægt að opinberir aðilar auki mannaflsfrekar framvæmdir og reyni að afstýra þeirri innlendu lausafjárkreppu sem við búum við. Þá telur hún einnig mikil- vægt að Ibúðalánasjóður verði nýttur til að aðstoða skuldsett heimili, sem stefni í þrot, með því að veita greiðsluerfiðleika- lán. Fyrsta Gíslaskiltið áVestfjörðum Fyrsta söguskiltið sem byggt er á Gísla sögu Súrssonar verð- ur afhjúpað klukkan þrjú í dag í Dýrafirði. Á skiltinu er fjallað um þann fræga atburð er Vésteinn mælti: „Nú falla öll vötn til Dýra- fjarðar." Alls stendur til að setja upp ellefu skilti víða á Vestfjörð- um byggð á hinni ástsælu íslend- ingasögu. Verkefnið hefur verið í undirbúningi í nokkur ár og er að sögn ædað að styrkja stöðu Vest- fjarða á sviði menningartengdr- ar ferðaþjónustu. Vefritið bb.is greinir frá þessu. Talstöðin léleg Léleg talstöð kajakræðarans Marcus Demuths var ástæða þess að hann hafði ekki látið vita af ferðum sínum líkt og hann hafði boðað. Því leituðu Landhelgisgæslan og Slysa- varnafélagið Landsbjörg að honum í gær. Marcus lagði af stað frá Geldinganesi á laugar- dag og ædaði að sigla hringinn í kringum ísland. Undir kvöld í gær fann lögreglan á Ólafsvík manninn heilan á húfi. Fjorir menn voru dæmdir 1 fangelsi fyrir aö smygla rétt rúmum fimm kílóum af amfet- amíni og kókaíni til landsins með hraðpósti á síðasta ári. Um er að ræða handrukkarann Annþór Karlsson en ásamt honum voru tveir bræður og æskuvinur þeirra dæmdir. DOPSMYGL VIÐ MÖMMU SÍNA VALUR GRETTISSON blaðamaður skrifar: valurdpdv.is Handrukkarinnn Annþór Karlsson var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að hafa smyglað rétt rúmum fimm kílóum af amfetamíni og kókaíni með hraðsendingu í nóv- ember á síðasta ári. Þá var Tómas Kristjánsson dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi en hann starfaði þá hjá UPS-hraðsendingaþjónust- unni. Bræðurnir Jóhannes Páll, sem starfaði hjá fjármálaráðuneyt- inu, og Ari Gunnarssynirvoru báð- ir dæmdir í eins og hálfs árs fang- elsi. Móðir bræðranna sagði við vitnaleiðslur í héraðs- dómi að Jóhannes Páll hafi sagt henni að æskuvinur þeirra Tómas hafi nefnt við hann góða leið til að flytja fíkniefnin til landsins. Þrjár milljónir Það var í nóv- ember á síðasta ári sem tollgæslan á Keflavíkurflugvelli lagði hald á fíkniefnin en reynt var að smygla þeim til landsins með hraðsendingaþjónustunni UPS. Aftur á móti voru bræðurnirjóhann- es Páll og Ari ásamt Tómasi ekki hand- telcnir fyrr en í janúar næsta ár. Þeir voru hnepptír í gæsluvarðhald í kjöl- farið. Að lokum játuðu bræðurn- ir og sögðu að Annþór hefði fjármagnað innflutning efnanna. Bræðurnir og Tómas áttu að fá þrjár milljónir samanlagt fýr- ir innflutninginn. „Hann drekkur ekki einu sinni og mig grunaði ekkert." Húsleit í fjármálaráðuneytinu Jóhannes Páll starfaði hjá fjár- málaráðuneytinu en hann er sak- felldur fyrir að hafa lagt á ráðin um innflutninginn ásamt Tómasi og Ara. Þá kemur ffam í dómn- um að hann hafi miðl- að upplýsingum um hvernig skyldi haga sendingu fflcni- efnanna þannig að þau kæmust á leiðarenda án afskipta yfir- valda. Sjálfur starfaði Jó- hannes ekki á því sviði sem fór með toll- gæslu. „Hann drekkur ekki einu sinni og mig grunaði ekk- ert,“ sagði kærastan hans í Jóhannes Páll Gunnarsson Vann í fjármálaráðuneytinu og nefndi við móður sína að félagi hans kynni góða leið til fíkniefnainnflutnings. Ari Gunnarsson Vardæmdurásamt bróður sínum í eins og hálfs árs fangelsi. samtali við DV fýrr í vetur. Aftur á móti viðraði hann við móður sína að Tómas, sem er æskuvinur þeirra bræðra, kynni ráð til þess að flytja inn fíkniefhi. Einlægur við mömmu Þegar móðir þeirra bræðra var spurð í héraðsdómi hvers vegna Jó- hannes hafi upplýst hana um þetta kunni hún engar aðrar skýringar á því nema ef vera kynni einlægni. Þeir bræður voru aftur á móti samvinnufúsir við lögregluna á Suðurnesjum sem fór með rann- sókn málsins. Þeir játuðu brot sín og sögðu rannsóknarlögreglu- menn að aðstoð þeirra hafi skipt sköpum fýrir rannsókn málsins. Úr varð að þeir fengu báðir eitt og hálft ár í fangelsi en frá því dregst gæsluvarðhald. Annþórá Hraunið Hins vegar var Annþór dæmdur í fjögurra ára fangelsi fýrir brot sín en hann hefur frá árinu 1993 hlotið tíu refsidóma. Þar á meðal fyrir hrotta- lega handrukkun þegar hann mis- þyrmdi rúmliggjandi manni með vopni. Þegar hann var handtekinn vegna brotanna var Annþór á skil- orði vegna líkamsárásarinnar auk fíkniefiiabrota. Þess vegna er brotið núna refsiþyngjandi sem þýðir að hann fær þyngri dóm en ella. Þá var Tómas Kristjánsson dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi en í dómi seg- ir að Tómas og Annþór eigi engar málsbæmr vegna málsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.