Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 12.JÚNÍ 2008 Fréttir DV Hollendingur var handtekinn á þriðjudag með metmagn af hassi. Hann reyndi að smygla allt að tvö hundruð kílóum af efnunum til landsins með Norrænu. Lögreglan verst allra frétta en Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn á Austurlandi, sagði efnin hafa fundist við hefðbundna leit. Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar telur Jórunni Frímannsdóttur ekki vanhæfa: Innri endurskoðun Reykjavík- urborgar hefur farið yfir tengsl Jór- unnar Frímannsdóttur, formanns velferðarráðs, við Heilsuverndar- stöðina og Alhjúkrun og komist að þeirri niðurstöðu að hún eigi engin óeðlileg hagsmunatengsl við fyrir- tækin. f greinargerð innri endurskoðun- ar Reykjavíkurborgar kemur fram að Jórunn hafi selt Liðsinni ehf. vefmið- ilinn doktor.is árið 2006. Liðsinni ehf. var síðar keypt af Heilsuvernd- arstöðinni. Tvö ár eru liðin frá því að viðskiptin áttu sér stað og eru fjár- hagsleg tengsl því engin í dag. Skoð- un á hlutafjárþátttöku leiddi í ljós engin tengsl við fyrirtækin. Niður- staða innri endurskoðunar er því að Jórunn sé í engu vanhæf til að taka þátt í ákvörðunartöku eða umfjöll- un um málefni sem snerta Heilsu- verndarstöðina og Alhjúkrun. Innri endurskoðun var falið að fara yfir afgreiðslu velferðarráðs frá 9. apríl á tillögu um að gengið yrði til samninga við Heilsuverndarstöð- ina/Alhjúkrun um rekstur búsetuúr- ræðis fyrir fyrrverandi fíkla þrátt fyr- ir að Heilsuverndarstöðin hafi ekki átt lægsta tilboðið í reksturinn. Tíu milljónum króna munaði á tilboði Heilsuverndarstöðvarinnar og til- boði SÁA sem var lægst. Innri endurskoðun tekur undir þau sjónarmið að ávallt skuli gæta fjárhagslegrar hagkvæmni við inn- kaup og val á samstarfsaðilum. Því var óskað eftir rökstuðningi sviðs- stjóra velferðarsviðs á því að mælt var með öðru tilboði en lægstbjóð- anda. í svari velferðarsviðs segir að sú þekking sem sérstaklega var ósk- að eftir í auglýsingu eftir samstarfs- aðilum um rekstur búsetuúrræð- is með félagslegum stuðningi væri mest hjá Heilsuverndarstöðinni og Alhjúkrun. Var matið meðal annars byggt á viðtölum við þá sem sendu inn umsókn um samstarf. Að mati innri endurskoðunar lágu málefna- legar forsendur að baki ákvörðun velferðarsviðs. Þorleifur Gunnlaugsson, borgar- fulltrúi vinstri grænna, hyggst fara gaumgæfllega yfir greinargerðina og senda frá sér yfirlýsingu um hana í dag. Þorleifur gagnrýnir að tilboðinu hafi verið tekið. Hann bendir á að fjármagn sé ekki fyrir hendi ( fjár- hagsáætlun Reykjavíkurborgar fyr- ir verkefninu og að færa þurfi fé úr þremur öðrum liðum undir það. „Það mætti halda að það hefði verið búið að ákveða að semja við Heilsu- verndarstöðina áður en verkefnið var boðið út og farið yfir hverjir væru hæfir til að taka það að sér. Eg tel að það hljóti að vera betra að borg- in geri samning við almannasam- tök heldur en einkaaðila um rekstur heimilisins. Auk þess tel ég betra ef borgin keypti hús undir starfsemina heldur en að það verði leigt," segir Þorleifur. roberthb@dv.is Málefnalegarforsendur Að mati innri endurskoðunar liggja málefnalegar forsendur að baki ákvörðun velferðarráðs. „Þetta var bara hefð- bundin tollafgreiðsla" vigtaði efnin í gær og því ekki ljóst nákvæmlega hversu mikið magn um er að ræða. Samkvæmt heim- ildum blaðsins var klúðurslega staðið að innflutningnum. Talið er að götuvirði efnisins sé mest nær milljarði. Stórfellt smygl „Það hefur öðru eins magni ver- ið smyglað til landsins," fullyrti fyrr- verandi hasssmyglarinn en hann vildi ekki koma fram undir nafni en hann stundar löglegan rekstur í dag. Hann sagði smyglaðferðina yfir- leitt þá að Hollendingur eða erlend- ur maður komi með efnin til lands- ins. Séu þau falin í húsbíl eru þau yfirleitt í loftinu á honum. Astæð- an er sú að þá eigi fíkniefnahund- ar erfiðara með að finna lyktina. Þá segir hann að smyglarinn noti efni sem eru borin á dekk nokkurra bíla til þess að afvegaleiða hundana. Komist smyglarinn í gegnum toll- inn er ferðaplanið yfirleitt Akureyri eða Mývamssveit þar sem bifreiðin er síðan affermd. Þegar hann var spurður hvort hassfundurinn væri ekki reiðarslag fyrir fíkniefnaheim- inn sagði hann svo ekki vera. Nóg