Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 12. JÚN( 2008
Fréttir DV
^ |
Astand stúlkunnar
Ásgeir Þór Davíðsson vann 9 milljónir út á afmælisdaga fjölskyldunnar:
Opnar sportbar fyrir lottóvinning
Ásgeir Þór Davíðsson, sem rekur
strippstaðinn Goldfinger, vann tæp-
ar 9 milljónir í Víkingalottó á dögun-
um. „Ég frétti af vinningnum í bréfi,"
segir Ásgeir. „Ég hefði fengið tauga-
áfall ef ég hefði horft á þetta sjálfur
í sjónvarpinu." Ekki fannst honum
mikið áfall að fá bréfið í pósti þar sem
hann var í raun að bíða eftir því.
Hann hafði verið búinn að at-
huga hvaða tölur komu upp
og því var hann búinn
að undirbúa sig þegar
bréfið kom í hús.
. Ásgeir hefur not-
að sömu tölurnar
í fimmtán ár, þó
með breytingum
vegna fjölgunar
í fjölskyldunni.
„Með íjölgun
barnabarnanna fæ ég mér fleiri miða.
Tölurnar eru afmælisdagar fjölskyld-
unnar. Þetta verða vonandi fleiri mið-
ar eftir nokkur ár," segir Ásgeir. Ekki
er þetta fyrsti vinning-
urinn sem hann vinnur með þessum
tölum þó þetta sé hæsta upphæðin.
Ásgeir telur sjálfan sig ekki beint fíkil
í lottó, heldur hefur hann sínar tölur
á kerfismiðum en hefur gaman af því
að taka þátt í hinum ýmsu leikjum,
hvortsemer lottó eða happ-
drætti. Vinningsfénu verður varið í
nýjan sportbar sem hann er að opna
á Grensásvegi, þar sem strippstað-
urinn Bóhem var áður. Á sportbarn-
um verður hægt að spila tölvuleiki,
horfa á sjónvarp og hafa það huggu-
legt. „Hægt verður að spila golf með
bjór í hendinni án þess að skokka átj-
án holur," segir Ásgeir og hlær.
V
Fyrir 9 milljónir Er hægt að
•- kaupa 150 playstation 3 tölvur.
w* *
DV greindi frá heimasíðunni Anon-
IB.com í fyrradag, en íslenskir net-
níðingar hafa útbúið sér svæði inni
á vefnum til að skiptast á myndum.
Stór hluti myndanna flokkast und-
ir klámefni, þar á meðal myndir af
ólögráða stúlkum án klæða. Á einni
þeirra má sjá 14 ára stúlku und-
ir áhrifum áfengis bera að ofan.
í samtali við DV sagði stúlkan að
sér þætti þetta alveg ömurlegt. Eðli
málsins samkvæmt kýs stúlkan að
koma ekki fram undir nafni.
Nýttu sér ástand stúlkunnar
Stúlkan, sem nú er á mennta-
skólaaldri, segist hafa verið stödd
í gleðskap þegar myndin var tekin.
Hún hafi verið mjög undir áhrif-
um áfengis. „Það voru einhverjir
strákar sem ætluðu að taka mynd
af mér. Ég neitaði og vildi ekki leyfa
„Myndin fer á flakk
og það er svo erfitt að
taka hana úr umferð"
segir móðirin.
þeim það," segir stúlkan. Hún seg-
ir drengina síðan hafa lokað hana
inni í herbergi og neitað að hleypa
henni út. Þeir hafi þannig nýtt sér
ástand hennar til að fá hana til að
bera sig að ofan.
Myndavélin sem strákarnir not-
uðu var í eigu eldri stúlkna sem
settu síðan myndina á heimasíðu
sína til að niðurlægja stúlkuna.
Áður en hún vissi af var myndin
komin út um allt og hún fékk ekki
rönd við reist.
Aðspurð segist stúlkan vera afar
reið yfir þessu. „Það hafa allir séð
þetta. Þetta erþvíiíkt vandræðalegt.
Svo var verið að tala um einhverja
síðu í fréttunum og myndin mín
kom upp. Allir sáu það. Þetta er al-
veg ömurlegt."
