Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 12. JÚNl 2008 Fréttir DV Nú er augljóst hverjir koma til meö að berjast um embætti forseta Bandaríkj- anna í komandi kosningum. Margt hef- ur verið skrifað um þá Barack Obama frambjóðanda demókrata, og John McCain. frambjóðanda repúblikana, og því ekki úr vegi að skoða nánar konurn ar að baki mönnunum. æsÉfips ■., Eiginkonur frambjóðendanna í forsetakosningunum í Bandaríkj- unum eiga ekki margt sameigin- legt. Bakgrunnur þeirra er ólík- ur og fátt sameiginlegt með þeim jarðvegi sem einkenndi upp- vöxt þeirra. En eitt eiga Michelle Obama og Cindy McCain sam- merkt og það er ímigustur á hörku bandaríslöra stjórnmála, og báðar reyndu, án árangurs, að telja eig- inmenn sína ofan af því að keppa um forsetaembættið. Einnig eru þær þekktar fyrir fágaðan stíl sem varpað hefur ákveðnum glans á baráttu eiginmanna þeirra. Cindy, eiginkona Johns McCain, og Michelle, eiginkona Baracks Obama, hafa báðar prýtt síður tískutímarita og í síðasta tölublaði Vogue sat Cindy fyrir íklædd gallabuxum af stærð sem kennd er við tölustaflnn 0, hvort sem það er hrós eða ekki. Michelle hefiir orðið þess heiðurs aðnjót- andi að vera líkt við fyrrverandi forsetafrú, Jacqueline Kennedy, og hlaut mikið hrós fyrir blárauð- an klæðnað sem hún klæddist við sigurhátíð eiginmanns síns. En í leit að fleiru sem þær eiga sameig- inlegt er annars ekki um auðugan garð að gresja. Úr verkamannastétt Sagt er að allar ungar stúlkur dreymi um að verða prinsessur þegar þær stækka, en sennilega var ekld margt sem gaf ástæðu til að ætla að Michelle yrði hugs- anlega fyrsta þeldökka forseta- frú Bandaríkjanna. Hún ólst upp hjá foreldrum sínum í suðurhluta Chicago, en sá hluti er að mestu byggður fólki úr iðnaðar- eða verkamannastétt. Michelle Obama er fjörutíu og fjögurra ára, lögffæðingur frá Princeton og Harvard. f fram- boðsherferð eiginmanns síns hef- ur Michelle oft og tíðum ýjað að stöðu sinni sem vinnandi móð- ir, en nýlega gaf hún frá sér fram- kvæmdastjórastarf á sjúkrahúsi, svo hún gæti sinnt uppeídi tveggja dætra sinna og stutt eiginmann- inn í því pólitíska vafstri sem ffarn undan er hjá honum. Sagt er að af Michelle Obama stafi sjálfsöryggi og hún er talin afbragðs ræðu- maður, en sú tilhneiging henn- ar að segja það sem henni dettur í hug heftir stundum orðið tilefni gagnrýni. Cindy McCain er fullkomin andstæða Michelle þegar horft er til sviðsljóssins. Cindy, sem er fimmtíu og fjögurra ára og átján árum yngri en eiginmaður hennar, er hlédræg og líður engan veginn eins vel í sviðsljósinu og Michelle, stallsystur hennar. Allsnægtir í æsku Cindy McCain er bandarísk í húð og hár. Hún er bláeyg, fyrr- verandi kúrekasýningardrottning og klappstýra, með meistaragráðu frá Háskóla Suður-Kaliforníu. Hún ólst upp við allsnægtir og auðlegð í Phoenix og er erfingi að Hensley & Co, einu stærsta dreifingarfyrir- tæki Bandaríkjanna fyrir bjórris- ann Anheuser-Busch, sem meðal annars bruggar Budweiser-bjór- inn. CindyMcCainerekkiáflæðis- keri stödd og samkvæmt skatt- ffamtali þénaði hún sem nemur rúmum fjögur hundruð og sextíu milljónum króna árið 2006. Cindy hefur alið upp fjögur börn, þar á meðal Bridget, sex- tán ára stúlku sem hún ættleiddi frá munaðarleysingjahæli móður Teresu í Bangladess, en Cindy hef- ur látið sig góðgerðarmál miklu varða og ferðast víða um heim til að sinna því hugðarefni. 