sé til af kannabis á fslandi. Það er ræktað um allt land. Keyptu efnin ódýrt Samkvæmt heimasíðu SÁA Ier götuverð á hassi hér á landi 2.110 krónur. Það þýðir að . andvirðiefnannaerfráþrjú hundruð upp í rúmlega *. fjögur hundruð milljón- ■ ir. Aftur á móti er það al- W kunnugt innan fíkniefna- W heimsins að drýgja efnin P en kunnugir segja að hægt sé að tvöfalda upphæðina þannig að hún sé nær millj- arði í götusölu. Þegar rætt var við menn sem þekkja til ffkniefnasölu vilja þeir meina að smyglarinn hafi að öllum lík- indum keypt efnin miklu ódýrara í Hollandi. Þegar þeir voru spurðir hversu há sú upphæð væri giskuðu þeir á að smyglarinn hefði borg- að frá tólf upp í tuttugu og fjórar milljónir. Þegar spurt var hversu lengi fíkniefnasalar væru að selja slíkt magn á götum borgarinnar sögðu þeir það taka örstuttan tíma. Hálft ár giskaði einn á og benti á að markaður fyrir hass á Islandi sé gríðarlega stór. Ólíklegur höfuðpaur Flesmm ber saman um að Hollendingur- inn sem var handtek- ÍUBBB innséekkihöfuðpaur- j [j fj fl f} n fl fl F1Í1 B Q U U U ólíklegt að erlendir menn komi með svona mikið magn til lands- ins án þess að þekkja vel til fíkni- efnamarkaðarins. Það er líklegt að um sé að ræða íslenska einstakl- inga sem hafa fjármagnað kaup efnanna og skipulagt innflutning- inn. Þegar DV ræddi við heimild- armenn um hverjir hefðu burði til þess að smygla svo miklu magni efna inn til landsins fengust þau svör að fjölmargir hefðu getað framkvæmt glæpinn. En allir voru sammála um að þetta væri ekki fýrsti innflutningur smyglarans. Heimskulegt smygl Af þeim sem rætt var við voru flestir sammála um að hasssmygl- ið væri beinlínis heimskulegt. Þeir sögðu að magnið væri of mikið til þess að flytja með húsbíl með Nor- rænu. Bent var á að mikil lykt sé af hassi og sagði einn að ferjan hlyti að hafa angað af framandi keimi. Annar sagði að til væru einfaldari innflutningsleiðir sem væru einn- ig hættuminni. Benti hann á Pól- stjörnumálið í því samhengi þar sem smyglarar komu með efnin á skútu. Hann sagði að þótt þeir hefðu náðst á sínum tíma væri leið- in góð. Því bar heimildarmönnum saman um að sá sem stæði á bak við smyglið væri ekki mjög skyn- samur glæpamaður. Seinir í hassleit Á þriðjudagsmorgun bárust fréttir um að níu hundruð manns biðu í Norrænu á Seyðisfirði þar sem beðið var eftir tollgæslu- mönnum. Ástæðan var sú að ferjan var of snemma á ferð inni. „Það voru eng- in tengsl á milli seinkunar °g jií “ fíkniefnafundarins," sagði Óskar þegar hann var spurður um tilurð seinkunarinnar. Hann sagði það alltaf hafa legið fyrir að ferðamenn kæmust ekki frá borði fyrr en um hádegisbilið. Þetta rímar illa við það sem mbl.is hélt fram í gær en þar var haft eftir ónafngreindri heimild að það hafi ekki verið til- viljun að efnin fundust. Vandlega falin „Þetta var bara hefðbundin toll- afgreiðsla," segir Óskar um hass- fúndinn en fíkniefnahundar urðu varir við að eitthvað af dópi væri falið í bflnum. Síðan var leitað í honum. Óskar vildi ekki segja hvar efnin hefðu verið falin í bflnum en fullyrti að þau hefðu verið vand- lega falin. Eftir að efnin fundust komu rannsóknarlögreglumenn til Seyð- isfj arðar og fóru með þau til Reykja- víkur í gærdag. Hollendingurinn var síðan fluttur með farþegaflug- vél síðdegis í gær til höfuðborgar- innar en til stóð að yfirheyra hann í gærkvöldi. Rannsókn er á fr umstigi og verst lögreglan allra frétta. iUfluuiiunuo mn í málinu. verður að teljast Það SMYRIL-UNE „Aðferðin er þekkt," sagði einstakl- ingur sem hefur smyglað hassi til landsins um þau tæpu tvö hundruð kfló sem lögreglan og tollgæslan á Seyðisfirði lögðu hald á síðastliðinn þriðjudag. Efnin fundust í húsbfl og var Hollendingur á miðjum aldri handtekinn í kjölfarið. Hann var hnepptur í gæsluvarðhald til 9. júlí. Mikil leynd hvílir yfir rannsókn málsins en lögreglan varðist allra frétta í gær. Um er að ræða mesta magn af hassi sem hefur verið hald- lagt hér á landi en lögreglan Gríðarlegt magn Lögreglan lagði hald á gríðarlegt magn af hassi á þriðjudaginn en talið er að magnið metti hassmarkað- inn á Islandi í hálft ár. VALUR GRETTISSON bladamaöur skrifar: valur(g»dv.is Engin óeðlileg hagsmunatengsl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.