Vonlaust að taka
myndirnar úr umferð
Móðir stúlkunnar segir hegðun
netníðinganna sorglega. Hún bæt-
ir við að erfiðast sé hversu úrræðin
eru fá. „Myndin fer á flakk og það er
svo erfitt að taka hana úr umferð,“
segir móðirin. „Það er næstum því
vonlaust. Ef maður fer að gera eitt-
hvað mál úr því myndast meiri at-
hygli á myndinni heldur en ella."
Móðirin segir fjölskylduna hafa
íhugað að grípa til aðgerða þeg-
ar myndin birtist fyrst en ákveðið
að gera það ekki til að vekja ekki
óþarfa athygli á myndinni. Þau
hafi vonað að myndin gleymdist
og hyrfi. Það hafi ekki gerst. „Þetta
virðist lifa algjörlega sjálfstæðu
lífi. Þessar myndir flakka greini-
lega á milli og lifa jafnvel í mörg
ár." Myndin hefur nú birst á mynd-
rásinni AnonIB.com á vefsvæði ís-
lenskra netníðinga.
Aðspurð hvort hvarflað hafi að
móðurinni að leita réttar dóttur
sinnar gagnvart þeim einstakling-
um sem halda úti síðum sem þess-
ari útilokar hún það ekki. „Maður
þarf að skoða það betur. Þetta má
ekki fylgja henni alla ævi."
Móðirin segir stúlkuna sterkan
einstakling og hún beri sig vel, þrátt
fyrir að líða illa yfir myndinni.
Miklar þjáningar
á bak við myndirnar
Barnaheill rekur ábendingarlínu
vegna óviðurkvæmilegra mynda af
börnum á netinu. Petrína Ásgeirs-
dóttir, framkvæmdastjóri Barna-
heilla, segir samtökin fá mikinn
fjölda ábendinga af slíku tagi, um
53 á mánuði að meðaltali. Þar af
reynist um þriðjungur ábending-
anna varða við lög. Hún segir sam-
tökin berjast gegn dreifingu mynda
sem sýna börn á óviðurkvæmileg-
an hátt. „Á bak við hverja mynd
eru ómælanlegar þjáningar," segir
Petrína.
Spurð út í mál þar sem stúlk-
ur undir lögaldri eru tældar til
að svipta sig klæðum fyrir fram-
an myndavélar segir Petrína það
klárt dæmi um ákveðið ofbeldi.
„Þetta er náttúrlega bara ofbeldi á
þessum stúlkum. Þær eru fengnar
til að gera hluti sem þær vilja ekki
gera og svo er myndunum af þeim
dreift. Þetta er mjög erfitt fyrir þau
börn og þær stúlkur sem lenda í
þessu. Þetta er einn liður í ofbeld-
inu og þýðir alltaf miklar þjáningar
fyrir viðkomandi."
Lítill hluti mála fær meðferð
Ólöf Ásta Farestveit, forstöðu-
maður Barnahúss, segist ekki
hafa tekið á móti mörgum stúlk-
um vegna svona mála. „Ég held að
málin séu mörg, en þau rata ekki til
okkar vegna þess að þessar stelp-
ur taka ábyrgð á gjörðum sínum og
telja að þetta sé þeim að kenna. Þar
af leiðandi vilja þær ekki tjá sig um
þetta," segir Ólöf.
Lögregla segir enga rannsókn á
vefsvæði íslensku netníðinganna
á heimasíðunni AnonIB.com hafa
farið fram.
Slg
slenskir netníðingar, sem
inn AnonIB.com til að skiptast á myndum af stúlkum n
14 ára aldur án klæða. Ein stúlkan var lokkuð til að bera
þegar hún var mjög undir áhrifum áfengis í gleðskap. Móðirin
segir hegðun netníðinganna sorglega. Klárt dæmi um ofbeldi
segir framkvæmdastjóri Barnaheilla.
psgí, rœsSjiS
Annarlegt ástand Framkvæmdastjóri Barna-
heilla segir það ofbeldi að dreifa nektarmynd-
um af drukknum unglingsstúlkum. Myndin
tengist ekki efni fréttarinnar.