1 augum margra tilheyrir Cindy McCain hópi hefðbundinna forsetaffúa á borð við Nancy Reagan og Láru Bush. „Hún er mótuð í form hefð- bundinnar eiginkonu frambjóð- anda í framboðsbaráttu," sagði Heimsins feitasti í hjónaband Manuel Uribe vó meira en hálft tonn þegar hann komst í Heims- metabók Guinness. Hann er fjöru- tíu og þriggja ára og hefur misst tvö hundruð og fimmtíu kíló, en betur má ef duga skal því hann áformar að ganga í það heilaga og á þá ósk heitasta að geta gengið inn kirkjugólfið. Manuel Uribe vegur enn um þrjú hundruð og tuttugu kíló og ver öllum sínum tíma í rúminu, ein- faldlega vegna þess að hann á ekki annars kost. Uribe og hans heittelskaða hafa þekkst í fjögur ár og eru afar ástfangin. „I augum Guðs erum við gift nú þegar," sagði Manuel Uribe. Það er þó mat þeirra sem til þekkja að hún vasist ekki mikið í stefnumálum Baracks, en sé trúnaðarmaður sem haldi honum ajorðmm. Calvin Jillson, sem hefur sérhæft sig í stjórnmálavísindum. Jillson sagði að Cindy væri með sína eigin útgáfu af „augnatilliti Nancy Reagan" sem Refsinornir Bills Clinton snúa aftur í netheimum: Hafna samsæriskenningum Gennifer Flowers og Paula Jones eiga það sameiginlegt að tengjast Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkja- forseta. Þær urðu heimsfrægar upp úr 1990 þegar þær upplýstu banda- rísku þjóðina og reyndar heims- byggðina alla um kynferðislegt sam- band sem þær höfðu átt við Clinton þegar hann var ríkisstjóri Arkansas og forsetaefni Demókrataflokksins. Þessar refsinornir sem hafa vom- að yfir Clinton sem skuggi í mörg ár hafa nú stillt saman strengi sína og hleypt af stokkunum vefsíðu þar sem áhugasömum gefst tækifæri til að sjá þær rifja upp kynni sín af Bill. En dýrt er drottins orðið og til að fá nasasjón af endurminningum þeirra þarf að reiða af hendi upp- neitaði boðaði hún til blaðamanna- fundar og spilaði upptökur máli sínu til stuðnings. Það var ekki fyrr en að mörgum árum liðnum sem Bill viðurkenndi að hafa staðið f kynferðislegu sambandi við hana. Ekkert sem fram kemur á síðu stallsystranna getur talist nýjar upp- lýsingar, en upprifjun málanna, og tímasetning vefsíðunnar, gæti haft áhrif í ljósi þess að fram undan eru forsetakosningar. f einu myndskeiði á síðunni spyr Paula Jones Genni- fer Flowers: „Ég hefverið sökuð um að vera hluti af samsæri hægri afla. Ert þú það?" og Gennifer svarar að bragði: „Nei, það er ég ekki." Hvort þær eiga eftir að verða ríkar á uppá- tækinu verður tíminn að leiða í ljós. KLAPPSTYRA GEGN ■ ■ Paula Jones (t.v.) og Gennifer Flowers Hafa snúið bökum saman og rifja upp kynni sín af Bill Clinton. hæð sem nemur rúmum eitt þús- und krónum. Paula Jones sakaði Bill Clinton um að hafa beitt hana kynferðislegri áreitni 1991, en þá voru þrjú ár lið- in frá því að atvikið átti sér stað. Bill neitaði staðfastlega sök og samdi við hana áður en málið komst fyrir dómstóla. Sannanir sem lögfræð- ingar Paulu höfðu undir höndum leiddu síðar til hneykslisins sem umlék samband Bills við lærlinginn Monicu Lewinsky. Gennifer Flowers fullyrti 1992 að hún og Bill hefðu átt í ástarsam- bandi um tólf ára skeið. Þegar Bill var eins konar vörumerki eiginkonu Ronalds Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Jafningi eiginmanns síns Calvin Jillson sagði að hjónaband Michelle og Baracks Obama bæri þau merki að þau hefðu verið jafningjar að meira eða minna leyti og það væri ekki í anda hefðarinnar. En Bandaríkin hafa þó áður státað af óhefðbundnum forsetafrúm. Nægir þar að nefna Rosa- lynn Carter, eiginkonu hnetubónd- ans Jimmy, en hún sat ríkisstjórnar- fundi. Önnur er að sjálfsögðu Hillary Clinton, sem nýlega lýsti sig sigraða í baráttunni við Barack Obama, en Bill setti hana yfir verkefnahóp sem sneri að heilsugæslu. Michelle Obama hitti eiginmann sinn gegnum vinnu sína sem fyrirtækjalögfræðingur og er nán- asti ráðgjafi hans. Það er þó mat þeirra sem til þekkja að hún vasist ekki mikið í stefnumálum Baracks, en sé trúnað- armaður sem haldi honum á jörðinni. Eigi að síður hefur hún skapað sér ímynd sem ákveðinn verkefnisstjóri. Eitt af því sem Barack tönnlaðist á í kosningabaráttunni var að eiginkona hans minnti hann reglulega á að hann væri „ekki fullkominn maður". Að auki benti hann eitt sinn á að spurningu Er meira í anda hefðbundinna forsetafrúa í Bandaríkjunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.